09.03.1982
Sameinað þing: 62. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2923 í B-deild Alþingistíðinda. (2482)
223. mál, brú yfir Hvalfjörð
Davíð Aðalsteinsson:
Herra forseti. Því miður átti ég þess ekki kost að vera hér við framsögu hv. flm. þessarar þáltill. um athugun á gerð brúar yfir Hvalfjörð. Ég hygg að það hafi komið fram, bæði hjá honum og e.t.v. hjá þeim sem síðar töluðu, að till. svipaðs efnis var til umr. á liðnu þingi. Hún fjallaði að mínum dómi um þetta mál í víðari skilningi. Við gerðum ráð fyrir því, flm., allir þm. Vesturlands, að athugun yrði gerð á því, hverjar væru hagkvæmustu samgönguleiðir um Hvalfjörð. Þar voru tíndir til, eins og raunar hefur komið hér fram, fleiri þættir en hér er fjallað um. Við vildum frekar vinna að þessu máli þannig og vorum allir sammála um það, þm. Vesturlands, að slá engu föstu um það án undangenginnar athugunar, hverjar væru hagkvæmustu leiðir í þessum efnum. Þarna er um að ræða spurningar um fjármuni sem ætíð vakna þegar svona lagað er á döfinni, eins og í fjölmörgu öðru og raunar flestu þegar meiri háttar þjóðmál ber á góma.
Það er rétt, sem hér hefur komið fram, að þær framkvæmdir í vegamálum, sem unnar hafa verið í Hvalfirði, hafa verið framkvæmdar í ljósi nál. sem út kom 1972. Niðurstaðan varð þá sú með tilllti til fjölmargra þátta, sem raðað var saman, að hagkvæmasta framkvæmdin væri að leggja veg með bundnu slittagi um Hvalfjörð. Síðan þá hefur verið unnið samkvæmt þessu nefndaráliti, eins og allir menn vita. Það vantar sáralitið á að vegurinn um Hvalfjörð sé allur lagður bundnu slitlagi. Þeir, sem best þekkja, vita að lúkning þeirra framkvæmda skilar e.t.v. hvað mestum arði í samgöngubótum á Íslandi. Ég vildi hafa þetta sem smáinngang.
Hins vegar er ég á því, og m.a. þess vegna tókum við okkur saman, þm. Vesturlands, á liðnu þingi að flytja till. sem fjallar um samgöngur um Hvalfjörð, að það þurfi eilíflega að halda þessu máli vakandi. Enda þótt stefnan hafi verið tekin upphaflega á að leggja veg bundnu slitlagi um Hvalfjörð má aldrei láta af endurskoðun þessa, ekki síst í ljósi þeirra raka og þeirra efnisþátta sem eru taldir upp í grg. með þáltill., þ.e. aukin byggð, aukin umferð, breyting kostnaðar með tilliti til umferðar o.s.frv. En einu megum við ekki gleyma, að framkvæmdakostnaður eykst líka samhliða auknum kostnaði vegna umferðarinnar. Orkukostnaður er undirrót mikilla kostnaðarhækkana vegna framkvæmda. Þessu megum við ekki gleyma.
Ég er engu að neita í þessu sambandi, en tel þó eðlilegra, þótt þessi till. sé hér komin fram, að sú till. sem á liðnu þingi var vísað til ríkisstj., — það voru nógu margir sem báru traust til að hún fylgdi till. eftir og sú athugun yrði gerð sem till. gerði ráð fyrir, — ég vil bíða og sjá til hvað sú tillaga leiðir af sér. Það má vel vera að við stöndum frammi fyrir því, að það sé skynsamlegra að byggja göng undir Hvalfjörðinn. Það veit enginn enn þá. Ég segi: byggja göng. Það má vel vera að sú samgönguleið verði ekki framkvæmd þannig að það verði grafin göng, heldur sökkt hólkum niður á hafsbotninn og síðan ekið í gegn. Ég vil ekkert um þetta fjölyrða nú. Þetta hefur ekki verið rannsakað nógsamlega. Mér þætti vænt um ef það yrði gert.
Hins vegar vil ég vera jákvæður og segja að ég fagna öllum till. sem eru í þá átt að halda slíkum málum vakandi. Ég held í raun og sannleika að þær séu af hinu góða, enda þótt till. sem þessi beri auðvitað auglýsingakeim. En það er allt gott um það að segja. Það er mjög nauðsynlegt ungum og vöskum mönnum, eins og mér og fleiri, að láta í sér heyra. Því veit ég að Guðmundur Vésteinsson er maður til þess að standa undir.
En mín lokaorð skulu vera þessi: Ég vænti þess, að það komi einhver niðurstaða vegna þeirrar till. sem við þm. Vesturl. vorum allir samstiga um að flytja á liðnu þingi. Ég teldi jafnvel eðlilegt að þessi till. yrði athuguð samhliða henni. Það má athuga þær í einu lagi vegna þess að brúin yfir Hvalfjörð er raunar aðeins einn liður þeirrar þál. Hins vegar skulum við minnast þess, að athugun eins og þessi till. gerir ráð fyrir, sem eingöngu fjallar um einn þáttinn, hygg ég að yrði dýrari að tiltölu. Ég held fyrir mitt leyti að það sé skynsamlegra að allir þættir samgönguleiðanna séu teknir með. Hins vegar skal ég játa að fallegasta samgönguleiðin, myndarlegasta, væri brú. Kannske ætti þjóðin að sameinast um það, eins og hún hefur gert um mörg myndarleg verkefni, að byggja þessa brú hvað sem hún kostaði. Kannske verður það einhvern tíma niðurstaðan. Ef ég er spámaður en ég ætla ekki að dæma um það, þá held ég að sé meiri framtíðarmúsík í þessari ágætu tillögu.