09.03.1982
Sameinað þing: 62. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2924 í B-deild Alþingistíðinda. (2483)

223. mál, brú yfir Hvalfjörð

Tryggvi Gunnarsson:

Herra forseti. Ég ætlaði ekki að tefja þessa umr. mikið, en mér finnst það eiginlega furðudjarft að flytja svona till. í sambandi við þessa brúargerð. Það er upplýst að þetta sé nífalt áætlað verð Borgarfjarðarbrúar og Borgarfjarðarbrúin, ef ég man rétt, tífaldaðist í verði. Þetta er kannske rangt, en tölurnar eru víst sagðar svona. Þá vitum við hvað þessi brú muni kosta. Við úti á landsbyggðinni getum ekki verið sammála því að þannig sé farið með vegafé nema uppi sé eitthvað sérstakt verkefni. Við getum ekki verið sammála því að þannig sé farið með fé sem á að samtengja alla þjóðina, að það sé lagt í brú yfir einn fjörð í nágrenni mesta þéttbýlis landsins. Við verðum að andmæla því.

Ég lofaði forseta að tala stutt. — Nú vita allir að Borgarfjarðarbrúin er kölluð Halldóra. Nú langar mig til að vita hvað þessi brú á að heita.