10.03.1982
Efri deild: 53. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2944 í B-deild Alþingistíðinda. (2491)

230. mál, kosningar til Alþingis

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Eins og hv. þd. er kunnugt voru samþykkt fyrir jól lög um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis þar sem m.a. var ákveðið að nota skyldi stimpla við utankjörfundarkosningu. Þessi lög koma til framkvæmda við sveitarstjórnarkosningar á vori komanda.

Í grg. með frv. að lögum þessum var gert ráð fyrir að dómsmrn. löggildi stimpla og sjái kjörstjórnum fyrir stimplum. Ljóst er að stimplar þeir, sem hér um ræðir, þurfa að vera í höndum kjörstjórna strax og utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst. Er það þremur dögum eftir að framboðsfresti lýkur og þá fyrst er vitað hverjir listabókstafir verða í notkun.

Við kosningar undanfarin ár hefur fjöldi listabókstafa verið sem hér segir: Alþingiskosningar 1979 9, 1978 11 og 1974 10. Sveitarstjórnarkosningar 1978 a.m.k. 13 og 1974 15. Á þessum tíma hefur verið notaður a.m.k. 21 bókstafur. Í stafrófinu eru hins vegar 30 bókstafir ef sérhljóðum og broddi yfir er sleppt. Þar sem stimplarnir þurfa að liggja fyrir strax og kosning hefst þyrftu, ef fyllsta öryggis ætti að gæta, að vera fyrir hendi á hverjum kjörstað stimplar með öllu stafrófinu þótt ekki væru notaðir nema 10–15 bókstafir. Í leiðbeiningum til kjörstjórna hefur þó verið ætlað að notast megi við 15 bókstafi.

Kjörstaðir við utankjörfundaratkvæðagreiðslu eru um það bil 300, hjá sýslumönnum og bæjarfógetum og hreppstjórum auk sendiráða og ræðismanna erlendis. Miðað við þessar forsendur þyrfti að útvega a.m.k. 4500 stimpla fyrir næstu kosningar.

Stimpla þá, sem hafðir eru í huga, þarf að kaupa erlendis frá. Við athugun kom í ljós að hæpið var að unnt yrði að afla svo mikils magns af stimplum í tæka tíð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Slíkir stimplar munu kosta um 100 kr. hver þegar þeir hafa verið fullbúnir með bókstaf og blindraletri svo sem til er ætlast. Miðað við að keypt yrði eitthvert magn stimpla til vara mundi kostnaður við innkaup verða um eða yfir hálfa millj. kr. Þegar þessi kostnaður er hafður í huga og hæpið að takist að afla nægilegs magns stimpla þótti ástæða til að athuga hvort ekki væri rétt að breyta lagaákvæðunum. Hefur niðurstaðan orðið sú að leggja til að kjósanda verði heimilt að velja um hvort hann stimplar á kjörseðil eða ritar á hann svo sem verið hefur. Er þá jafnframt haft í huga að stimplar verði eigi hafðir á öllum kjörstöðum, heldur einungis á skrifstofum sýslumanna og bæjarfógeta og hjá nokkrum hreppstjórum og í sendiráðum. Mundu stimplar þannig verða á um 50 stöðum. Miðað við 15 stimpla á kjörstað má minnka innkaup í 1000 stimpla og verður kostnaður við það þá um 100 þús. kr. Er þá jafnframt haft í huga að áður en stofnað verður til frekari innkaupa muni fást reynsla af notkun þeirra við utankjörfundarkosninguna.

Rétt er að taka fram að við athugun málsins og undirbúning frv. þessa hefur verið haft samráð við formann Blindrafélagsins, en hagsmunir blindra voru m.a. hafðir í huga við setningu lagaákvæðisins fyrr í vetur.

Herra forseti. Ég hef farið allmörgum orðum um athugun og undirbúning máls þessa í rn. Með því að notkun stimpla við kosningar er alger nýjung, sem reynsla hefur ekki fengist af, og um allverulegan kostnað hefur verið að ræða þótti rétt að staldrað væri við og mál þetta athugað á ný. Niðurstaðan liggur fyrir í frv. þessu þar sem lagt er til að ekki verði skylt að nota stimpla og að þeir standi að svo stöddu a. m. k. einungis til boða hjá sýslumönnum og bæjarfógetum, nokkrum hreppstjórum og í sendiráðum. Breytingin hefur í för með sér minnkuð útgjöld úr a. m. k. 500 þús. kr. í um 100 þús. kr.

Herra forseti. Ég legg til að frv. þessu verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. allshn.