10.03.1982
Efri deild: 53. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2947 í B-deild Alþingistíðinda. (2498)

144. mál, almannatryggingar

Frsm. 1. minni hl. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Það er kunnara ern frá þurfi að segja. að þm. Alþfl. hafa á yfirstandandi þingi og mörgum undanförnum þingum flutt bæði tillögur og frumvörp sem hafa lotið að því að draga úr álagningu tekjuskatta. Seinast við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1982 flutti fulltrúi Alþfl. í fjvn. m.a. tillögur um lækkun tekjuskatts og tilsvarandi niðurskurð á ríkisútgjöldum.

Við höfum talið að svo margvíslegt óréttlæti birtist í núverandi tekjuskattsálögum að nauðsyn bæri til að hverfa af þeirri braut, sem farin hefur verið að undanförnu með mjög háum tekjusköttum, og viljað afnema tekjuskattinn í áföngum. Það frv., sem hér er til umr., er eitt form tekjuskatta. Hugmynd okkar er sú, að með lækkun tekjuskatta mætti enn fremur treysta kaupmátt ráðstöfunartekna hjá heimilunum án þess að það hefði áhrif í verðbólguátt. Í þriðja lagi er ljóst að jaðarskattur, sem nemur um það bil 66-% af tekjum, er hár þegar hann er lagður á almennar miðlungslaunatekjur. Þetta teljum við að þyrfti allt að taka til endurskoðunar. En þrátt fyrir þau augljósu rök, sem við höfum flutt fyrir lækkun tekjuskatta, hefur enn ekki náðst stuðningur við þessar tillögur okkar. Þær hafa ekki fengist samþykktar.

Í tilefni af því frv., sem hér er flutt um sjúkratryggingagjald, viljum við nú enn freista þess að fá stuðning ríkissjónarflokkanna við hugmyndir okkar um lækkun tekjuskatta. Ef við þessa umr. kæmi fram yfirlýsing frá ríkisstj. eða talsmönnum ríkisstj. í þessa átt sem ótvíræð væri um lækkun tekjuskatta mundi Alþfl. geta stutt það frv. sem hér um ræðir. En komi slík yfirlýsing ekki fram telur Alþfl. að ekki sé fært að samþykkja þá viðbótarskattlagningu með álagningu sjúkratryggingagjalds sem hér er til umr. Skýringin er augljós. Heildarskattbyrði venjulegs launafólks með miðlungslaunatekjur er einfaldlega of há.

Ég mun því, herra forseti, vaka yfir því hér hvort fram kemur yfirlýsing frá ríkisstj. um lækkun tekjuskatta, og afstaða mín og okkar Alþfl.-manna til frv. birtist í atkvgr. í samræmi við það sem ég hef hér sagt.