11.03.1982
Sameinað þing: 63. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3001 í B-deild Alþingistíðinda. (2548)

Umræður utan dagskrár

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég hef óskað eftir þessum umr. utan dagskrár vegna þeirra samninga sem nú eru á döfinni eða hafa þegar verið gerðir um kaup Arnarflugs hf. á eignum Iscargo hf. Ég segi: eignum, þar er ekki um að ræða kaup á Iscargo sem félagi.

Nú er það svo að öllu jöfnu, að Alþingi skiptir sér ekki af kaupsamningum á milli félaga, en hér horfir öðruvísi við. Hér er um að ræða beina og óbeina hagsmuni ríkisins og Alþingi á kröfu á að fá skýringar og skýrslu ráðh. af afskiptum hans af málinu. Ástæðurnar fyrir þessari kröfugerð byggjast á eftirtöldum staðreyndum:

1. Íslenska ríkið er eignaraðili að Flugleiðum hf. er nemur 20%. Flugleiðir eiga 40% í Arnarflugi. Gefur því auga leið að hér er um beina hagsmuni ríkisins að ræða.

2. Einn af ríkisbönkunum, þ.e. Útvegsbanki Íslands, kemur mjög við sögu í þessu máli. Nýlega hafa verið gerðar ráðstafanir til að aðstoða þennan banka. Það hljóta því að vera beinir hagsmunir ríkisins hverjar ákvarðanir hann tekur í tengslum við þetta mál.

3. Sé það ætlun hæstv. samgrh. að svipta eitt flugfélag a.m.k. tveimur áætlunarflugleiðum til að afhenda þær öðru flugfélagi býður það heim stórfelldum skaðabótakröfum á hendur ríkissjóði. Það eru því beinir hagsmunir ríkisins hverjar ákvarðanir verða teknar um þetta efni.

4. Það verður að fá það upplýst í eitt skipti fyrir öll, hvort áætlunarflugleyfi hafi í þessu máli verið notuð sem einhvers konar dúsa eða greiðsla svo að umrædd kaup gætu farið fram.

Herra forseti. Aðeins þessi fjögur atriði réttlæta það fullkomlega að hér á Alþingi verði fjallað um fyrrnefndan samning og að þeir ráðherrar, sem hluta eiga að máli, gefi skýringar á afskiptum sínum og afstöðu til málsins. Hæstv. samgrh. hefur í mín eyru sagt að hann og hans rn. hafi engin afskipti haft af málinu. Sé svo, þá tel ég að ráðh. hafi brugðist skyldu sinni því að auðvitað ber honum að gæta hagsmuna ríkisins sem vegna eignarhluta í Flugleiðum hf. er einnig eigandi að Arnarflugi hf. Ég leyfi mér hins vegar að draga í efa að hæstv. ráðh. hafi engin afskipti haft af þessu máli, en þau hafa að mínu viti ekki verið til þess að gæta hagsmuna ríkisins. Það er svo önnur saga, hvort ráðh. hafi gert það með glöðu geði að skipta sér af málinu. Um það ræði ég ekki.

Ég mun nú rekja hver ég tel vera afskipti hæstv. ráðh. Sérstakur fulltrúi hans í stjórn Flugleiða hf. hefur fylgst með þessum samningum í nokkrar vikur. Hann var eins konar milligöngumaður á frægum næturfundi í Hótel Sögu aðfaranótt 3. þ. m., þegar undirritað var bráðabirgðasamkomulag sem hæstv. ráðh. var kynnt daginn eftir. Vart hefur þessi fulltrúi hæstv. ráðh. haft þessi afskipti af málinu án vitundar ráðh. Varla getur hér verið um tilviljun að ræða.

2. Þ. m., daginn fyrir næturfundinn þar sem bráðabirgðasamkomulagið tókst, undirritaði hæstv. ráðh. bréf þar sem Arnarflugi var heimilað áætlunarflug til Düsseldorf í Sambandslýðveldinu Þýskalandi og til Zürich í Sviss. Eftir þessum leyfum hafði Arnarflug hf. beðið í marga mánuði, en fékk þau daginn áður en bráðabirgðasamkomulagið var undirritað. Varla getur hér verið um tilviljun að ræða.

Fimmtudaginn 4. mars var svo haldinn fundur í fullskipaðri stjórn Arnarflugs þar sem samkomulagið var kynnt, en morguninn eftir, hinn 5. mars, óskaði hæstv. ráðh. eftir fundi í flugráði sem síðan var frestað. varla getur hér verið um tilviljun að ræða. S.l. þriðjudagsmorgun voru nokkrir flugráðsmenn ásamt flugmálastjóra kallaðir til fundar við hæstv. ráðh., þar sem m.a. kom fram, að líkur væru á að Arnarflug hf. fengi flugleyfi til áætlunarflugs til Amsterdam, þ.e. það flugleyfi sem Iscargo hefur nú en fylgir ekki með í kaupunum. Varla getur þetta talist helber eða einber tilviljun.

Það má líka í sambandi við þessi afskipti velta fyrir sér á hvern veg þessi áætlunarleyfi hafa verið notuð í allri samningagerðinni, en um það ætla ég ekki að fjalla frekar á þessu stigi málsins.

Þá vildi ég aðeins koma að því, hvernig samningur sá, sem hér um ræðir, hefur orðið til og um hvað hann fjallar. Í samningnum skuldbindur kaupandi sig til þess að kaupa eftirtaldar eignir seljanda: Electra-flugvél, auðkennda TF-ESC, ásamt varahlutum, húseignir á Reykjavíkurflugvelli, lyftara, bíl, verkfæri, áhöld, skrifstofuvélar og annan búnað. Umsamið kaupverð á þessum hlutum er 29 millj. kr. Þetta á að greiða þannig, að í a-lið er gert ráð fyrir yfirtöku skulda Iscargo hf. við Útvegsbanka Íslands samkv. samkomulagi við bankann, dags. 26. febr. s.l., að upphæð 24.2 millj. kr. með peningum 3.8 millj. kr. og 1 millj. kr. í víxlum. Þessa greiðslu á að inna af hendi jafnskjótt og umræddur samningur gengur í gildi.

Þá er gert ráð fyrir að seljandi gefi út afsal fyrir hinu selda um leið og greiðslur samkv. fyrrnefndum liðum eða b-lið hafa verið inntar af hendi.

Þá vil ég geta þess, að í 5. gr. bráðabirgðasamnings, sem gerður var 3. þ.m., er gert ráð fyrir að kaupandi skuli eiga rétt á að kaupa öll hlutabréf í Iscargo hf. fyrir samtals 100 þús. kr., enda tilkynni hann seljanda fyrir 1.júlí n.k. að hann hyggist hagnýta þann rétt. Þá er þess getið í samningnum, að hann taki gildi þegar hann hefur verið samþykktur og undirritaður af stjórnum beggja samningsaðila. Skal því vera lokið í síðasta lagi kl. 18 föstudaginn 5. mars, ella telst samningurinn niður fallinn. Hins vegar kemur fram í samningnum, eftir að hann hefur verið undirritaður, að frestur samkv. þessari grein er framlengdur til þriðjudagsins 9. mars s.l., þ.e. á þriðjudaginn var.

Í tengslum við þennan samning er svo samningur sem gerður hefur verið á milli Útvegsbankans og þeirra fyrirtækja sem hér um ræðir. Sá samningur fjallar um yfirtöku skulda félagsins, þ.e. Arnarflugs, á skuldum Iscargo. Þar er um að ræða mjög miklar upphæðir og ég hef hugleitt það svona með sjálfum mér, hvort það hafi verið tryggt, að fullnægjandi veð væru fyrir hendi. Um það ætla ég ekkert að fullyrða. En mér er algerlega ljóst, að ef af þessum kaupum á að verða er bæði nauðsynlegt og eðlilegt í sjálfu sér að Arnarflug hljóti að fá einhverja mjög umtalsverða fjárhagslega fyrirgreiðslu frá peningastofnun eða einhverju fjársterku fyrirtæki. Félagið getur ekki upp á eigin spýtur reitt af hendi þá fjármuni sem ætlast er til samkv. þeim samningum sem um ræðir. Ég vil benda á það, að Arnarflug er hér að ráðast í kaup upp á 29 millj. kr. á sama tíma og hlutafé félagsins er 1.2 millj., en félagið hefur nýverið ráðist í talsverðar fjárfestingar, t.d. í sambandi við kaup á húsnæði. Mér er ekki kunnugt um hvaðan þessir fjármunir eiga að koma. En ég vil spyrja hvort ekki sé yfirvofandi hætta á að greiðsluþoli Arnarflugs hf. hafi verið ofgert með þessari 29 millj. kr. fjárfestingu á meðan hlutafé félagsins er aðeins 1.2 millj. kr.

Í samningnum er, eins og ég sagði áðan, gert ráð fyrir að Arnarflug eigi rétt á að kaupa öll hlutabréf í Iscargo fyrir 100 þús. kr. Í samningnum er gert ráð fyrir að réttur samkv. leigusamningi um flugskýli á Reykjavíkurflugvelli fylgi, enda fáist samþykki flugmálastjórnar. Ekki er mér kunnugt um að þetta samþykki liggi fyrir, enda veit ég ekki betur en samkv. skipulagi fyrir Reykjavíkurflugvöll eigi slökkvistöð flugvallarins að risa þar sem húseignir Iscargo eru nú.

Því má svo bæta við, að kaupanda, þ.e. Arnarflugi, er ætlað að greiða stimplun og þinglýsingu samkv. kaupsamningi sem hljóta að vera umtalsverðar fjárhæðir.

Í þessum sérkennilega samningi, sem var undirritaður 3. mars, er eins og ég sagði áður gefinn frestur til kl. 8 s.l. þriðjudagsmorgun til að fullgilda hann. En það var einmitt þann dag sem, hæstv. samgrh. boðaði nokkra flugráðsmenn á sinn fund.

Nú vil ég taka það skýrt fram, að ég sjálfur bervirðingu fyrir dugnaði og framtaki þeirra Arnarflugsmanna. En ég hef látið þá skoðun mína koma skýrt fram, að hér á landi sé ekki rúm fyrir fleiri en eitt flugfélag í áætlunarflugi á milli landa. Ég tel að það verði Arnarflugi afdrifaríkt að stunda takmarkað áætlunarflug og mun það að mínu viti koma í ljós síðar. Ég tel hins vegar að félagið eigi mikla framtíð fyrir sér á vettvangi hver konar leiguflugs og t.d. í góðri samvinnu við Flugleiðir. Starfsfólk þessa félags hefur sýnt mikinn dugnað og eljusemi og verði mótuð skynsamleg stefna í flugmálum hér á landi á þetta félag tvímælalaust framtíð fyrir sér.

Ég vil benda í þessu sambandi á þáltill. um mörkun opinberrar stefnu í flugmálum sem ég og hv. þm. Magnús H. Magnússon og Benedikt Gröndal höfum flutt hér á þingi. Ég vil einnig geta þess, að ekki eru allir hluthafa Arnarflugs jafnánægðir með þann kaupsamning sem nú er á döfinni.

Þá kemur að þeim þætti þessa máls er snýr að Útvegsbanka Íslands. Fyrir liggur samkomulag á milli Arnarflugs hf., Iscargo hf. og Útvegsbanka Íslands vegna kaupa Arnarflugs á hlutabréfum í Iscargo, eins og það er orðað í samkomulaginu, og kemur mér nokkuð á óvart þetta orðalag, þar sem talað erum hlutabréfakaup, en ekki kaup á félaginu. Þetta samkomulag var undirritað 26. febr. s.l. Þar er gert ráð fyrir að Arnarflug hf. taki lán að fjárhæð 2.5 millj. kr. og Iscargo lán að fjárhæð 4.5 millj. kr., en hvort tveggja á að greiðast á 29 mánuðum með hæstu löglegum vöxtum. Hins vegar er heimilt að greiða afborganir og vexti af lánum þessum með tveggja og hálfs árs fasteignartryggðum skuldabréfum. Málið gerist flókið. Þá er gert ráð fyrir að Iscargo hf. taki lán í erlendri mynt að fjárhæð 17.2 millj. kr. til sjö ára. Gert er ráð fyrir að Útvegsbankinn haldi þeim tryggingum, sem hann nú hefur, með þeirri breytingu, að handveð eins eiganda Iscargo verði lækkað í 2 millj. kr. Síðan á Arnarflug að setja handveð í fasteignatryggðum skuldabréfum að fjárhæð 1 millj. kr., og félagið tekst á hendur sjálfskuldarábyrgð á allt að 100 þús. dollurum. Fleiri atriði koma fram í þessu samkomulagi, en ég vil ekki þreyta hv. þm. meira með hinni æðri fjármálapólitík sem stunduð er hér á landi.

Ég sagði áðan að þessar tölur vektu þá spurningu, hvort Útvegsbankinn hafi lánað Iscargo umfram raunhæf veð. Væntanlega fæst svar við þeirri spurningu.

Mér hefur ekki reynst unnt, herra forseti, að fá skuldalista Iscargo, en ég hef nokkuð áreiðanlegar tölur um skuldir félagsins. Eins og fram hefur komið eru skuldirnar við Útvegsbankann tæplega 25 millj. kr. Lausaskuldir innanlands eru 3.5 millj. eða þar um bil og lausaskuldir erlendis um 3.5 mill j. kr. Alls gerir þetta 32 millj. eða 3.2 milljarða gkr. Auk þess er skuld við Landsbanka Íslands sem ég veit ekki hversu há er, en bankinn hefur veð að fjárhæð 300 þús. dollara í DC-6 B-flugvél sem er metin á 60 þús. dollara. Það lætur nærri að meta eignir Iscargo eftir eðlilegum leiðum á um 17 millj. kr. Þar er Electra-flugvél metin á 1.5 millj. dollara. En þess ber að geta í sambandi við þessa Electra-flugvél, að nú eru á sölulista í Bandaríkjunum 19 slíkar flugvélar og söluverð þeirra er frá 700 þús. dollurum upp í 1.9 millj. dollara. Fer það eftir því, hvernig vélin er innréttuð, ástand, mótora og ástandi vélarinnar yfirleitt. Það vantar skoðunarsögu þeirrar Electra-vélar sem Iscargo á nú, og raunverulega er mjög erfitt að meta hvers virði sú vél er. En mér skilst að þegar Útvegsbankinn tekur veð í vélinni meti hann hana á 1 millj. dollara og er það ugglaust mjög skynsamlegt mat.

Þá er rétt að geta þess, að það eru margar aðrar hliðar á þessum undarlega kaupsamningi sem ég tel rétt að vekja athygli á. Ég vil t.d. spyrja hvaða eignir Arnarflugsmenn hyggist veðsetja fyrir þessari fjárhæð. Ég veit ekki betur en eignir þeirra séu býsna rækilega veðsettar. Þá liggur beint við að spyrja hvort Arnarflug geti tekið þessa ákvörðun án samþykkis hluthafafundar eða án samþykkis allra stjórnarmanna félagsins. Ég tel það í sjálfu sér ábyrgðarhluta af stjórnarmönnum Arnarflugs að taka viðlíka ákvörðun, um 29 millj. kr. fjárfestingu, án þess að bera hana undir hluthafafund. Ég er ekki heldur frá því að það kunni að vera brot á lögum félagsins.

Síðan er spurningin um það, hvert sé raunverulegt verðmæti eigna Iscargo. Eins og ég sagði áðan er allt á huldu um verðmæti Electra-flugvélar félagsins. Vélar af þessu tagi seljast mjög seint, þær seljast hægt og þykja ekki góð söluvara. En þess ber að geta, að auðvitað gæti Arnarflug notað vél af þessu tagi til þess að setja upp í aðra vél ef félagið tæki þá ákvörðun að nota hana þannig.

Ég gat þess, að ekki væri vitað um ástand vélarinnar. Það veit raunverulega enginn um verðmæti varahluta sem með henni fylgja. Það veit raunverulega enginn hvert er verðmæti húseigna félagsins á Reykjavíkurflugvelli. Það skortir á brunabótamat og það er mikill munur á brunabótamati eignanna og húsamati og auðvitað matsatriði eftir hvoru verður farið þegar frá kaupsamningi verður gengið. Húsin, sem þarna um ræðir, getur hver maður skoðað og reynt að meta hvers virði eru, en þau eru reist á árabilinu frá 1955 til 1962. Það er mat flestra manna, sem um þetta mál hafa fjallað, að eignir Iscargo séu allt of hátt metnar, svo að ekki sé tekið dýpra í árinni.

Herra forseti. Ég tel mig nú hafa fært fullnægjandi rök fyrir því, að hér sé á ferðinni m jög alvarlegt mál, þar sem mikið skorti á að öll kurl séu komin til grafar. Og ég verð að segja það berum orðum, að af þessu máli öllu er vond lykt. Ég tel að hér sé á ferðinni óeðlilegt samkrull áætlunarflugsheimilda, sölu eigna Iscargo, fjármálaspekúlasjóna og afleiðing stefnuleysis í íslenskum flugmálum sem aðeins leiðir til ófarnaðar.

Í bréfi því, er samgrn. sendi Arnarflugi 2. þ.m., þar sem félaginu er heimilað áætlunarflug til Düsseldorf og Zürich, eru lokaorðin þessi: „Jafnframt vill rn. taka fram að í framhaldi af ofangreindum heimildum til áætlunarflugs er stefnt að því að marka flugmálastefnu sem m.a. nær til skiptingar flugleiða á milli íslenskra flugfélaga. Til undirbúnings slíku telur rn. æskilegt að áfram verði haldið viðræðum flugfélaganna um samstarf og samvinnu.“

Þetta er að mínu mati svo forkostulegt orðalag, ef höfð ef í huga þróun mála síðustu misseri og vikur, að hver sjáandi maður hlýtur að gera sér grein fyrir því, að eitthvað mikið er hér að.

Ég gat þess í upphafi máls míns, að ef hæstv. samgrh. ætlar að gera alvöru úr því að svipta Flugleiðir leyfum á áætlunarleiðum, a.m.k. tveimur, þá er ekki nokkur einasti vafi á því, að hann skapar ríkinu stórkostlega fébótaábyrgð. Það hefur fallið dómur hér á landi í máli manns sem var sviptur leyfi, og hann vann það mál, fékk að vísu ekki þá fjárhæð, sem hann óskaði eftir, eða þær skaðabætur, en hann fékk nokkurn hluta af þeim.

Ég vil, herra forseti, fá að lesa nokkur orð úr frétt í Tímanum í dag, sem ber fyrirsögnina: „Vil marka þá stefnu að hér séu tvö áætlunarflugfélög.“ Þar segir hæstv. samgrh., með leyfi forseta, þar sem hann fjallar um það, að hann hafi boðað flugmálastjóra, varaflugmálastjóra og flugráðsmenn á sinn fund:

„Aðallega var ég að gera þeim grein fyrir þeim tilraunum sem fram hafa farið frá því í haust, sagði Steingrímur, að reyna að ná fram samkomulagi á milli flugfélaganna um samstarf og skiptingu leiða o.fl., og að þær tilraunir hefðu hingað til mistekist. Ég sagði þeim að ég teldi eðlilegt, og að ég mundi ræða um það við flugfélögin, að ef Arnarflug fengi flugleyfi á Amsterdam, eftir að Iscargo hefði skilað inn flugleyfinu, þá væri eðlilegt að Flugleiðir flygju ekki á Amsterdam og Düsseldorf, gegn því þá að Arnarflug flygi ekki leiguflug á Kaupmannahöfn og London, sagði samgrh.“

Ég get ekki skilið þessi orð hans öðruvísi en svo að hann hyggist taka þessi leyfi af Flugleiðum sem eru búnar að auglýsa þessar leiðir frá því í októbermánuði s.l. í öllum sínum áætlunum og hafa bókað á 7. þúsund farþega í ferðir á þessum flugleiðum. Ég tel að ef þetta gerist á þennan hátt sé hæstv. samgrh. að skapa ríkissjóði stórkostlega fébótakröfu sem ekki er séð fyrir endann á.

Með leyfi forseta vil ég lesa örlitið lengra úr þessari frétt. Þar segir: „Með þessu móti sagðist Steingrímur telja að komin væri á nokkur samkeppni, því að Flugleiðir mundu halda áfram að fljúga á Frankfurt, sem væri nátengt Lúxemborgarfluginu, og þá kæmi náttúrlega til samanburðar í verðum og þjónustu, sem Steingrímur sagðist telja ákaflega mikilvægt. Sagðist hann einnig hafa lagt áherslu á það í máli sínu á fundinum, að hann vildi að viðhald vélanna væri sem mest hér heima og yfirleitt að samvinna á milli félaganna yrði víðtæk, en þó yrði viðunandi samkeppni og samanburður fyrir hendi.“

Ég hef viljað í þessu máli mínu draga fram staðreyndir, reyna að forðast getsakir um það, hvað liggi hér á bak við. Ég hef ekki nefnt það einu orði hver kunni að vera ástæðan fyrir þessum sérkennilega samningi, sem ég veit ekki hvort er frágenginn á þessari stundu, að þessum orðum sögðum, en eitthvað mikið hlýtur að hafa legið við. Ég vil endurtaka það sem ég sagði í upphafi, að hér er um að ræða tvímælalausa hagsmunum íslenska ríkisins og það leikur enginn vafi á því, að þinginu ber að fjalla um þetta mál. Ég nefndi ástæðurnar. Ég nefndi eignarhlut ríkisins í Flugleiðum sem eiga síðan 40% í Arnarflugi, ég nefndi einn ríkisbankanna sem hér kemur við sögu, og ég nefndi þann hugsanlega möguleika að hæstv. samgrh. svipti flugfélag flugleyfum og skapaði þar með stórkostlegar bótakröfur á hendur ríkinu.

Ég gæti og hef hér gögn til þess að fara um þetta miklu, miklu fleiri orðum og taka kannske enn þá stærra upp í mig. Ég ætla hins vegar að láta það eiga sig, nema tilefni gefist til þess síðar á fundinum. En ég óska eindregið eftir því, að hæstv. samgrh. geri grein fyrir því og svari því afdráttarlaust, hvort hann hafi haft afskipti af þessu máli, hver þau afskipti hafi verið, hafi hann haft afskipti af málinu, og hvernig honum raunverulega litist á þann möguleika, að Arnarflug geti starfað áfram eftir að hafa ákveðið fjárfestingu af þessari stærðargráðu.

Ég vil ekki, herra forseti, lengja þessa umr. Það gefst ugglaust tilefni til að fara um þetta mál fleiri orðum hér á eftir. En ég vænti skýrra svara frá ráðh.