11.03.1982
Sameinað þing: 63. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3020 í B-deild Alþingistíðinda. (2552)
Umræður utan dagskrár
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Það kom mér verulega á óvart, þegar ég hlýddi á mál hæstv. samgrh. áðan, hvað hann taldi sig lítið vita um þessi mál, þó ekki væri af annarri ástæðu en þeirri, að um alllanga hríð hafa þessi mál verið blaðamál hér og sérhver borgari í landinu getað lesið um þau viðskipti sem hér hafa verið að eiga sér stað. Ég geri þá ráð fyrir að það hafi komið hæstv. samgrh. mikið á óvart þegar hv. þm. Friðrik Sophusson upplýsti hann um hverjir væru eigendur að fyrirtækinu Iscargo, en þetta hefur einnig verið blaðamál nú um nokkra hríð.
Mér finnst í þessari umr., að menn hafi leitast við og kannske af ásettu ráði, að rugla saman aðalatriðum og aukaatriðum. Vitaskuld er það hverju orði sannara sem fram kemur hjá hæstv. samgrh. og nú áðan hjá hv. 3. þm. Reykv., Albert Guðmundssyni, að þegar viðskipti eiga sér stað milli tveggja aðila, sem eru sjálfstæðir að lögum, eins og áðan var orðað, kemur það Alþingi og alþm. ekkert við. Ef annar hefur betur í þeim viðskiptum og hinn er hlunnfarinn kemur það Alþingi ekki heldur við. En það kemur Alþingi við ef flugleyfi, sem eru háð opinberum ákvörðunum, eru notuð sem verslunarvarningur í svona viðskiptum. Það er þá og þá fyrst sem þetta mál kemur Alþingi við.
Það er auðvitað alveg út í hött, bæði hjá hæstv. ráðh. og nú síðast hjá hv. 3. þm. Reykv., að vera að tala um sjálfstæði í viðskiptum þegar svona stendur á. Það er að vísu rétt að því marki, að það kemur Alþingi ekki við þangað til opinber flugleyfi eru orðin verslunarvara. En af hverju hafa þær spurningar vaknað? Jú, það er mjög einfalt. Það er blaðamál að fyrirtæki, margreynt fyrirtæki, Arnarflug, hafi keypt tilteknar eignir á nefnda upphæð, 29 millj. kr. Það er ekkert leyndarmál. Þetta er opinbert mái. Hins vegar mun ekki í kaupsamningi sundurliðað hvað af þessu er fyrir flugvélar, hvað fyrir varahluti og hvað fyrir húseignir á Reykjavíkurflugvelli. Það vekur strax spurningar. En í annan stað er vitað að vélar sem þessar eru til á markaði í Bandaríkjunum og seljast ekki fyrir helmingi lægri upphæðir en hér er um að ræða, og svo draga menn mjög í efa raungildi þeirra húseigna sem hér er um að ræða. Sé reynt að draga þetta saman, sem að vísu er erfitt vegna þess hvernig salan hefur farið fram, er að mati dómbærra manna um að ræða mikið yfirverð. Ég hygg að öllum sé ljóst að þetta hefur gerst með þessum hætti.
Nú segi ég alveg eins og hv. 3. þm. Reykv., að eigi viðskipti sér stað milli A og B og hlunnfari A B í slíkum viðskiptum kemur okkur það ekkert við nema það sé hluti af því máli að til að koma þessum viðskiptum á, til að spyrða þessi viðskipti saman, hafi verið notuð flugleyfi og þau metin til verðs. Er þetta ekki alveg ljóst? Það er þetta og þetta eitt sem um er spurt hér? Hæstv. samgrh. segir auðvitað nei, að þetta hafi ekki gengið fyrir sig með þessum hætti. En á sama tíma er upplýst hér á hv. Alþingi að þeir aðilar, sem þessi viðskipti eiga við hæstv. ráðh., tveir frá sitt hvoru fyrirtækinu, eru staddir á skrifstofunni hjá honum daginn sem samningarnir eru gerðir. Til hvers er það? Gefur ekki auga leið — við skulum ekki ganga lengra en að segja það — að það er a.m.k. eðlilegast af öllu að um þetta sé spurt hér? Og við getum haldið áfram. Það er ljóst að í stjórn þess fyrirtækis, sem þessi kaup gerir, sitja fimm einstaklingar. Það fer svo í stjórninni að samþykkt er að ganga að kaupunum með 3:2 atkv. Meiri hlutinn er ekki meiri en það. Og að hverju vill ekki minni hlutinn ganga í þessum efnum? Væntanlega telur hann kaupin vera óhagkvæm af einhverjum ástæðum. Það er þá hvorki prívatsjónarmið fyrirspyrjanda né annarra þeirra, sem hér hafa talað eða í blöð skrifað, að svo sé. Það virðist vera mat fleiri og það virðist ná inn í það fyrirtæki sem hér á hlut að máli.
En ég vil endurtaka það og taka undir það bæði með hæstv. ráðh. og hv. bankaráðsformanni, að viðskipti tveggja aðila úti í bæ koma auðvitað Alþingi og alþm. ekkert við nema flugleyfi hafi verið notuð sem verslunarvara. (AG: Ég er ekki hér sem bankaráðsmaður.) Ég bið hv. þm. afsökunar. Ég skal ávarpa hann sem slíkan. En hv. þm. gerði grein fyrir máli sínu áðan sem formaður bankaráðs og sú ræða hefur verið flutt. En allt um það, það er þetta sem mér virðist vera kjarni þessa máls.
Hv. 3. þm. Reykv., Albert Guðmundsson, upplýsti líka annað áðan þegar hann varði gerðir bankans í þessum efnum. Ég fyrir mitt leyti held að það sé ekkert við þær að athuga. Ég held að það sé mjög eðlilegt af bankans hálfu sem þar hafi gerst. — En hann sagði eitt. Hann sagði að bankinn hefði gripið inn í þetta mál m.a. til að koma í veg fyrir að nokkrir einstaklingar og fjölskyldur þeirra yrðu gerðar að öreigum. Hvað er hv. þm. að segja? Í fyrsta lagi er það falleg og mannbætandi hugsun að koma í veg fyrir að menn séu gerðir að öreigum, og ekki skal ég hafa á móti því. En ef þetta er svona alvarlegt, sem ég vissi ekki um fyrr en hv. 3. þm. Reykv. hafði talað, þá spyr ég: Hafa þá ekki fleiri vitað um að ástandið var svona alvarlegt í þessum efnum og hafa ekki fleiri sýnt slíkan mannkærleika sem hv. 3. þm. Reykv. hefur sýnt? Hvaða ráðum hafa þeir þá beitt, ef skuldatalan hefur verið þessi, en raunverð eignanna annað, og hvað er raunverð? Það sem hægt væri að fá fyrir þær á markaði er miklum mun minna en fékkst. Jú, það er spurt um hvaða flugleyfi séu metin til fjár.
Ég vil leggja á það ríka áherslu að ég skil mjög greinilega á milli í þessum efnum. Ég er út af fyrir sig ekki að gera aths. við það sem bankinn hefur gert í þessum efnum, þó ekki væri af öðrum ástæðum en þeim, að hann er að tryggja sína hagsmuni. En áður en þau viðskipti hafa átt sér stað hafa orðið augljósar tilfærslur þar sem menn draga mjög í efa að um rauntölu sé að ræða, þ.e. þær upphæðir sem hægt hefði verið að fá. Menn spyrja: Af hverju ganga þessi viðskipti svona fyrir sig? Ég hygg að seljandi fagni, en menn skilji ekki alveg hvað fyrir kaupanda vakir í þessum efnum. Menn hafa leyfi til að spyrja svona vegna grunsemda um að milliupphæðin felist í flugleyfi, að það sé verið að meta flugleyfi til fjár, opinberir aðilar séu að selja flugleyfi. Og athugi menn þá út á hvaða braut við erum komnir.
Mér finnst satt að segja ekki viðeigandi að tala um flugmátastefnu í þessum efnum, hvort við viljum hafa eitt eða tvö flugfélög. Það er bara verið að rugla saman aðalatriðum og aukaatriðum og það sennilega af ásettu ráði. Það er allt annað mál.
Ég hjó eftir öðru sem hæstv. samgrh. sagði áðan í sinni ræðu. Hann sagði: „Ég trúi því ekki að Flugleiðir, eftir þá fyrirgreiðslu sem þær hafa fengið, sýni ekki samningalipurð í þessu máli.“ Hæstv. ráðh., fer ég ekki rétt með í þessum efnum? (Sjútvrh.: Jú, jú.) Ég vek athygli hv. þm. á hvað ráðh. er að segja. Á mannamáli heitir þetta hreinar hótanir. Þetta eru hreinar hótanir í þessum efnum. Hann segir: Ég trúi ekki öðru en að Flugleiðir, eftir þá fyrirgreiðslu sem þær hafa fengið, sýni samningalipurð í þessu máli. Ef hann talar svona hér, hvernig talar hann þá við málsaðila og hvernig ganga þessi mál yfirleitt fyrir sig? Sömu dagana er upplýst í fyrsta lagi að það sé lengi búið að standa til að lendingarleyfi í Zürich og Düsseldorf væru veitt þessu fyrirtæki. Það var dregið og alls konar skýringar gefnar um margra mánaða skeið. Vitað er að Iscargo hefur flugleyfi til Amsterdam. Það er undarlegur kapall, sem rennur allt í einu upp á 2–3 dögum, að þessi leyfi eru veitt, virðist vera. Tvö hafa verið veitt og þriðja virðist vera að koma nákvæmlega á sömu dögum og Arnarflug kaupir eignir Iscargo á verði sem er miklu mun hærra að mati dómbærra manna en fengist á frjálsum markaði.
Þetta, herra forseti, er aðalatriði þessa máls og er ruglað saman við einhver aukaatriði. Það er svona sem málið blasir við, og það er ákaflega eðlilegt að um þetta sé spurt.
Nú vil ég taka undir það og segja það enn og aftur, að okkur kemur ekki við og það á ekki að ræða á Alþingi hvernig viðskipti ganga fyrir sig milli tveggja óskyldra aðila. En vegna þess að Flugleiðir blandast inn með þessum hætti er eðlilegt að spurt sé: Hafi flugfélagið vantað Electra-vél í þessum efnum, af hverju keypti það hana ekki í Bandaríkjunum? Af hverju leitaði það ekki tilboða þar ef það vantaði slíka vél? Í þessum efnum kemur okkur þetta við sem skattborgurum og fulltrúum þeirra og sem hluta af almannavaldinu. Af hverju voru þessi viðskipti gerð svona og með þessari dagsetningu? Það var upplýst áðan, sem ég reyndar vissi ekki um, að þeir aðilar, sem hlut eiga að máli, sátu fund hjá ráðh. Hvað voru þeir að gera á þessum fundi? Sannleikurinn er auðvitað sá, að í svona máli verður ekkert sannað eða afsannað. En það hlýtur að vera ofureðlilegt, að af löggjafanum sé um þessa hluti spurt. Það hlýtur einnig að vera mjög eðlilegt, að löggjafinn hafi eftirlit með því og geri á því fullnaðarúttekt og fullnaðarkönnun, hvað hér hefur verið að eiga sér stað, þó ekki væri nema af þeirri einu ástæðu, að leyfisveitingar eru alltaf mjög vandmeðfarnar og það eru alltaf mjög miklar hættur þegar um leyfisveitingar er að ræða. En það hlýtur að vera mjög alvarlegt að leyfisveitingar í þessum efnum gangi kaupum og sölum, þær séu metnar til verðs þannig að höfð séu áhrif út í þjóðfélaginu. Maður getur sagt þetta þó ekki væri nema af þeirri einföldu ástæðu að leggja saman tvo og tvo. Þegar hv. 3. þm. Reykv. upplýsir að bankinn hafi gripið inn í þetta til að koma í veg fyrir að svo og svo margar fjölskyldur yrðu öreigar, var þá bankinn fyrstur til að grípa inn í? Var svo? Þó þeir séu sjálfstæðir merin, hæstv. samgrh. og hv. 3. þm. Reykv., verða menn að geta lagt saman tvo og tvo í málflutningi. Þetta er auðvitað skylt mál.
Enn og aftur, herra forseti. Kjarni málsins er þessi: Menn hafa fulla ástæðu til að ætla að það sé verið að misnota það feikilega vald, sem felst í veitingu flugleyfa, til að hafa áhrif á mjög óeðlileg viðskipti hér innanlands. Velti hv. þm. því fyrir sér með mér, að einhver utanaðkomandi matsnefnd, matsvald, kæmist að þeirri niðurstöðu, að þessi viðskipti hefðu farið fram á miklu yfirverði, aðilinn, sem keypti, hafi greitt allt of hátt verð til hins sem seldi. Menn gera ekki svona að gamni sínu, það segir sig alveg sjálft. Hver er þá næsta spurning í þessum efnum? Hér er búið að lýsa því af hv. 3. þm. Reykv., að opinberir aðilar, sem bankavaldið auðvitað er, bankaráðsmenn eru, hafi gripið inn í vegna þess hvað menn í fyrirtækinu Iscargo voru illa stæðir. Af hverju var slík góðmennska ekki til hjá öðrum og fyrr í þessum efnum? Á þetta eigum við að horfa, en leiða hjá okkur hins vegar hvort flugfélögin eru eitt eða tvö, hver flugmálastefnan eigi að vera. Meiri samkeppni eða minni samkeppni er algjört aukaatriði í þessu samhengi.
Sé málið dregið saman hefur raunar margt komið fram í þessari umr., fyrst hjá hæstv ráðh. og síðan óvænt, að ég hygg, hjá hv. 3. þm. Reykv., hvernig hann hefur varpað ljósi á þetta mál. En það held ég að sé eðlilegast af öllu, að um þetta sé spurt hér. Hitt væri líka eðlilegt, að eftirlitsvald á vegum löggjafans kannaði þessi viðskipti til hlítar, fengi metið raunvirði og spyr alveg til þrautar. Ég spyr hvort þessi viðskipti hafi farið fram með þessum hætti. Hvað gerði þau að veruleika? Sé svarið að flugleyfið komi í kjölfar þeirra er þar mjög alvarlegt mál á ferð.
Þá erum við komnir út á mjög alvarlegar brautir í þessum efnum. Hvað er þá næst í þessum efnum? Ég vil enn segja um upplýsingar hv. 3. þm. Reykv.: Mér kemur það ekkert við, hvers vegna bankinn greip inn í þessi viðskipti, og ég dreg ekki í efa að það sé rétt, að það séu tryggingar og það allt saman. En hann gaf upp ástæðu fyrir því, hvers vegna bankinn gerði þetta. Er þá ekki eðlilegt að hann sé spurður hvers vegna aðrir, sem eru hluti af hinu opinbera valdi, hafi haft afskipti af þessu máli, því það er augljóst að þau afskipti hafa átt sér stað? Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu.