11.03.1982
Sameinað þing: 63. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3037 í B-deild Alþingistíðinda. (2560)
Umræður utan dagskrár
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessar umr. Það er aðeins eitt atriði sem mig langar til að nefna. Eins og ljóslega kom fram hjá hæstv. samgrh. hefur kjarni þessara umræðna verið hvort flugleyfi, sem hæstv. ráðh. úthlutar, hafi haft áhrif til að hækka verulega það söluverð, sem Iscargo fékk fyrir eignir sínar í viðskiptum við Arnarflug, og hvort þau afskipti hæstv. ráðh. hafi þar með forðað eigendum Iscargo frá tilteknu fjárhagstjóni. Þetta er kjarni umræðunnar sem hér hefur farið fram.
Í þessari umræðu hefur m.a. komið fram frá hæstv. ráðh. í fyrsta lagi, að hann átti von á því, að í kjölfar viðskiptanna mundi hann fá bréf frá Iscargo, þar sem flugfélagið afsalaði sér flugleyfi til Amsterdam, og jafnframt bréf frá Arnarflugi, sem sækti um þetta sama flugleyfi. Það hefur komið fram hjá hæstv. ráðh., að þessi bréf bæði hafi honum borist, og það hefur komið fram hjá hæstv. ráðh., að hann mun taka erindunum jákvætt. spurningin er að sjálfsögðu sú, hvort aðilar að þessum viðskiptum höfðu vitneskju um þessa afstöðu ráðh. og hvort hún hefur orðið til þess að söluverð á eignum Iscargos hefur hækkað mjög verulega.
Þá hafa líka komið fram í þessari umr. — og ekki verið mótmælt — upplýsingar um hvert þetta kaupverð er. Kaupverðið, sem er skráð í samninginn, er 29 millj. ísl. kr. Þá ber að skoða hvað menn vita um verðmæti þeirra eigna sem gengu kaupum og sölum. Hv. þm. Albert Guðmundsson hefur upplýst að það er rétt hjá hv. þm. Árna Gunnarssyni, að Útvegsbanki Íslands hafi metið aðaleign Iscargos, flugvélina, á 1 millj. dollara eða 10 millj. ísl. kr. Aðrar eignir, sem þarna gengu kaupum og sölum, voru tvær: nokkrir skúrar á flugvellinum og varahlutir og lausafé. Þá er spurningin: Fyrst Útvegsbanki Íslands, viðskiptabanki fyrirtækisins, metur flugvélina á 10 millj. kr. — þá eru 19 millj. kr. eftir af kaupverðinu — er þá líklegt að matið á þessum kofum á flugvellinum og lausafénu, sem fylgdi með í kaupunum, nái þessu? Það er mjög einfalt að ganga úr skugga um a.m.k. annað atriðið, vegna þess að bæði fasteignamat og brunabótamat á umræddum húseignum liggur fyrir í opinberum gögnum. Menn þurfa ekki annað en eitt símtal á skrifstofu Húsatrygginga Reykjavíkur til þess að fá upplýst um brunabótamatið á umræddum húseignum lscargos. Þá liggur sem sé fyrir opinbert mat annars vegar viðskiptabanka fyrirtækisins, Útvegsbankans, á aðaleigninni, flugvélinni, upp á 10 millj. kr., hins vegar brunabótamat á húseignunum sem mun nánast vera sannvirði. Á hinn bóginn liggja að sjálfsögðu ekki fyrir opinberlega nemar matstölur um lausaféð. Komi það nú í ljós, að þetta opinbera mat, annars vegar á flugvélinni og hins vegar á húseignunum, er töluvert fyrir neðan þessar 29 millj. kr. sem greiddar verða af Arnarflugi fyrir umræddar eignir Iscargo, fyrir hvað hafa menn þá verið að borga umfram þá upphæð sem felst í umræddu mati?
Hv. þm. Magnús H. Magnússon gat sér til að þessi upphæð umfram raunhæft mat á eignum fyrirtækisins væri 10–12 millj. kr. Sú upphæð getur þá ekki verið greidd fyrir annað en „goodwill“ fyrirtækis sem hefur komið fram að varla á fyrir skuldum. Og „goodwill“ hjá hverjum? „Goodwill“ hjá hæstv. ríkisstj. og hæstv. samgrh.?
Það er alveg rétt hjá hæstv. viðskrh., að það stendur upp á þá Arnarflugsmenn að svara þessari spurningu. Það hefur verið upplýst hvert sé söluverðið sem þeir greiða fyrir eignir Iscargos. Það hefur verið upplýst hver er aðaleignin í þeim viðskiptum, umrædd flugvél, og hvað viðskiptabanki fyrirtækisins metur þá eign. Og brunabótamatið á húseignunum liggur fyrir í opinberum gögnum. Eðlilega væri þá nærtækast að biðja Arnarflug um nokkrar skýringar á þessu kaupmáli, eins og hæstv. viðskrh. tók fram. Það stendur upp á það að svara. Og það vill svo vel til að handhafar almannavaldsins, þ. á m. hæstv. samgrh., eiga mjög auðvelt með að fá það upplýst, vegna þess að þessir sömu handhafar almannavaldsins fara í umboði Alþingis og þjóðarinnar með hlutafjáreign í Flugleiðum sem aftur á stóran hlut í Arnarflugi. Fulltrúar ríkisvaldsins í stjórn Flugleiða eiga mjög auðvelt með að fá upplýst hjá Arnarflugi hvaða mat fyrirtækið hafi sjálft lagt á þær eignir sem það hefur verið að kaupa. Og mér er nær að halda, þó að ég sé ekki búinn að ganga úr skugga um það, að alþm. eigi hægt um vik að fá þeirri spurningu svarað. Legðu alþm. fram fsp. hér á Alþingi eða beiðni um skýrslu frá hæstv. fjmrh. eða hæstv. samgrh., þar sem þess væri óskað, að ríkisstj. beitti eignaraðild ríkisins að Flugleiðum til þess að fá upplýst frá Arnarflugi hvert er mat Arnarflugs sjálfs á þeim eignum sem það er að kaupa, þá ætti að koma í ljós hvort þeir Arnarflugsmenn meta velvild hæstv. samgrh. til fjár. Það er hins vegar að sjálfsögðu þeirra mál.