11.03.1982
Sameinað þing: 63. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3043 í B-deild Alþingistíðinda. (2564)

Umræður utan dagskrár

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Þessar umr. eru nú orðnar um margt sérkennilegar og sjálfsagt geta þær verið gagnlegar að vissu marki. Ég hafði því miður ekki aðstöðu til að vera við upphaf þeirra í dag, en ég tel mér skylt að staðfesta það sem hv. 3. þm. Reykv. sagði í sambandi við viðskipti og þátt Útvegsbanka Íslands í þessu máli, sem mjög hefur dregist hér inn í umr. og raunar verið í fréttum fjölmiðla. Ég var fullviss um það, eftir að bankastjórn Útvegsbankans hafði gert bankaráði grein fyrir þessum málum, að þar hefði verið gætt þeirrar skyldu, sem bankastjórn hefur gagnvart bankanum, að sjá um að þau viðskipti, sem bankinn tekur að sér, séu tryggð þannig að ekki hljótist skaði af. Það tel ég að hafi verið gert hvað þessi viðskipti varðar.

Ég ætla ekki að fara út í að svara einstökum þm., en ég vil segja það við hv. 3. þm. Vestf., sem er því miður farinn héðan, að það er ekki minna atriði í þessu máli, sem ég vænti að hafi komið hér fram, að allar sjálfskuldarábyrgðir, sem fylgdu áður viðskiptum Iscargos, fylgja enn í sambandi við yfirtöku Arnarflugs ásamt persónuábyrgðum sem koma til viðbótar. Trygging bankans er því að öllu leyti pottþétt.

Ég tel að það sé rétt að láta það koma fram hér, að eins og allir hv. alþm. eiga að vita hafa ríkisbankarnir, Útvegsbankinn og Landsbanki Íslands, þá skyldu að greiða fyrir viðskiptum landsins við erlenda aðila. Þess vegna hljóta þessir viðskiptabankar að verða að taka ákvarðanir um erlendar ábyrgðir vegna viðskiptamanna sinna, t.d. hvað varðar skipakaup, flugvélakaup o.s.frv. Hlýtur þá að vera eðlilegt að draga þá ályktun, að að sjálfsögðu fylgir þessu alltaf einhver áhætta og ekki síst þegar gengi íslenskrar krónu er óstöðugt, svo að ekki sé meira sagt. Viðkomandi bankastjórnir verða því oft að tefla á tvær hættur og krefjast meira veðs og trygginga af viðskiptamönnum sínum en venja er til hjá erlendum aðilum. Um þetta liggja fyrir ýmsar upplýsingar sem er óþarfi að rekja hér. Ég tel að kjarni þessa máls sé sá, að hér hafi vel til tekist. Arnarflug hf. hefur nú keypt þetta fyrirtæki, Iscargo, eignir þess, og þar með yfirtekið skuldir fyrirtækisins, bæði erlendar ábyrgðir við Útvegsbankann og aðrar skuldir sem því hafa fylgt. Arnarflug hefur látið bankanum í té fullnægjandi veð og skuldbindingar um greiðslu ábyrgðarskulda við bankann. Arnarflug kemur þannig í staðinn fyrir Iscargo.

Ég tel að það ætti að vera nokkuð ljóst öllum sem um þessi mál hugsa, að flugrekstur er áhættusamur atvinnuvegur í heiminum. Um þetta eru mörg og nýleg dæmi sem væri hægt að tala langt mál um. Hins vegar er ljóst að mínu mati, að það er alger lífsnauðsyn fyrir Ísland að innlendir aðilar séu ávallt tilbúnir að þora að stunda þessa atvinnustarfsemi. Ég tel að það sé ekkert óeðlilegt við þá hæfilegu samkeppni, sem hér hefur verið talað um, og það, sem hefur komið fram hjá hæstv. samgrh. um stefnu í flugmálum, að hafa lítið flugfélag í samkeppni við stóra risann, sem allir viðurkenna, Flugleiðir, til að veita aðhald með hæfilegri samkeppni.

Ég held að það sé einnig hægt að deila endalaust um hversu örugg veð eru í flugvélum, alveg eins og það getur verið að vissu mati álitamál, hvort matsverð á ýmsum skipum er í raun og veru nægjanlegt og hvort þau mundu seljast fyrir það. Hvað halda menn t.d. að veð í flugvélum og eignum Flugleiða hf. væru mikils virði ef rekstur þeirra stöðvaðist allt í einu og ætti að gera fyrirtækið upp með sölu eignanna? Halda menn að þessi veð mundu duga til greiðslu ábyrgðar Landsbanka Íslands og ríkissjóðs í sambandi við þá fyrirgreiðslu sem fyrirtækið hefur fengið? Ég held að sé alveg ljóst að um það yrði aldrei að ræða að menn gætu hugsað sér það.

Ég verð að segja að sá hluti þessara umr., sem ég hef hlustað á, hefur valdið mér að vissu leyti heilabrotum um hvernig umr. geta þróast á einkennilega vegu um svona mál. Ég er ekki að segja með þessu að ég sé á móti því að mál eins og þetta, sem er að sjálfsögðu ofarlega á baugi núna í umræðum manna á milli, sé tekið upp utan dagskrár á hinu háa Alþingi. En ég skrifaði að gamni mínu hjá mér þegar þeir voru að tala áðan, nokkrir hv. þm., hvernig fullyrðingarnar komu fram: Flugleyfin eru notuð sem verslunarvara. Verð á eignum er allt of hátt, mörgum milljónum of hátt að mati dómbærra manna. Engin not eru fyrir Electra-flugvélina. Og svo kom: Í svona máli verður hvorki sannað né afsannað. — Kannast hv. þm. við svona orðræður hjá vissum þm. hér á Alþingi?

Því miður er vinur minn Magnús H. Magnússon farinn úr salnum, en ég undraðist stórlega ræðu hans í þessum umr. Hann er þó fyrrv. samgrh. og hann man ósköp vel hvernig hann varð að taka á ýmsum þáttum slíkra mála þann stutta tíma sem hann var samgrh. Þess vegna undraðist ég stórlega þær fullyrðingar sem hann bar hér á borð í sambandi við þetta mál. Ég held að hann hafi talað langt umfram það sem hann hefur meinað. Ég tek það þannig að hann hafi af einhverjum ástæðum ekki skilað frá sér því sem hann ætlaði raunverulega að segja í þessum málum, og virði ég honum það til vorkunnar.

Ég tel ekki ástæðu, herra forseti, til að eyða tíma lengur í þessum miklu umr. og ætlaði í raun og veru ekki að taka til máls. Ég taldi þó rétt að koma upp til að staðfesta það sem hv. 3. þm. Reykv, hefur sagt í dag, þó að ég hafi ekki hlustað á allar hans ræður. Þegar við, sem förum með það hlutverk að gegna störfum í bankaráði eins ríkisbankans, fréttum um þetta mál, eins og hann réttilega lýsti, töldum við ástæðu til að fylgjast með málinu. Það er hægt að segja bankastjórn Útvegsbankans það til hróss, að hún lagði sig fram um að láta okkur hafa alla þræði málsins frá upphafi, frá því að afskipti Útvegsbankans af þessu fyrirtæki, sem hér var talað um, Iscargo, hófust. Þetta fyrirtæki, Iscargo, hóf viðskipti við Útvegsbankann 1969 og hefur verið allar götur síðan fastur viðskiptavinur bankans. Þess vegna var ástæðulaust annað en að við fengjum að fylgjast vel með því, ekki síst þegar þetta var komið í fjölmiðla. Það er að sjálfsögðu skylda okkar sem bankaráðsmanna að ganga úr skugga um og fullvissa okkur um að bankastjórn gangi frá málum eins og henni ber, að bankinn sé fulltryggður fyrir þeim lánum sem hann lætur af hendi.

Viðskrh. (Tómas Árnason): Herra forseti. Það eru örfá orð. Það er orðin löng umr. um þetta mál.

Það er auðvitað hægt að hugsa sér að svona viðskipti geti farið fram með tvennum hætti: Annars vegar þannig að eignirnar séu keyptar, Arnarflug kaupi eignir Iscargos hf., eða keypt hlutabréf, félagið keypt upp.

Iscargo hf. hefur haft flugrekstrarleyfi til Amsterdam, og ef annar aðili kaupir félagið upp, er þá eðlilegt að flugmálaráðh. segi: Ég dreg þetta leyfi inn — ef hann treystir þeim aðila sem kaupir? Er það eðlilegt? Og er hægt að segja í slíku sambandi að það sé verið að versla með þetta af hálfu ráðh? Ég held ekki. Viðskiptin á milli félaganna eru sérstakt mál. Leyfisveiting af hálfu ráðh. er auðvitað annað mál eða hvort hann dregur til baka leyfi sem hefur verið veitt í ákveðnu skyni.

Mér finnst eðlilegt að það liggi fyrir upplýsingar um eignir Iscargos. Ég geri ráð fyrir að það sé erfitt að meta verð flugvélar. Það getur verið að hún sé í lægra verði eða hærra verði í einn tíma en annan og það geti hlaupið á háum upphæðum. Ég kann ekki að meta slíkt eins og sakir standa. En mér finnst, þegar ég velti þessu meira fyrir mér, að það sé eitt viðskipti á milli tveggja félaga og síðan hvernig farið er með flugrekstrarleyfi sem hér höfðu verið til umr. Það er að mínu mati annað mál.