15.03.1982
Efri deild: 55. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3054 í B-deild Alþingistíðinda. (2578)
3. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands
Forseti (Helgi Seljan):
Vegna orða hv. 4. þm. Vestf. vil ég taka það fram, að ég var að fá staðfestingu á þessari ósk hæstv. ráðh. nú rétt í þessu, að hann óskaði eindregið eftir að það væri við þessa umr. sem hann tæki til máls en ekki við 3. umr. Ég mun því að sjálfsögðu, miðað við allar aðstæður, líta með velvilja til þess, að hv. 4. þm. Vestf. fái að gera stutta athugasemd við frekari umr. ef honum þykir ástæða til í framhaldsumræðum um þetta mái. En ég var að fá staðfestingu á því núna, að það væri við þessa umr. málsins sem hæstv. ráðh. óskaði eftir að tala. Ég hafði vænst þess, að það gæti orðið við 3. umr., en svo mun ekki vera. Hlýt ég því að fresta umr. um þetta mál og taka það út af dagskrá.