15.03.1982
Neðri deild: 51. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3055 í B-deild Alþingistíðinda. (2583)

169. mál, loftferðir

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Frv. þetta, 169. mál þingsins, er frv. til l. um breyt. á lögum um loftferðir. Í því eru smávægilegar breytingar á 64. gr. laganna. Breytingin miðar að því að rýmka eignarnámsheimildir loftferðalaga nokkuð frá því sem hefur verið. Eignarnámsheimildir 64. gr., eins og hún er í lögum, virðast takmarkast við það, að einhvers konar mannvirkjagerð sé tilefni þess, að eignarnám sé talið nauðsynlegt. Ljóst er að þær aðstæður geta skapast, að rétt sé talið og nauðsynlegt að taka fasteignarréttindi eignarnámi, jafnvel þótt ekki sé mannvirkjagerð til að dreifa sem gefi tilefni til eignarnáms. Af þeim sökum er lagt til í þessu frv. að breyta greininni og hún rýmkuð nokkuð frá því sem nú er.

Samgn. hefur fjallað um málið og varð sammála um að leggja til að það yrði samþykkt eins og það var lagt fram hér í hv. deild.