16.03.1982
Sameinað þing: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3070 í B-deild Alþingistíðinda. (2601)

348. mál, lántökur ríkissjóðs og ríkisstofnana

Fyrirspyrjandi (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Hæstv. fjmrh. hefur svarað þessari fsp. sem, eins og ég sagði áðan, var borin fram fyrir áramót. Það ætti að vera þannig með þær upplýsingar, sem hér um ræðir, að það tæki ekki svo langan tíma fyrir Alþingi að fá þær sem raun ber vitni.

Eins og hæstv. ráðh. gat um áðan hafa fjh.- og viðskn. beggja deilda verið nánast í morgun gefnar upplýsingar varðandi 2. tölul. þessarar fsp. og þá miðað við síðustu áramót. Ekki væri óeðlilegt að slíkar upplýsingar sem hér komu fram og ekki er hægt að gera að umræðuefni sérstaklega lægju fyrir tvisvar á ári, þ.e. á miðju ári og svo skömmu eftir áramót, til þess að þm. gætu gert sér grein fyrir því, hvernig framkvæmd lánsfjáráætlunar hefur átt sér stað.

Ég vil að lokum mega spyrja hæstv. ráðh. hvort ekki sé að vænta innan tíðar greinargerðar eða skýrslu hans um niðurstöður á ríkisreikningi ársins 1981 samkv. bráðabirgðatölum ríkisbókhaldsins. Slíkar skýrslur hafa verið gefnar frá því 1976, og ég tel að slíku eigi að halda áfram og gera það fyrr en verið hefur, — fyrr en er komið að því að ríkisreikningurinn, A-hlutinn, er lagður fram. Það fer að vísu eftir því, hvenær þinglok eru, hvort ríkisbókhaldi tekst að koma ríkisreikningi út fyrir þau. Þess vegna er eðlilegt og nauðsynlegt að Alþingi fái slíka skýrslu miklu fyrr en í miðjum marsmánuði. Ég vil leyfa mér að spyrja ráðh. hvort þessarar skýrslu sé ekki að vænta innan tíðar.