16.03.1982
Sameinað þing: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3071 í B-deild Alþingistíðinda. (2603)
348. mál, lántökur ríkissjóðs og ríkisstofnana
Fyrirspyrjandi (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. þessi svör og vænti þess, að sú skýrsla, sem hér hefur verið lögð fram undanfarin ár, komi innan tíðar, eins og hann orðaði það. Það er einmitt vegna þess að uppgjör ríkissjóðs skömmu eftir áramót er á greiðslugrunni og þá er það til samanburðar við þau fjárlög sem samþykkt hafa verið. Síðan er þess að vænta, að áður en Alþingi lýkur liggi ríkisreikningurinn fyrir samkvæmt þeim tölum sem til hans er aflað, þ.e. þá með öðrum hætti en greiðslugrunnstölur. Það eru nánast uppgjörstölur samkv. þeim bókhaldsreglum og lögum sem um ríkisbókhaldið gilda.