16.03.1982
Sameinað þing: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3073 í B-deild Alþingistíðinda. (2606)
324. mál, opinber stefna í áfengismálum
Fyrirspyrjandi (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. þessi svör. Ég vil minna á að þegar frv. til l. um ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu var til afgreiðslu hér í deildinni fyrir ári eða svo varaði ég mjög við því, að viðskiptakjaraþátturinn yrði tekinn út úr kaupgjaldsvísitölunni einmitt á þeim tíma þegar fyrirsjáanlegt var að viðskiptakjör mundu batna. Ég þóttist færa fyrir því rök, að launþegar mundu verða tregir til að taka viðskiptakjörin inn í kaupgjaldsvísitöluna ef stjórnvöld og Alþingi héldu þannig á málum að viðskiptakjaraþátturinn verkaði einungis til lækkunar á almenn laun í landinu, en væri hins vegar tekin úr sambandi undireins og viðskiptakjörin færu batnandi. Ég vil vænta þess og vona að það fordæmi, sem hér hefur komið í ljós, verði ekki til þess að launþegahreyfingin snúist öndverð gegn því, að viðskiptaþátturinn verði í næstu samningum áfram hafður með í útreikningi kaupgjaldsvísitölunnar, vegna þess að ég tel að sú viðmiðun hafi verið til bóta og sé bæði heilbrigð og eðlileg.
Ég vil svo segja það út af þeim ummælum sem hæstv. félmrh. hafði um kjör launþega á s.l. ári, að í fyrsta lagi var verðbólgan meiri á árinu 1981 en heitið hafði verið, m.a. vegna þess að efnahagsráðstafanir ríkisstj. fóru úr böndunum á ýmsan hátt og líka vegna þess að nauðsynjavörur, sem kallaðar eru, hækkuðu mun meira en nemur þeim uppbótum sem launamenn fengu með hækkun verðbótavísitölu.
Ég vil í öðru lagi minna á það, að skattalækkunin, sem heitið var um áramótin 1980–1981, varð engin frekar en sú skattalækkun sem hæstv. félmrh. hét í des. 1978 að yrði á árinu 1979. Bæði þessi ár, bæði í fyrra og hittiðfyrra, þyngdust skattar á verulegum hluta launþega, og þótt finna megi hóp skattgreiðenda þar sem tekjuskattur lækkaði heldur frá fyrra ári, takmarkaðan hóp, liggur hitt fyrir, að kjaraskerðingin vegna skerðingar vísitölunnar varð mun meiri. Og eins og ég sagði áðan fékk ríkissjóður meira í hlut sinn í tekjuskattstekjur á s.l. ári en fjárlög gerðu ráð fyrir. Sem sagt: Ríkissjóður græddi en tapaði ekki á þeim breytingum sem gerðar voru á tekjuskattinum á s.l. ári.
Ég vil svo í þriðja lagi aðeins segja að það sé spélegt að heyra þennan mann, sem skrifaði leiðarann um „Alþingi götunnar“ um þetta leyti árs 1978, halda því fram, að 1.5% skerðing vegna búvöru, sem afnumin var, skuli jafngilda 7% hækkun 1. mars. 7% hækkunin var fyrr á árinu. Hins vegar dreifðist 1.5 % skerðing vegna búvöru á þrjá mánaðardaga síðar á árinu. Ég skal ekki við þetta tækifæri rifja upp ýmsar ræður sem Lúðvík Jósepsson hélt um prósentureikning og hversu mætti blekkja með honum, en það er ekki hægt að taka prósentureikning með þessum hætti til umræðu hér á hinu háa Alþingi.
Ég skal svo ekki lengja þessar umr. Ég legg aðeins áherslu á það sem ég var búinn að vara við áður: Lögin um ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu urðu launþegum til tjóns að því er varðar þann þátt þeirra sem snertir viðskiptakjörin.