16.03.1982
Sameinað þing: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3074 í B-deild Alþingistíðinda. (2607)

324. mál, opinber stefna í áfengismálum

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Það er ekki nokkur vafi á að afnám á skerðingarákvæðum Ólafslaga var verulegur ávinningur fyrir verkalýðshreyfinguna og verkafólk í landinu. Verkalýðshreyfingin hafði gert um þetta samþykkt á þingi sinu haustið 1980, ef ég man rétt, og hafði gert þessa kröfu í kjarasamningunum, sem voru undirritaðir í okt., 27. okt. minnir mig, 1980, en þessi krafa náðist þá ekki fram. Það var þess vegna pólitísk ákvörðun að standa þannig að málum að þessi krafa verkalýðshreyfingarinnar varð að veruleika og skerðingarákvæði Ólafslaga voru felld úr gildi á þremur dagsetningum á árinu 1981. Það er svo aftur annað mál, að verkalýðshreyfingin féllst á að þessi skerðingarákvæði yrðu í gildi 1. mars 1982 samkv. þeim skammtímasamningum sem gerðir voru seint á s.l. ári.

Hv. þm. Halldór Blöndal kom með nokkrar aths. við minn málflutning og ég ætla að svara þeim.

Í fyrsta lagi sagði hann að verðbólgan árið 1981 hefði orðið meiri en ríkisstj. hét. Í yfirlýsingum ríkisstj. var alltaf rætt um 40% verðbólgu innan ársins 1981. Útreikningar ríkisstj. og Þjóðhagsstofnunar á kaupmætti launa samkv. efnahagsráðstöfunum á árinu 1981 gerðu hins vegar ráð fyrir nokkru hærri verðbólgutölu þannig að verðbólgan varð minni en gert var ráð fyrir í þeim áætlunum sem kaupmáttarreikningarnir voru byggðir á. Þess vegna varð ávinningur verkalýðshreyfingarinnar og launafólks í landinu af ráðstöfunum ríkisstj. meiri en reiknað var með í þeim áætlunum sem gerðar voru í upphafi ársins 1981.

Í annan stað, herra forseti, er því haldið fram, að skattalækkunin hafi engin orðið. Það er rangt. Sjúkratryggingagjald var fellt niður af lægri tekjum þannig að það nam 1.5% í kaupi.

Í þriðja lagi hef ég að sjálfsögðu aldrei haldið því fram, herra forseti, að 1.5% niðurfelling á launafrádrætti vegna launaliðar búvörugrundvallar jafngilti 7% í kaupi. Því fer víðs fjarri. Launafólk fékk þessa skerðingu aftur með þrennu móti. Í fyrsta lagi með afnámi á skerðingarákvæðum Ólafslaga upp á 1.5%, í öðru lagi með lækkun á sköttunum upp á 1.5% og í þriðja lagi með því að verðbólgan á árinu 1981 varð minni en ella hefði verið. Þess vegna var það sem hér var um að ræða slétt skipti. Kaupmáttur launa stóð á sama grundvelli og þeir kjarasamningar sem gerðir voru seint á árinu 1980.