16.03.1982
Sameinað þing: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3076 í B-deild Alþingistíðinda. (2609)

324. mál, opinber stefna í áfengismálum

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Aðeins örfá orð þar sem ég hef aðeins heimild til að gera örstutta aths.

Hv. 1. þm. Reykv. gerði tilraun til að réttlæta kaupránsaðgerðir ríkisstjórnar sinnar enn þá einu sinni. Það er greinilegt að „Alþingi götunnar“ í þessu landi þarf að búa sig undir að verjast þeirri pólitík áfram og það mun verða hvatt til þess eftir því sem nauðsyn krefur.

Staðreyndin er hins vegar sú, að þær aðgerðir, sem hæstv. ríkisstj. hans greip til á sínum tíma, voru ekki einasta kaupránsaðgerðir, ekki einasta höfðu þær það í för með sér að rífa niður grundvöll kjarasamninga til margra ára, heldur höfðu þær engin áhrif til lækkunar verðbólgu. Til þess voru þó refirnir skornir.