16.03.1982
Sameinað þing: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3077 í B-deild Alþingistíðinda. (2612)

324. mál, opinber stefna í áfengismálum

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það eru auðvitað engin tök á því að ræða í fsp.-tíma um stöðuna í kjaramálunum. Verðbótaþátturinn er aðeins einn þáttur þess máls sem hér er um að ræða. En það getur vart nokkur, sem hefur horft á og fylgst með störfum, tali og öðru hjá hæstv. félmrh., eins og raunar fleiri áberandi mönnum í Alþb., orða bundist eftir að verða vitni að því æ oftar hvers konar sinnaskiptum þeir menn taka eftir því hvort þeir eru aðilar að ríkisstj. eða hvort þeir eru í stjórnarandstöðu.

Um það eru skiptar skoðanir hvort rétt sé að miða verðbætur við viðskiptakjaravísitölu. Eigi að síður var það gert og var í gildi nokkurn tíma. En hvað sem mönnum finnst um hvort það er rétt eða rangt er hitt náttúrlega ótæki, að slíkt kerfi skuli vera í gildi þegar viðskiptakjör fara versnandi, þegar það þýðir kauplækkun hjá launafólki, en síðan kippt úr sambandi þegar viðskiptakjör fara batnandi og það ætti að þýða kjarabætur hjá launafólki. Þetta er auðvitað meginmálið í þessum umr. Það er athyglisvert, að það er undir forustu Alþb., þegar það er aðili að ríkisstj., sem það gerist að viðskiptakjaravísitölu er kippt úr sambandi þegar launakjör launafólks í landinu ættu að fara batnandi vegna batnandi viðskiptakjara. Þetta er mergurinn málsins í þessum þætti þess. Þetta er athyglisvert ef litið er til þess, hvað hæstv. félmrh. — og ekki síst hann — hefur sagt, gert og hvernig hann hefur hagað sér á undangengnum árum.

Ég heyri það á hæstv. ráðh., eftir því sem hann talaði hér áðan, að nú undirbýr hann ákallið til „Alþingis götunnar“. Hvort honum þykir sá tími, sem nú fer í hönd, henta til slíks kemur auðvitað í ljós í áframhaldinu. En ekki dettur mér í hug að halda það sem hv. 1. þm. Reykv. vék að áðan, að þetta sé vegna þess að hæstv. félmrh. sé að batna. Það á ekki við hann orðatiltækið „batnandi mönnum er best að lifa“. Það á ekki við hann í þessu tilfelli vegna þess að í forustusveit Alþb., fyrst og fremst í hinni pólitísku forustu, eru tækifærissinnar sem nota hvert einasta tækifæri, hvenær og hvar sem það gefst, til að spila á strengi sem eru fyrst og fremst þess eðlis að það er tækifærismennskan sem er í hávegum höfð.