16.03.1982
Sameinað þing: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3078 í B-deild Alþingistíðinda. (2615)
324. mál, opinber stefna í áfengismálum
Magnús H. Magnússon:
Herra forseti. Hæstv. félmrh. heldur sig enn þá við „slétt skipti“. 7% kauplækkun tók gildi 1. mars, verkaði í 10 mánuði á síðasta ári. Hún er reyndar enn þá inni í kerfinu og verður áfram. Gróði af því að taka Ólafslög úr sambandi var 0.4% 1. sept., eins og kom fram hjá hæstv. ráðh., m.ö.o. í fjóra mánuði, og 1.3 % frá 1. des. í einn mánuð. Ef þetta er reiknað, út frá sama grundvelli og 7% er ekki mikið eftir af því sem kemur til baka.
Hann talaði um skattalækkun upp á 1.5%. Það er rétt að skattalækkun var nokkur hjá litlum hluta fólks. Út af fyrir sig er rétt að þakka það. Síðan er þá eftir verðbólgan, minni verðbólga. Með mikilli vísitöluleikfimi tókst að koma vísitölunni á milli tveggja dagsetninga niður í 41.1 %, alls ekki frá ári til árs. Það vantar mikið á að það séu 40% eða 41.t% að meðaltali frá ári til árs, heldur bara á milli tveggja dagsetninga og i engan tíma annan. En ef það ætti að slétta þessi 7% út, fá „slétt skipti,“ þá þarf að miða við að vísitalan hefði ella orðið nálægt 100%.