16.03.1982
Sameinað þing: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3080 í B-deild Alþingistíðinda. (2619)

324. mál, opinber stefna í áfengismálum

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Mér finnst satt að segja nokkuð sérkennilegt að kynnast því hér, að búið er að halda hverja ræðuna á eftir annarri með árásum bæði á mig persónulega og minn flokk. — Þar hefur verið framarlega í flokki hv. 1. þm. Reykv., þar hefur verið þm. eins og hv. þm. Karvel Pálmason og fleiri — án þess að ég hafi í raun og veru getað svarað innan ramma þingskapanna. Ég ætla ekki að fara að svara efnisatriðum sem hér komu fram vegna þess að til þess hef ég ekki heimild innan ramma þingskapanna. En ég vil gera athugasemd við þau vinnubrögð að nýta fyrirspurnatíma Alþingis með þessum hætti.

Ég vil að lokum aðeins nefna eitt efnisatriði í þessu máli sem er þetta: Árið 1981 varð kaupmáttur launa a.m.k. svipaður eða betri en gert hafði verið ráð fyrir við frágang kjarasamninganna í lok ársins 1980. Í öðru lagi: Það er í allra mesta lagi svo að mati Alþýðusambands Íslands, að um hafi verið að ræða kaupmáttarskerðingu á kauptöxtum nokkuð innan við 1%. Og ég segi í þriðja lagi: Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann var betri á árinu 1981 en á árinu 1980.