16.03.1982
Sameinað þing: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3081 í B-deild Alþingistíðinda. (2620)

324. mál, opinber stefna í áfengismálum

Fyrirspyrjandi (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég vil nú segja það fyrst, að ræðutími.ráðh. er býsna rúmur hér á hinu háa Alþingi. Það er að vísu svo, að ráðherrar mega ekki taka til máls svo oft sem þeir vilja í fyrirspurnatímum. Þá eru þeir settir á sama bekk og þm. og mega einungis tala tvisvar. En þegar til umr. eru lagafrv. eða þáltill. geta ráðherrar staðið upp svo oft sem þeim sýnist. Við höfum þurft að horfa á þennan hæstv. félmrh. standa býsna oft upp í umr. í Nd. um ýmis mál og þó stillt okkur um að kveðja okkur hljóðs um fundarsköp út af því að við getum ekki svarað honum innan ramma þingskapa. Ég held að hæstv. ráðh. sé lítil vorkunn þó að hann reyni að temja sér — þennan stutta tíma sem hann á eftir að vera ráðh. — að tala einungis tvisvar í máli, því að þau verða örlög hans næsta áratug a.m.k., þegar þessi ríkisstj. fellur, eins illa og hún hefur haldið á málum. Það þarf a.m.k. hálfa mannsævi til þess að gleyma þeim ósköpum sem yfir hafa dunið á síðustu tveim árum.

En ég vil svo víkja að því sem hann segir um lífskjörum. Hann sagði: Kannað hefur verið, sagt er og reiknað hefur verið út. — Ég skora á hann að bera saman með mér hver kaupmátturinn varð á fyrri hluta s.l. árs og bera hann saman við þær vonir og við þá útreikninga sem hagfræðingur Alþýðusambands Íslands gerði fyrir síðasta Alþýðusambandsþing. Við skulum reikna út kaupmáttinn á þessum tveimur stöðum, og það geta þeir menn staðfest með mér sem hafa kynnt sér þá útreikninga, að kaupmátturinn fór langt niður úr því sem Alþýðusambandið hafði búist við síðast þegar Alþýðusambandsþing var haldið. Niðurstaðan af því, hvernig ríkisstj. skerti samningana í árslok 1980, niðurstaða verkalýðshreyfingarinnar varð sú að gera einungis bráðabirgðasamninga ári síðar, af því að verkalýðshreyfingin sá fram á það, að ef hún gerði raunverulega samninga, semdi í alvöru, mundi ríkisstj. nota fyrsta tækifærið sem henni gæfist til þess að rifta samningunum, til þess að ógilda þá og til þess að keyra kaupmáttinn niður aftur, eins og gert var með áramótaráðstöfununum sem hæstv. forsrh. lýsti fagurlega þegar honum tókst best upp á gamlárskvöld fyrir rúmu ári.