16.03.1982
Sameinað þing: 65. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3108 í B-deild Alþingistíðinda. (2649)

Umræður utan dagskrár

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Vegna þeirra umræðna, sem hér hafa orðið, held ég að nauðsynlegt sé að rifja upp hvert er tilefni þessara umræðna.

Þingflokkur Alþfl. gerði ályktun í gær um að beina fyrirspurn til mín, og hv. formaður þingflokks Alþfl. óskaði eftir þessum umr. Fyrirspurnin til mín var ein og aðeins ein, hvort ég hefði kveðið upp úrskurð samkv. 8. gr. laga um Stjórnarráð Íslands og að ég greindi þá frá þeim úrskurði. Þessu svaraði ég á þá lund, að slíkur úrskurður hefði ekki verið kveðinn upp og ekki þótt þörf á því. Ef hins vegar til þess kæmi, að úrskurður yrði kveðinn upp samkv. þessari lagagrein, mundi ég skýra opinberlega frá honum.

Síðan koma hv. þm. hér hver eftir annan og deila á mig fyrir að ég hafi ekki svarað hinum og þessum fyrirspurnum sem þeir láta koma fram í ræðum sínum hér utan dagskrár. Hv. þm. verða að gera sér grein fyrir því, hvert er tilefni umr. og að fyrirspurninni hefur verið svarað.

Varðandi það mál að öðru leyti sem hér hefur verið rætt, svokallað Helguvíkurmál, hefur hæstv. utanrrh. gert ríkisstj. ítarlega grein fyrir gangi þess máls. Það hefur verið rætt í ríkisstj. á fleiri fundum en einum og verður áfram.

Ég ætla að það sé ekki algengt að forsrh. sé í umr. á Alþingi krafinn sagna um það, hvort hann beri traust til einstakra ráðh. í ríkisstj. En vegna þess, að hv. formaður Alþfl. hefur sérstaklega beint slíkri fsp. til mín, og til þess að fyrirbyggja að það verði rangtúlkað í málgögnum stjórnarandstæðinga ef ég svara ekki, þá vil ég taka það fram, að ég taldi mikinn feng og styrk fyrir ríkisstj„ þegar Ólafur Jóhannesson féllst á að taka að sér stjórn utanríkismála við myndun núv. ríkisstj., og að hæstv. utanrrh. hefur notið og nýtur trausts forsrh.