17.03.1982
Efri deild: 56. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3120 í B-deild Alþingistíðinda. (2668)

3. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Þetta hefur verið misskilningur, eins og hæstv. forseti sagði, að hæstv. menntmrh. ætlaði að koma á þennan fund. Ég gekk út frá því að hann kæmi. Ég hef hins vegar ekki óskað eftir því að hann kæmi. En ég vek athygli á því, að í þessu máli liggja fyrir gagngerðar brtt. og ég lít svo á að fyrst hæstv. menntmrh. telur ekki ástæðu til að koma og tjá sig um þessar brtt. sé hann ekki andstæður þeim.