17.03.1982
Efri deild: 56. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3121 í B-deild Alþingistíðinda. (2675)

3. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Þessi umr. hefur nú þegar sýnt það sem ég sagði áðan og sagði fyrr í umr. um þetta frv., að þessar brtt. eru svo ruglingslegar, rugla svo allri mynd frv., að einfaldasta leiðin er að fella þær allar nema þá fyrstu. Þá þurfa menn ekkert að vera að skaka hér fram og aftur um það, hvernig eigi að bera hér upp einstakar setningar og hvernig þetta eigi að falla inn í myndina. Þessi umr. um þingsköp hefur þegar sýnt að það er mjög óljóst í hugum manna hvernig eigi að fara með málið efnislega. En formlega liggur málið alveg ljóst fyrir.

Hv. flm. Þorv. Garðar Kristjánsson og Salome Þorkelsdóttir fluttu till. um að 3. gr. frv. orðist í heild sinni eins og þar segir. Brtt. eru um að orðalagi 3. gr. í heild sinni verði algerlega breytt. Það er ekki till. um að neitt orðalag úr upphaflegu 3. gr. standi eftir eins og hún liggur fyrir. Þess vegna er ljóst að brtt. við 3. gr. verður að bera upp eins og hún liggur fyrir, alveg óháð því hvað stendur í 3. gr. frv. upphaflega. Síðan, þegar búið er að afgreiða þá brtt., geta menn hugsanlega farið að greiða atkv. um 3. gr. eins og hún liggur fyrir i frv. og einstaka liði þar. En það er ekki hægt að færa sig í atkvgr. á milli annars vegar þess orðalags, sem er í brtt., og hins vegar þess orðalags, sem er í frv. Fyrst verður að afgreiða brtt. algerlega vegna þess að hún er um orðalag greinarinnar í heild sinni, og síðan er hægt að taka til við einstakar mgr. í 3. gr. eins og hún liggur fyrir í frv.