17.03.1982
Neðri deild: 52. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3130 í B-deild Alþingistíðinda. (2694)
60. mál, lyfsölulög
Frsm. (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til l. um breyt. á lyfsölulögum, nr. 30 frá 1963, og liggur nái. fyrir á þskj. 432, en frv. er 60. mál þingsins. Efni þessa frv. er sú breyting á lyfsölulögum, að heimilt verði að veita Háskóla Íslands lyfsöluleyfi vegna kennslu og rannsókna í lyfjafræði, en núgildandi lyfsölulög heimila einungis að veita einstaklingi slíkt leyfi.
Heilbr.- og trn. hv. deildar hefur fjallað um frv. og orðið sammála um að mæla með samþykkt þess eins og það kom frá hv. Ed.