02.11.1981
Neðri deild: 8. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í B-deild Alþingistíðinda. (270)
18. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Ég má til með, að gefnu tilefni áður, að biðja hv. þm. um að grandskoða það, áður en þeir flytja tillögur sínar, hvar viðkomandi mál eftir venju á heima. Enginn vafi er á að þetta mál hlýtur að eiga heima í félmn., og fyrir því er það, að forseti leggur þetta til, því að hv. flm. lagði enga nefnd til þegar hann flutti sína framsögu með þessu máli. Því veitti ég athygli, enda skrifa ég það alltaf við um leið og till. er flutt. Ég hef þess vegna tekið að mér að flytja tillögu um nefnd og hún er þessi. Ég er 1. flm. að þessari vísun til nefndar.