18.03.1982
Sameinað þing: 66. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3137 í B-deild Alþingistíðinda. (2709)
238. mál, mörk lögsagnarumdæma
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég vil mjög taka undir það, sem hv. flm. sagði áðan um nauðsyn þess að endurskoðun fari fram á mörkum núgildandi lögsagnarumdæma, og mælast til þess við þá nefnd, sem fær málið til meðferðar, að hún hraði afgreiðslu þess svo að það nái fram að ganga á þessu þingi.
Það er ekki ofsögum sagt sem hann sagði áðan um þau margvíslegu óþægindi sem menn víðs vegar um landið hafa af úreltri skipan þessara mála. Það er hægt að nefna fleiri dæmi en hann taldi um það, að ekki fer saman viðskiptasvæði og lögsagnarumdæmi, sem auðvitað gerir hvort tveggja í senn að torvelda eðlilega viðskiptahætti og veldur auk þess margvíslegum útgjöldum og töfum fyrir viðkomandi. Ég álít því að þetta frv. sé orð í tíma talað og að hér sé mjög þörfu máli hreyft.