18.03.1982
Neðri deild: 54. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3144 í B-deild Alþingistíðinda. (2719)
209. mál, sveitarstjórnarkosningar
Frsm. (Ingólfur Guðnason):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 463 um frv. til l. um breytingu á lögum um sveitarstjórnarkosningar. Allshn. hefur fjallað um málið á fundi og samþykkt að mæla með því með ákvæði til bráðabirgða sem birt er á þskj. 464.
Eins og hæstv. félmrh. gat um við umr. í gær er nauðsynlegt að bæta inn í þessi lög ákvæði til bráðabirgða. Það er tæknilegs eðlis þar sem nú er liðið mjög að væntanlegum sveitarstjórnarkosningum. Þetta ákvæði til bráðabirgða er flutt að beiðni hagstofustjóra og hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Á eftir 3. gr. komi ákvæði til bráðabirgða:
Við hinar almennu sveitarstjórnarkosningar, sem fram eiga að fara 22. maí 1982, skal leggja kjörskrá fram einum mánuði fyrir kjördag og skal hún liggja frammi í tvær vikur.“
Þetta er nokkur stytting á þeim tíma sem kjörskrá skal liggja frammi samkv. núgildandi lögum. Þetta ákvæði til bráðabirgða er tæknilegs eðlis og er sett vegna þess, hve stutt er til væntanlegra sveitarstjórnarkosninga.
Herra forseti. Ég hef í sjálfu sér ekki fleira um þetta að segja.