22.03.1982
Efri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3150 í B-deild Alþingistíðinda. (2739)
231. mál, umferðarlög
Frsm. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um frv. það sem hér er til umr. Nefndin er sammála um að mæla með samþykkt þess með þeirri brtt. sem hún flytur öll sameiginlega á þskj. 475. Brtt. er í þá veru að fjárhæð sú, sem hæstv. dómsmrh. er heimilað að ákveða með auglýsingu, skuli vera nokkrum takmörkunum háð, þar sé sett hámark. Það komu ábendingar um þetta fram í nefndinni þegar fjallað var um málið.
Sú breyting, sem nefndin leggur til að gerð verði, er að inn í greinina komi: „Fjárhæð þessi má þó aldrei vera hærri en 1.25 0/00 af lögboðinni vátryggingarfjárhæð ökutækis.“ Um þetta hámark, sem nefndin var sammála um að mæla með að sett yrði inn í frv., var haft samráð við Tryggingaeftirlitið sem aftur leitaði umsagnar samstarfsnefndar bifreiðavátryggingarfélaganna. Þessir aðilar töldu sömuleiðis eðlilegt að þarna kæmi inn hámarksákvæði, sem þó verður að segja að sé mjög ríflegt. En menn töldu eðlilegt að þarna væri sett hámark svo að ráðh. gæti ekki breytt þessari upphæð meira en hér segir.
Nefndin leggur sem sagt til að frv. verði samþykkt með þeirri brtt. sem hún flytur öll á þskj. 475.