02.11.1981
Neðri deild: 8. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 363 í B-deild Alþingistíðinda. (275)
14. mál, jarðalög
Landbrh. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Það er smávægileg aths. við ræðu hv. flm. þessa frv. Ég benti hv. þm. á að eðlilegra hefði verið að flytja frv. til 1. um breyt. á lögum um Stjórnarráð Íslands. Þá hefði verið hægt að taka alla þá málaflokka, sem hv. þm. hefði í hyggju að færa til milli einstakra ráðuneyta, inn í sama frv. Eftir að lögunum um Stjórnarráð Íslands hefði þá verið breytt af Alþingi, ef Alþingi hefði fallist á tillögur hv. þm., segir sig sjálft að þær breytingar hefðu orðið hvað sem liði því er stendur í jarðalögum. Látum það vera.
Hv. þm. minntist á að hann hefði fyrr í umr. fjallað um það, að gefið hefði verið út byggingarbréf fyrir jörð innan þjóðgarðsins á Þingvöllum án vitundar Þingvallanefndar. Ég frétti af ummælum hv. þm., þó að ég væri ekki viðstaddur þá umr., og tók með mér það byggingarbréf sem hér um ræðir, útbúið 13. júlí 1979. Þetta byggingarbréf hefur aldrei öðlast gildi vegna þess að það er háð þeim fyrirvara, sem glögglega kemur fram í bréfinu, að það hljóti samþykki Þingvallanefndar. Það samþykki hefur ekki fengist og byggingarbréfið þess vegna ekki öðlast gildi. Það er því meira en vafasamt að segja hér á Alþingi að landbrn. hafi gefið út byggingarbréf án vitundar Þingvallanefndar sem réttilega á að hafa umsjá með jarðeignum innan þjóðgarðssvæðisins. Ekki meira um það.
Þetta vildi ég gjarnan láta hér koma fram. En ég geri ráð fyrir að þetta mál verði tekið upp og nýtt byggingarbréf verði búið út og að nýju leitað samþykkis eða staðfestingar Þingvallanefndar til þess að fá úr því skorið, hvort jarðnæðið, sem hér um ræðir, geti ekki komist í formlega ábúð.
Varðandi aðra þætti þess máls kom m. a. fram í máli hv. þm. Sighvats Björgvinssonar um meðferð mála innan þjóðgarðssvæðisins, að landbrn. hefði leyft þar byggingu sumarbústaða. Það er einnig rangt. Því hefur verið lýst yfir af hálfu landbrn. og það löngu fyrir mína tíð í því rn., að rn. mundi greiða fyrir því, að þetta fengist gert, en að sjálfsögðu væri það allt háð samþykki Þingvallanefndar.