23.03.1982
Sameinað þing: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3163 í B-deild Alþingistíðinda. (2767)

226. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Eins og hv. 5. þm. Suðurl. sagði höfum við spurt efnislega um það sama, hann á þskj. 407 og ég á þskj. 416. Mín fsp. er orðuð á annan veg og er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Hvers vegna hefur Húsnæðisstofnun ríkisins ekki framkvæmt 2. tölul, ákvæða til bráðabirgða í lögum nr. 51/1980, um Húsnæðisstofnun ríkisins?

Hvenær mun Húsnæðisstofnun ríkisins gefa þeim einstaklingum, sem fengu nýbyggingarlán á árunum 1974–1979 með hlutfallslegri verðtryggingu, kost á að skipta á skuldabréfum fyrir ný skuldabréf með þeim lánskjörum sem ákveðin eru í lögum nr. 51/1980. um Húsnæðisstofnun ríkisins?“

Ég sé ekki ástæðu til að fara hér að endurtaka beint það sem hv. 5. þm. Suðurl. sagði um það, hvað liggur á bak við þessar fsp. okkar. Það er það, að vaxtakjör lána á tímabilinu 1974–1979 hjá Byggingarsjóði ríkisins eru mun lakari en þau vaxtakjör sem nú eru. Gert var ráð fyrir að þessu yrði kippt í lag, og þess vegna var sett það ákvæði til bráðabirgða í lög um Húsnæðisstofnun ríkisins frá 1980 sem vitnað er til í fsp. minni.

Frá upphafi veðlánakerfisins hefur nokkur hreyfing verið á vaxtakjörunum, hinum beinu vaxtakjörum, og ekki síður hefur verið hreyfing á reglunum um verðbindingu. Árið 1956, þegar almenna veðlánakerfið tók til starfa, var um að ræða tvenns konar lán: Annars vegar svokölluð A-lán sem náðu til 75% af heildarláni og voru til 25 ára með föstum vöxtum, upphaflega 7.25%. Hins vegar voru svokölluð B-lán fyrir 25% af heildarláninu, en það voru lán til 15 ára með 5.5% vöxtum og 100% vísitölutryggingu miðað við framfærsluvísitölu. Veðlánakerfið hóf starfsemi sína með þessum lánakjörum. En árið 1964 verður breyting. Þá er horfið frá þessu fyrirkomulagi, öll lán eru 100% verðtryggð og miðað við framfærsluvísitölu en vextir 4.25%. Þetta var ákveðið árið 1964. En það stóð ekki lengi, aðeins í 4 ár. Árið 1968 er enn gerð breyting. Þá er dregið úr verðtryggingunni á þann veg, að ákveðið er að öll lán séu verðtryggð að hálfu, 50% lánanna séu verðtryggð og miðað við framfærsluvísitölu, en vextir séu 4.25%. Alltaf öðru hverju var verið að breyta þessu, og árið 1972 er enn hert á verðtryggingunni. Þá er ákveðið að öll lán verði verðtryggð sem nemur 50% að því marki sem nam meðaltalsvöxtum allt lánstímabilið, en ekki hærra en 7.75%. Þetta var 1972 og gilti til 1974. Enn voru gerðar breytingar árið 1974 sem giltu aðeins í eitt ár, til 1975.

Tími minn er naumur, en ég vil aðeins segja það, að þá voru vextirnir ákveðnir 5.25%, en verðtryggingin var 3/10 af hækkun byggingarvísitölu. Árin 1975–1978 eru vextirnir 6.25% og verðtryggingin 4/10 af hækkun byggingarkostnaðar. Árið 1978 eru svo vextirnir ákveðnir 8.75% og verðtryggingin 6/10 af hækkun byggingarvísitölu.

Þessi lán með hlutfallslegri verðtryggingu og þetta háum vöxtum eru ákaflega óhagstæð. Það má ekki bregðast að þegar í stað verði kippt í lag þessum vaxtakjörum eins og lofað var og tekið fram í bráðabirgðaákvæðum við húsnæðislöggjöfina frá 1980. Fsp. mín veit að því að spyrja hæstv. ráðh. um hvað dvelji „Orminn langa“ í þessu efni. Er ekki hægt að hefjast þegar handa um þessa lagfæringu?