23.03.1982
Sameinað þing: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3166 í B-deild Alþingistíðinda. (2769)

226. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Siggeir Björnsson:

Herra forseti. Ég vil taka undir nauðsyn þess að breyta kjörum á lánum Húsnæðisstofnunar ríkisins eins og hér hefur verið spurt um, nota þá heimild sem lög hafa gefið um það. En þetta er ekki nóg fyrirgreiðsla til þeirra sem voru að byggja á þeim árum þegar þessi kerfisbreyting var að ganga yfir. Lánin frá Húsnæðisstofnun voru lág. Húsbyggjendur þurftu að fjármagna byggingar sínar með vaxtaaukalánum og öðrum skammtímalánum til tveggja til átta ára frá almennum lánastofnunum, eins og raunar hefur alltaf þurft að gera. En á þessum árum voru vextir almennt að hækka í landinu og meira að segja lánin að styttast. Margir gerðu sér alls ekki grein fyrir því, að þeir voru búnir að binda sér þunga fjárhagslega bagga með því að ráðast í bygginu, og nú ráða þessir menn ekki við þá fjárhagslegu byrði með óbreyttum tekjum. Það er því nauðsyn að veita þeim mönnum, sem byggðu á árunum 1978–1980, aðstoð eða fyrirgreiðslu hjá hinu almenna bankakerfi vegna lausaskuldalána sem tekin voru á þessum árum. Má ekki vænta þess, að félmrn. beiti sér fyrir að bankakerfið veiti slíka fyrirgreiðslu?

Einkum er þetta mikið vandamál víða úti á landi þar sem sölumöguleikar á íbúðum og húsum eru nánast engir. Það er þó möguleiki að selja hér í þéttbýlinu og fá fullt verð fyrir. þó að ekki sé sá kostur góður. En sá kostur er alls ekki fyrir hendi víða úti á landi. Er því ekkert að gera fyrir fjölskylduna, sem hefur verið að byggja, annað en að skerða lífskjör sín verulega eða láta gera sig upp.

Hér er alls ekki um slíkan fjölda húsbyggjenda að ræða að það geti verið mikið mál fyrir bankakerfið að láta í té þá fyrirgreiðslu, sem ég hef hér rætt um, að veita þeim, sem byggðu á þessum árum, svipaða aðstöðu og þeir hafa sem áður byggðu og nú eru að byggja, sem sé að létta hina árlegu greiðslubyrði vegna byggingarinnar. Auk þess þarf ríkisvaldið að stuðla að því á allan hátt að hvetja einstaklingana til að byggja yfir sig, m.a. í því skyni að virkja það geysimikla vinnuafl sem einstaklingarnir leggja fram. Þjóðfélagið hefur alls ekki efni á að hafna því framlagi.