23.03.1982
Sameinað þing: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3168 í B-deild Alþingistíðinda. (2773)
226. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég ætla ekki frekar en hv. síðasti ræðumaður að fara hér út í húsnæðismálin almennt í þessum fsp.-tíma. Ég steig nú aðallega í stólinn til að svara hv. þm. Siggeiri Björnssyni, 6. þm. Suðurl., vegna þeirra sem hafa byggt og fengið lán á árunum 1978 og 1979, lenda á milli húsnæðislánakerfa, hins gamla og hins nýja, og telja þar af leiðandi að þeir búi við heldur óhagstæðari kjör en aðrir. Vegna þessa og vegna þess að athygli mín var vakin á þessu skrifaði ég húsnæðismálastjórn og leitaði eftir því, að hún tæki á þessu máli sérstaklega og kannaði fyrir mig í hverju þessi munur lægi aðallega. Í framhaldi af könnun húsnæðismálastjórnar sneri ég mér til bankanna og fór fram á að þeir tækju á þessu máli. Þeir hafa aftur svarað og óskað eftir að þeir fái til viðræðna hvern einstakan mann sem þannig stendur á um að hann telji sig hafa borið þyngri byrði frá þessum árum. Bankarnir hafa haft góð orð um að koma til móts við þá einstaklinga að svo miklu leyti sem þarna er um mismun að ræða. — Ég ætla sem sagt ekki að fara út í almennar umr. um húsnæðismál. Ég gæti gjarnan gert það, en ætla ekki að gera það núna.
Ég ætla að segja eitt að lokum, og það er þetta:
Ég fullyrði að fyrirgreiðsla opinberra aðila við húsnæðiskerfið á Íslandi er síst minni, ef ekki meiri, en í grannlöndum okkar. Það er einn þáttur í peningakerfi íslensku þjóðarinnar sem hefur ekki fengist til skipulegs samstarfs í húsnæðismálum. Það er bankakerfið. Meðan það fæst ekki til skipulegs samstarfs í húsnæðismálum er hætt við að við Íslendingar munum eiga erfitt með að ráða við okkar opinbera húsnæðislánakerfi. Ég fullyrði að svona sé þetta, og þetta er grundvallaratriði í mínum huga.
Ef við ætlum að reisa húsnæðislánakerfið í landinu verulega við að tryggja að lánað verði til húsbyggjenda og þeirra, sem kaupa íbúðir, skaplegt hlutfall af verði, bæði byggingarverði og kaupverði á gömlum íbúðum, þá verður bankakerfið að koma til sögunnar í mjög verulegum mæli. Þrátt fyrir tilraunir til þess á undanförnum árum, ítrekaðar tilraunir margra ríkisstjórna og margra ráðherra, að fá bankana til að taka þátt í þessu hefur það ekki tekist. Það hefur ekki tekist enn þá. Það er mjög alvarleg staðreynd sem vert er að hafa í huga.
Auðvitað hafa bankarnir ekki takmarkalausa fjármuni fremur en aðrir. En hitt er ljóst, að það er algerlega fráleitt að bankakerfið á Íslandi skuli í rauninni vera það eina á Norðurlöndum sem hefur ekki fengist til að taka skipulega þátt í því að byggja upp húsnæði fyrir fólk eða kaupa eldra húsnæði. Það er sá grundvallarvandi sem við er að glíma í húsnæðismálum á Íslandi.