23.03.1982
Sameinað þing: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3174 í B-deild Alþingistíðinda. (2782)

234. mál, bókasafn Landsbankans og Seðlabankans

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Hv. 8. landsk. þm. hefur beint til mín spurningum varðandi bóka- og skjalasafn Landsbankans og Seðlabankans. Ég óskaði þegar eftir því við þessar stofnanir, að þær gæfu mér skýrslu um málið, og mun ég nú rekja svör bankanna hér á eftir. — Fyrst vil ég rekja svar Seðlabankans:

„Upphaf bóka- og skjalasafns Seðlabankans sem skipulagðs safns má rekja aftur til ársins 1962, en þá var hafist handa um flokkun margvíslegra gagna í eigu Landsbanka Íslands og Seðlabankans er geymd voru í kjallara Neskirkju. Var hér um að ræða alls kyns skjöl og bókhaldsgögn, er náðu allt aftur til stofnunar Landsbankans árið 1886. Auk þess hafði í þessum stofnunum safnast á löngum starfsferli þó nokkur bókakostur, þ. á m. bækur og tímarit til notkunar fyrir stjórnir og sérfræðinga bankanna.

Seðlabankinn var formlega stofnaður í apríl 1961, en fjórum árum áður hafði stjórn hans og starfsemi verið algerlega skilin frá viðskiptabankahluta Landsbankans. Það má reyndar segja að Seðlabankinn hafi í reynd verið stofnaður með lögum nr. 33 frá 1957, en þá var sett sérstök stjórn yfir tvær deildir Landsbanka Íslands, annars vegar viðskiptadeild og hina deildina sem hét samkv. þeim lögum Seðlabanki Íslands, og það var sérstök bankastjórn einnig fyrir hvora deildina um sig. Seðlabankinn hafði þá þegar komið á laggirnar nokkrum vísi að bóka- og skjalasafni.

Á árinu 1962 var gert samkomulag milli bankanna tveggja um að koma upp sameiginlegu safni þar sem öllum sögulegum gögnum, sem ástæða þætti til að varðveita, yrði komið fyrir, auk bóka og annars efnis er varðaði sögu þeirra og þróun efnahagsmála. Var þá skjalavörður, hagfræðingur að mennt, ráðinn að safninu að hálfu hjá hvorri stofnun.

Húsnæðið í kjallara Neskirkju varð brátt fullnægjandi og var safnið flutt í geymsluhúsnæði Landsbankans að Höfðatúni 6 á árinu 1967. Smám saman bættist við bókasafnið og varð sú viðbót að mestu á vegum Seðlabankans. Einnig óx skjalasafnið og hafist var handa að koma upp mynt- og seðlasafni. Hafði skjalavörðurinn nokkuð frjálsar hendur um uppbyggingu og skipulag safnanna í öllum almennum atriðum, en meiri háttar ákvarðanir voru bornar undir bankastjórnir viðkomandi banka. Af hálfu stjórnar Seðlabankans var ákveðið að stefna markvisst að því að koma upp vönduðu safni um bankakerfið í landinu og jafnframt um atvinnulíf og almenna landshagi fyrr og síðar.

Með stækkun safnanna og vaxandi þörf Seðlabankans fyrir geymslurými fyrir bókhaldsgögn og alls konar skjöl var ákveðið að Seðlabankinn kæmi sér upp eigin húsnæði, m.a. fyrir starfsemi af þessu tagi. Keypt var íbúðarhús að Einholti 4 og það stækkað og lagfært. Var flutt í húsið vorið 1980 og fengu söfnin um þriðjung hússins eða ca. 450 fermetra, en þar af eru 100 fermetrar ætlaðir mynt- og seðlasafni.

Söfnuninni í Einholti má skipta í fjóra flokka:

1. Íslenskar bækur, skýrslur, blöð og tímarit.

2. Erlendar bækur, skýrslur og tímarit, erlendar bækur aðallega um Ísland.

3. Söguleg skjöl Landsbanka og Seðlabanka með væntanlegri viðbót frá öðrum bönkum, svo sem Íslandsbanka.

4. Mynt- og seðlasafn.

Hlutverk og uppbygging safnanna fer eftir eðli þeirra hvers um sig.

Í bókasafninu er að finna hvers konar bækur, opinberar skýrslur og smárit, sem fjalla um hagsögu og stjórnmál landsins bæði fyrr og síðar. Einnig er þar mikið af almennum sögulegum ritum er lýsa þróun þjóðfélagsins í gegnum aldirnar, þ. á m. sóknarlýsingar, staðalýsingar og almennar landlýsingar. Í erlenda safninu eru margvísleg hagfræðirit, bæði sígild og nútímaverk, einnig ýmis tímarit og bankaskýrslur svo og aðrar skýrslur frá fjölda erlendra stofnana sem íslendingar eiga viðskipti við með einhverjum hætti.

Í skjalasafninu eru öll skjöl Seðlabankans svo og söguleg skjöl Landsbankans frá upphafi, enda var Seðlabankinn í raun lengst af hluti hans. Einnig eru þar sérsöfn, svo sem bréfa- og skjalasafn Tryggva Gunnarssonar og skjalasafn Jóns Árnasonar. Mynt- og seðlasafn er að stofni til safn er Seðlabankahluti Landsbankans átti. Var um að ræða bæði innlenda peninga og erlenda er víða höfðu borist að í gegnum árin.

Eftir að viðunandi húsnæði hafði verið tryggt var gert samkomulag við Þjóðminjasafnið um að Seðlabankinn kæmi upp og varðveitti sameiginlegt þjóðarsafn seðla og myntar og er það nú orðið verulegt að vöxtum. Bíður safnið nú endanlegrar uppsetningar í Einholti 4 og gera menn sér vonir um að frágangi þess ljúki á þessu ári og þá verði hægt að opna það almenningi til sýnis.

Kostnaði við rekstur safnanna hefur ekki verið haldið aðgreindum frá öðrum rekstrarkostnaði þeirrar starfsemi sem er í Einholti 4. Hins vegar eru öll kaup safnanna færð sérstaklega og var varið til bókasafnsins 59 715 kr. árið 1980 og 138 763 kr. á árinu 1981. Eftir að safnið komst í viðunandi húsnæði hefur skipulega verið unnið að faglegri skráningu þess og er m.a. stefnt að því, að íslenski hlutinn verði tölvuskráður í samvinnu við Landsbókasafnið.

Við áðurnefnd söfn starfa nú forstöðumaður, sem einnig hefur umsjón með annarri starfsemi í Einholti 4, bókasafnsfræðingur í hálfu starfi, bókbindari, aðstoðarmaður, sem einnig vinnur önnur störf, skrifstofumaður í hálfu starfi við söfnin. Búist er við að fækka megi starfsfólki þegar skráningu og frágangi safnsins hefur að fullu verið lokið.

Hlutverk safnsins er að þjóna starfsmönnum bankanna og öðrum þeim sem vilja kynna sér atvinnusögu landsins og efnahagsmál á hverjum tíma. Utanaðkomandi umgengni hefur verið lítil til þessa, enda hafa söfnin verið í uppbyggingu og mótun. Skipulag, skráning og hið nýja húsnæði skapa hins vegar skilyrði til breyttra starfshátta, og er að því stefnt að fræðimenn geti fengið aðgang að því til rannsóknastarfa. Á síðasta ári var gert samkomulag við Landsbankann um að Seðlabankinn bæri allan kostnað af vörslu safnanna og stjórni þeim.“

Þetta var svar Seðlabankans. Nú les ég svar Landsbanka Íslands:

„Eins og kunnugt er hefur Landsbankinn starfað í nálægt 100 ár. Á þeim tíma hafa safnast saman til varðveislu ýmis gögn, skjöl og bækur, bæði prentað mál og skrifað. Þar er fyrst og fremst um að ræða bókhaldsgögn bankans, en auk þess margvíslegt innlent og erlent efni af ýmsu tagi viðvíkjandi bankastarfsemi og fjármálum, hagfræðirit, skýrslur, reikningsyfirlit, árbækur og sitthvað fleira sem meira og minna söfnunargildi hefur. Nefna má sýnishorn af bókhaldsbókum, fundargerðarbækur, minnisblöð frá starfsmönnum bankans o.fl. Að sjálfsögðu hefur margt verið eyðilagt, en reynt að geyma það markverðasta. Sumt hefur því miður eyðilagst bæði vegna ófullnægjandi og slæmra geymslna og nokkuð vegna hirðuleysis.

Árið 1967 keypti bankinn gamalt verksmiðjuhús við Höfðatún 6. Húsið var nokkuð lagfært og komið þar fyrir birgðastöð fyrir eyðublöð og skrifstofugögn bankans. Auk þess eru þar geymd gömul fylgiskjöl, sem skylt er að geyma lögum samkvæmt í tiltekinn tíma þangað til þau má eyðileggja. Á þennan stað var safnað saman því er til náðist af áðurnefndum söfnunarverðmætum, þ. á m. frá útibúum úti á landi. Þá hafði nokkuð verið flokkað af þessum gögnum, lítils háttar bundið inn af bókum og gert við band á öðrum, plöggum raðað í möppur og komið fyrir á aðgengilegan hátt. Var því haldið áfram næstu árin. Um bókakaup né bókasafn í þess orðs merkingu var ekki að ræða, en bókaeign Landsbankans var lítil önnur en að framan getur. Þó þarf óhjákvæmilega að kaupa nokkuð af nauðsynlegum handbókum, sem margar ganga úr sér og úreldast á stuttum tíma.

16. febr. 1981 var gert samkomulag við Seðlabankann um að hann tæki að sér að geyma í Einholti 4 áðurnefnd gögn Landsbankans er varðveita þarf til frambúðar og verið höfðu í vörslu skjala- og birgðavarða Landsbankans og Seðlabankans að Höfðatúni 6. Þar var fyrst og fremst um að ræða þau gögn Landsbankans er teljast hafa sögulega þýðingu og verulegt varðveislugildi. Haft var í huga að þau notuðust með safni Seðlabankans og jafnframt var gert ráð fyrir að frá Útvegsbankanum eða Íslandsbanka kæmu sambærileg gögn er notuðust í heildarsafnið.

Ekki er hægt að svara spurningunni um heildarkostnað frá upphafi í þessu sambandi, hvorki að því er snertir húsnæði, launagreiðslur, bókakaup né annan rekstrarkostnað. Allt þetta hefur fallið í almennan rekstur bankans og er um óverulega fjárhæð að ræða. Þá skal þess getið, að Seðlabankanum hefur ekki verið greitt fyrir vörsluna eftir að þetta var flutt í Einholt 4. Ekki hefur verið tilefni til að semja ársskýrslu, en verið er að gera skrá yfir áðurnefnd gögn.

Varðandi 4. spurninguna er vísað til skýringa og svara Seðlabankans.

Hagnýting gagna Landsbankans er fyrst og fremst í sögulegum og fræðilegum tilgangi fyrir þá er það varðar, en bætt aðstaða til að nota gögnin mun verða fyrir hendi innan skamms að Einholti 4. Bankastjórn Seðlabankans fer með yfirstjórn safnsins að Einholti 4. Að því er snertir eignarhluta Landsbankans í gögnum þar fellur stjórn hans undir bankastjórn Landsbankans eins og aðrar eignir hans.“ (Forseti hringir.) Herra forseti. Ég er alveg að ljúka máli mínu. — „Hefur hún tilnefnt sérstakan mann til að fylgjast með þeim af sinni hálfu.“

Ég hef raunar litlu við þessi svör að bæta annað en það, að ég heimsótti safnið í gær og kynnti mér nokkuð meginefni þess sem safnað hefur verið og áður er lýst. Húsnæði er hið besta, allur viðbúnaður er góður og myndarlega og menningarlega að málum staðið. Ég hygg að frá menningarlegu, sögulegu og raunar sérfræðisjónarmiði sé fengur að þessari starfsemi. Þarna eru varðveitt dýrmæt skjöl, bréf og bækur. Þarna er t.d. allt bréfasafn Tryggva Gunnarssonar, sem er gífurlega mikið að vöxtum. Kann að orka tvímælis hvar á að geyma slík verðmæti, en þau eru þarna í góðri vörslu og í fullri reglu og reiðu. Þá er talsvert mikið af bókum. Ég heyrði að hv. fyrirspyrjandi gerði nokkra grein fyrir þeim. Ég fór ekki ítarlega út í það, hvaða bækur þarna væru. Ég spurðist þó fyrir um hvort Jón Oddur og Jón Bjarni væru þarna og fékk þau svör að þeir væru þar ekki. Hins vegar var látið í það skina að það mætti kannske bæta úr því.

Að sjálfsögðu má deila um hvaða mörk skal miða við þegar um svona skjalasöfn, bréfasöfn og bókasöfn er að ræða, og skal ég ekki hætta mér út á þá braut.

Myntsafnið, sem þarna er verið að koma fyrir, er mjög verðmætt. Til marks um hvað það er verðmætt var mér sýndur einseyringur frá árinu 1881, danskur einseyringur, sem er búinn að vera í vörslu safnsins um langa hríð, sennilega frá því fyrir aldamót. Svona einseyringur var seldur í fyrra á 20 þús. danskar krónur. Þetta er ósköp nöturlegur og litið ásjálegur einseyringur, satt best að segja. En þetta er dæmi um þau verðmæti sem þarna eru geymd. Þarna eru náttúrlega til margir mjög verðmætir munir sem þarf að hafa í reiðu á þurrum og góðum stað.

Ég dreg ekki í efa að upplýsingar hv. fyrirspyrjanda um mat á eignum og önnur möt, sem hún nefndi, eru réttar. Ég hef ekki kynnt mér það. En ég get látið þau orð falla hér, að ég var dálitið undrandi þegar ég skoðaði þetta safn. Mér fannst safnið vera veglegt. Mér fannst það myndarlegt. Mér fannst ákaflega vel að þessu staðið að flestu leyti. Það er ekki búið að skrásetja það, eins og kom fram í svörum bankanna. Það er verið að því. Þess vegna er það ekki tilbúið til notkunar eins og ætlunin er að verði síðar meir. En ég vil aðeins endurtaka að ég álít að þarna sé um að ræða starfsemi sem hæfir bókaþjóð eins og okkur Íslendingum.