23.03.1982
Sameinað þing: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3182 í B-deild Alþingistíðinda. (2789)

234. mál, bókasafn Landsbankans og Seðlabankans

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Það hefur verið drepið á ýmislegt í þessum umr. Mér þykir leitt að Karl Marx er ekki þarna í bandi. Mér þykir ekki líklegt að Seðlabankinn bindi hann í skrautband. Mér þykir það heldur ólíklegt.

Varðandi Sinfóníuhljómsveitina óttast ég það dálítið, ef þessar umr. dragast á langinn, að fram komi fleiri óskir um að Seðlabankinn taki að sér ýmsa menningarstarfsemi. Kannske væri ráð að ljúka umr. áður en í óefni er komið að því er það snertir.

Varðandi Seðlabankann sem slíkan og safn af þessu tagi er rétt að geta þess, að allir seðlabankar á Norðurlöndum, breski seðlabankinn, vestur-þýski seðlabankinn og eflaust flestir seðlabankar eiga skjalasöfn. Þeir eiga sín bréfasöfn, þeir eiga bókasöfn, sérfræðibókasöfn o.s.frv. Sum þessara safna eru mjög vegleg.

Það er auðvitað talsverður vandi að draga mörkin, hvaða bækur eiga heima í svona safni. Ég sá t.d. þarna ævisögu Tryggva Gunnarssonar í þremur bindum. Ég geri ráð fyrir því að slíkar bækur eigi heima í svona safni. Þær varða svo hagsmuni, atvinnumál og efnahagsmál. (Gripið fram í.) Landsbankinn kostaði útgáfuna, segir hv. þm. Halldór Blöndal. Það var við hæfi. Það er erfitt að draga þarna mörk. Ég held að langsamlega mest af því, sem þarna er, séu skjalasöfn, bréfasöfn og sérfræðibækur af ýmsu tagi. En eins og hv. fyrirspyrjandi nefndi er nokkuð af öðrum bókum. Kann að vera að bókelskir menn í Seðlabankanum hafi freistast til að kaupa eitthvað af öðrum bókum. Ég skal ekki um það dæma, hvort þeir hafi þar farið yfir eðlileg mörk. Ég held að ekki þurfi að deila um það, að safn af þessu tagi er nauðsynlegt og æskilegt, að ég tali nú ekki um myntsafnið.

Varðandi framtíð safnsins er þess að geta, að það er ekki búið að ganga frá safninu. Það er ekki lokið við að skrásetja það og það er ekki búið að skipuleggja það. Þess vegna er e.t.v. ekki eðlilegt að það sé þegar opið. En mér finnst eðlilegt að safnið verði opið þegar þar að kemur, þó að mér þyki langlíklegast að sérfræðingar og aðrir þeir, sem sérstaklega fjalla um efnahagsmál, peningamál og atvinnumál og aðra slíka þætti í hagkerfinu, verði þar tíðastir gestir.

Varðandi endurskoðun á lögum um Seðlabankann get ég upplýst það, sem raunar hefur verið skýrt frá fyrir alllöngu, að starfandi er nefnd fulltrúa þingflokkanna sem m.a. hefur það verkefni að endurskoða lög um Seðlabankann. Það er sérstaklega tekið fram í skipunarbréfi nefndarinnar, að hún eigi að endurskoða lög um Seðlabankann og gera tillögur til viðskrh. um þau málefni.

Það er hins vegar spurning hvað á að setja strangar reglur varðandi bókasafnið. Eins og ég tók fram áður finnst mér, með tilliti til þess, að við teljum okkur fræga bókaþjóð, varla ástæða til að lasta það að Seðlabankinn hafi freistast til að kaupa einhverjar bækur sem ef til vill má telja að fjalli ekki sérstaklega um peninga, banka eða efnahagsmál yfirleitt.