23.03.1982
Sameinað þing: 68. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3191 í B-deild Alþingistíðinda. (2805)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Alþingi, 22. mars 1982.

Sighvatur Björgvinsson, 3. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Ég leyfi mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþingmaður Alþfl. í Vestfjarðakjördæmi, Gunnar R. Pétursson rafvirki, Patreksfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Alexander Stefánsson,

forseti Nd.“

Gunnar R. Pétursson hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans því verið rannsakað. Býð ég hann velkominn til starfa á Alþingi.