23.03.1982
Sameinað þing: 68. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3201 í B-deild Alþingistíðinda. (2813)
Umræður utan dagskrár
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Það er ástæðulaust að endurtaka það sem hæstv. utanrrh. hefur sagt, nema taka almennt undir þau ummæli sem hann viðhafði áðan. En það, sem olli því að ég kvaddi mér hljóðs, voru þau eftirtektarverðu ummæli hæstv. iðnrh. þegar hann sagði að Orkustofnun væri laus allra mála þrátt fyrir sína undirskrift af því að Orkustofnun hefði farið út fyrir sitt umboð þótt það bitnaði á samningsaðila Orkustofnunar. Það er allundarleg lögtræði, svo að ekki sé meira sagt.
Eins og hæstv. utanrrh. talaði um áðan var hér um samning að ræða sem í raun og veru var við varnarliðið. Slíkir samningar eru yfirleitt í dollurum, að ég hygg. Það var því eðlilegt að þessi samningur yrði í dollurum. Fyrirkomulagsatriði var með hverjum hætti frá honum yrði gengið. Nú óskaði Orkustofnun eftir að þessi samningur yrði í dollurum, sem hæstv. iðnrh. virtist véfengja að væri lögum samkvæmt, og þá lét hann Orkustofnun doka við. Hann, sem braut af sér, átti réttinn. Þetta er að snúa lögunum við, svo að ekki sé meira sagt.
En að hinu leytinu vil ég taka undir óskir hv. 4. þm. Vestf. áðan um að hæstv. forsrh. skýri sín viðhorf í þessu máli og hvaða augum hann litur á þau. Nú má vel vera að svo illa standi á að sú málamiðlun, sem hann hyggst beita sér fyrir, sé ekki komin á þann rekspöl að hann treysti sér til að tala mikið um þessi mál að svo stöddu. En eins og við munum lýsti hæstv. forsrh. yfir fyrir skömmu að hann hefði tekið þessi mál í sínar hendur og yrði þess að vænta, að betra samkomulag yrði milli ráðuneyta en áður hefði verið. Það lá í orðunum. Nú virðist samt sem áður sem þetta hafi gengið eitthvað erfiðar en við mátti búast. Ef við berum saman ummæli ráðh. áðan er ekki að sjá að neitt samkomulag sé í sjónmáll. Þess vegna vil ég óska eftir að hæstv. forsrh. svari því hér, hvort hann taki undir það með hæstv. utanrrh., að við megum ekki fara inn á þær brautir að valdsmaður geti að eigin geðþótta fellt niður skriflegan samning, hvort hann geti tekið undir það með hæstv. utanrrh., að við getum ekki innleitt slíkt stjórnarfar hér á landi, heldur eigum að haga okkur svo að það sé í samræmi við lög og reglur, að hér sé réttarríki eins og við viljum hafa það, kannske það besta í veröldinni. Ég vildi óska að hæstv. forsrh. væri svo litillátur að hann segði okkur eitthvað af hug sínum í þessum efnum.