23.03.1982
Sameinað þing: 68. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3206 í B-deild Alþingistíðinda. (2818)

Umræður utan dagskrár

Birgir Ísl. Gunnarsson:

Herra forseti. Ég skil vel að hæstv. félmrh., formaður Alþb., skuli hafa fundið sig knúinn til að standa hér upp og reyna að bera blak af hæstv. iðnrh. Ég verð að segja það, að ég hef ekki orðið vitni að öllu aumari frammistöðu eða öllu meiri rassskellingu, sem nokkur hæstv. ráðh. hefur fengið, hvorki fyrr né síðar, en hæstv. iðnrh. hefur fengið í þessum umræðum, bæði með aumum tilsvörum sínum við þeim fyrirspurnum, sem hv. 4. þm. Vestf. beindi til hans, og jafnframt með þeirri ráðningu, sem hæstv. utanrrh. veitti honum. Það þýðir því ekkert fyrir hæstv. félmrh. að koma hér upp og reyna að drepa þessu máli á dreif með því að draga fram það sem hann telji vera kjarna málsins, einhverja ímyndaða hótun bandaríska sjóhersins. Það er ekki kjarni þessa máls. Í fyrsta lagi kom sú ímyndaða hótun ekki fram fyrr en hæstv. iðnrh. var búinn að fremja þá stjórnvaldsathöfn sem hér er mest til umræðu, þá stjórnvaldsathöfn sem auðvitað er kjarni þeirrar umr. sem hér á sér stað. Í öðru lagi var hér ekki um nema hótun að ræða, ekki eins og hún birtist a.m.k. venjulegum borgurum, heldur fyrst og fremst spurningu um hvort staðið yrði við samninga sem gerðir höfðu verið á fullkomnum viðskiptalegum grundvelli.

Mér fannst þau ummæli, sem hæstv. utanrrh. viðhafði í þessum umr., vera svo merkileg og einstök að ég kvaddi mér hljóðs fyrst og fremst til að reyna að drepa á nokkur meginatriði þeirra, vekja athygli á þeim og draga þau nánar fram.

Í fyrsta lagi ber hæstv. utanrrh. hæstv. iðnrh. ósannindum. Hæstv. utanrrh. heldur því fram ákveðið, að hæstv. iðnrh. hafi gefið fyrirmæli um að Orkustofnun skyldi hætta við að efna umræddan samning, og hann bætti við: Það eru næg vitni að því, að þetta voru fyrirmæli af hálfu iðnrh. Nú vill hæstv. iðnrh. ekki við þetta kannast, en engu að siður er hér um svo alvarlegar ásakanir að ræða af hálfu eins ráðh. í garð annars að undir því getur hæstv. iðnrh. ekki setið. Það verður að koma fram í dagsljósið hvað þarna fór raunverulega á milli, og það er nauðsynlegt að þau vitni, sem þar eru til staðar, komi fram í dagsljósið þannig að þingheimur og alþjóð fái upplýst hvað raunverulega gerðist í þessu máli.

Í öðru lagi heldur hæstv. utanrrh. því fram, að enginn lagalegur grundvöllur hafi verið fyrir þessari ákvörðun hæstv. iðnrh., og hann bætir við, að hann hafi ekki á reiðum höndum nein hliðstæð dæmi úr íslenskri stjórnarfarssögu. Þegar hæstv. utanrrh. segir þetta er rétt að hafa í huga að hér mælir maður sem veit betur en flestir aðrir um þessi mál. Hér mælir maður sem í mörg ár var prófessor í stjórnarfarsrétti við Háskóla Íslands, hefur skrifað kennslubækur í stjórnarfarsrétti, m.a. ítarlega kafla um valdníðslu og valdþurrð. Hann kemur hér fram og fullyrðir að það sé enginn lagalegur grundvöllur fyrir aðgerðum hæstv. iðnrh. Þetta er mjög alvarleg ásökun sem nauðsynlegt er að draga fram og hafa í huga.

Í þriðja lagi ásakar hæstv. utanrrh. hæstv. iðnrh. fyrir óvönduð vinnubrögð — ekki aðeins að það skorti lagalegan grundvöll undir það sem hann gerir, heldur séu hér viðhöfð óvönduð vinnubrögð. Hér eru notuð orð eins og „flumbrugangur“, „hrein vitleysa“ og að geta ekki einu sinni nefnt rétt lög í þeirri fréttatilkynningu sem iðnrn. sendi frá sér. Hér er um alvarlegar ásakanir að ræða og maður spyr auðvitað sjálfan sig: Þegar einn ráðh. segir slíkt við annan, hvað þá með vinnubrögð hæstv. ráðh. í öðrum málum? Við verðum vitni að því, að hvert málið á fætur öðru klúðrast sem hæstv. iðnrh. kemur nálægt. Það eru öll mál að sigla í strand sem hann kemur nálægt, hvort sem það eru virkjunarmál, iðnaðar- eða orkumál. Allt það, sem þessi hæstv. ráðh. kemur nálægt, endar í einhverju klúðri og vitleysu. Slík mál eiga mörg eftir að koma til umræðu hér á hv. Alþingi nú næstu daga.

Hæstv. utanrrh. fullyrti að hæstv. iðnrh. hefði stofnað þeim samningum, sem hér um ræðir, í hættu, — samningum sem munu færa, ef þeir endanlega komast á, Orkustofnun verulegar tekjur sem hún ella hefði misst af. Hæstv. iðnrh. stofnar fleiri samningum í hættu. Hann virðist stofna í hættu öllum þeim samningum og öllum þeim samningaviðræðum sem hann kemur nálægt og tilheyra embætti hans. Um það eigum við líka eftir að ræða hér á Alþingi næstu daga og ég skal ekki fara nánar út í það hér.

En í fimmta lagi, og það finnst mér vera atriði sem hæstv. utanrrh. mælir hér af mikilli alvöru og miklum þunga til okkar þm., telur utanrrh. að slíkt stjórnarfar sem hæstv. iðnrh, temur sér megi ekki innleiða hér á landi. Til hvers skyldi hæstv. utanrrh. vera að vitna í þessu sambandi? Skyldi það vera t.d. þar sem hæstv. iðnrh. fékk sitt pólitíska uppeldi, í Austur-Þýskalandi? Ég skal ekkert fullyrða um það, en mér finnast það þung aðvörunarorð sem einn ráðh. mælir í garð annars þegar hann segir við hann: Slíkt stjórnarfar má ekki innleiða hér á landi. — Ég tek undir þessi orð hæstv. utanrrh. Mér finnst að hér hafi verið gengið of langt og að hæstv. iðnrh., sennilega með fullum stuðningi hæstv. félmrh., eins og hér hefur komið fram, hafi gengið allt of langt í þessu máli og hér hafi verið stigið skref í átt til stjórnarfars sem Alþingi verður að standa gegn að verði innleitt hér á landi.