24.03.1982
Neðri deild: 57. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3213 í B-deild Alþingistíðinda. (2834)
144. mál, almannatryggingar
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Eins og þetta frv. ber með sér er sjúkratryggingagjald einungis lagt á tekjur sem eru hærri en 101 250 kr. Það er því augljóst að gjaldið er eðli sínu samkvæmt skattur af sama toga og stighækkandi tekjuskattur. Ég sé ekki ástæðu til að vera með mismunandi nöfn á sams konar skattheimtu sem rennur til ríkisins, auk þess sem reynslan hefur kennt okkur að þetta nafn, sjúkratryggingagjald, er einungis notað til þess að auka skattheimtuna umfram það sem ella hefði orðið.
Ég geri mér grein fyrir að við því verður ekki spornað héðan af, að meiri hl. Alþingis nái því fram að þetta sjúkratryggingagjald verði lagt á á þessu ári, en ég sé ástæðu til þess að varpa þeirri fsp. til hæstv. fjmrh., hvort gert sé ráð fyrir því við undirbúning fjárlaga fyrir næsta ár, að þessu gjaldi verði haldið áfram eða ekki, eða hvort hugmynd hans sé kannske að fella það með formlegum hætti inn í tekjuskattinn, eins og eðlilegt virðist. Það er óþarfi að vera með alla þessa smáskatta og ekki nema sjálfsagður þrifnaður að fækka þeim þegar það skiptir í rauninni engu máli. Það kemur hvort eð er í sama stað niður fyrir gjaldandann hvort þær krónur, sem renna til ríkisins, heita tekjuskattur eða sjúkratryggingagjald.
Fsp. mín til hæstv. fjmrh. er þessi: Hefur hann í hyggju að fella sjúkratryggingagjaldið inn í tekjuskattinn á næsta ári eða áformar hann að leggja samsvarandi frv. fyrir strax á hausti komanda eins og nú hefur verið gert? Ég geri ráð fyrir að hann sé þegar farinn að setja sig í þær stellingar að undirbúa næsta fjárlagafrv., svo að ég býst við að hann hafi rennt huganum að þessu.