24.03.1982
Neðri deild: 57. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3237 í B-deild Alþingistíðinda. (2844)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Eggert Haukdal:
Herra forseti. Á s.l. hausti blasti við viða um land stöðvun margra fyrirtækja í útgerð og fiskvinnslu. Þessi fyrirtæki voru mörg hver burðarásar í atvinnulífi á viðkomandi stöðum og stöðvun þeirra hefði leitt af sér óbætanlegt t jón. Sem betur fer voru þó ekki öll fyrirtæki svona komin. En því var það að ríkisstj. útvegaði nokkurt fjármagn til þess að komast hjá stöðvun og Framkvæmdastofnun ríkisins tók að sér að sjá um útdeilingu þessa fjár. Aðeins bráðasti vandinn var leystur, en fyrirheit gefið af þremur ráðherrum fyrir hönd ríkisstj. um að meira fé yrði tryggt í þessu skyni.
Nefnd var skipuð til að gera úttekt á fyrirtækjunum og mun hún skila af sér í vor. En auðséð er að talsvert meira fé þarf til að koma, þótt það sé vonandi ekki eins mikið og m.a. sumir hæstv. ráðherrar slógu fram að þyrfti. Þeim mun einkennilegra er nú við afgreiðslu lánsfjáráætlunar, þegar allir aðilar, sem að þessu máli komu, voru sammála um nauðsyn aukins fjár til þessara hluta, að ekki skuli nú sjást nein teljandi fyrirheit um framhald þessa máls. Þeim peningum er öllum ráðstafað sem áður voru veittir. Hér eru að vísu 10 millj. í viðbót, en það er allt of lítið.
Hv. 1. þm. Vestf. greindi frá afstöðu stjórnar Framkvæmdastofnunar til þessara mála fyrr við umr. Eins og kom fram í máli hans er alls ekki vilji fyrir því í stjórn stofnunarinnar að það fé, sem Byggðasjóður fær á fjárlögum, gangi til þessara hallærislána. Með því væri kippt fæti undan annarri lánastarfsemi, en mjög er nauðsynlegt m.a. að efla iðnaðaruppbyggingu í landinu. Á síðustu árum hafa ríkisstjórnir skert mjög framlög til Byggðasjóðs, sem honum ber lögum samkvæmt, og er núv. ríkisstj. ekki til fyrirmyndar í þeim efnum. Það virðist vera að menn séu fljótt gleymnir á, eftir að þeir hafa verið í stjórn Framkvæmdastofnunarinnar og eru komnir í ráðherrastóla, að það þurfi fé í Byggðasjóð. Þó eru þessir sömu menn stöðugt að vísa umbjóðendum sínum þangað því að þar hljóti að vera hægt að fá lán.
Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. fjmrh.: Ætlar ríkisstj. að skilja við þetta mál í miðjum klíðum, þ.e. að útvega fjármagn til endurskipulagningar fyrirtækja í útgerð og fiskvinnslu, og hver eru fyrirheit ríkisstj. um framhald á fjármagnsútvegun?
Að öðru leyti vil ég segja um hin fyrirhuguðu lánsfjárlög, að ég er ósáttur við hinn mikla niðurskurð á verklegum framkvæmdum, einkum í vegamálum, og um hann hefði ég viljað greiða atkv. sérstaklega. Niðurskurður á ýmsum rekstrarliðum er hins vegar sjálfsagður, en hætt er við að hann haldi illa í framkvæmd. Lítið dæmi um það er nýliðið Norðurlandaráðsþing þar sem 30 manns voru að spóka sig á kostnað þjóðarinnar, flestir að óþörfu.