24.03.1982
Neðri deild: 57. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3238 í B-deild Alþingistíðinda. (2845)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. neitt að ráði, en mig langar til að segja örfá orð í sambandi við þetta mál.
það er nú eins og fyrri daginn, að ef mann langar til að tala við einhverja hæstv. ráðh. eru þeir fjarstaddir — nema hæstv. fjmrh., hann er að vísu við, einn af tíu. Ég hefði gjarnan viljað spyrja hæstv. samgrh. út úr í sambandi við ákveðið málefni, en ekki er því að heilsa, að hann sitji þingfund, og líklega ekki von á að hann komi hér í kvöld. (AG: Hann er á skíðum.) Á skíðum, segir hv. þm. Albert Guðmundsson. Það er greinilega samband þeirra í milli og það er gott.
En fyrst um vinnubrögðin. Það má furðu gegna að nú munu vera í kringum 5 mánuðir síðan þetta mál var lagt fram á hv. Alþingi. Nú er það til 2. umr. í seinni deild eftir 5 mánaða dvöl í þinginu. Það sýnir náttúrlega svo að ekki verður um villst hvernig stjórn er háttað hjá hæstv. ríkisstj. og málatilbúnaði í þeim meginmálum sem hér er fjallað um á hverju einasta þingi, að það skuli taka á sjötta mánuð líklega, a.m.k. 5 mánuði, að koma stórmáll, einu af meginmálum hvers þings, eins og lánsfjárlögum í gegnum þingið.
Hæstv. fjmrh. hefur skammað fjh.- og viðskn. eða fyrst og fremst formann þeirrar nefndar fyrir slæleg vinnubrögð. En því hefur verið vísað til föðurhúsanna og hæstv. ríkisstj. bent á að hún ætti sjálf að skoða sinn hug og sín vinnubrögð gagnvart þessu máli. En það er furðulegt að hugsa til þess, geta menn ímyndað sér það: Ef hvert og eitt einasta mál, sem snertir meginþætti í stjórnkerfi og efnahagslífi landsins, ætti að vera hér í þinginu í 5 mánuði, hvernig áhrif halda menn að slík vinnubrögð hefðu á eðlilega stjórn á ekki bara þinginu, heldur á þjóðarskútunni? Auðvitað bitnar þetta ekki síst á henni, enda má nú sjá minna að því er varðar stjórn þjóðarskútunnar undir handleiðslu hæstv. ríkisstj.
Hv. þm. Matthías Á. Mathiesen sagði að ég hefði gagnrýnt meðferð mála í sambandi við lánsfjárlög 1979. Það er rangt hjá hv. þm. Ég sat ekki á þingi þá. (MÁM: Ekki 1979, heldur 1976 og 1977.) 1976 og 1977, það er rétt, 1979 var hann með í huganum. 1976 og 1977 var gagnrýnt og það réttilega, en það er ekki síður ástæða til gagnrýni nú, eins og meðferð þessa máls hefur verið háttað í höndum hæstv. ríkisstj. Ástæða var til gagnrýni þá, en líklega er miklum mun meiri ástæða til gagnrýni nú á meðferð þessa máls hjá ríkisstj. En ég hef ekki búist við að orð og gerðir t.d. hæstv. fjmrh. færu saman í stjórnarandstöðu annars vegar og sem stjórnarliða hins vegar. Það er tvennt ólikt í hans hugarheimi í raun og veru. Hann getur talað á tvennan hátt um nákvæmlega sama málefni og fer þá eftir því, hvort hann er í stjórnarandstöðu eða stjórnaraðstöðu. Svo er í raun og veru um miklu fleiri hæstv. ráðh. núv. ríkisstj. Menn tala tungum tveim, en það er oft erfitt að skilja í milli þegar menn eru annars vegar í stjórnarandstöðu og hins vegar í stjórnaraðstöðu.
Eins og hér hefur verið rakið í dag og þarf auðvitað ekki að ítreka er staðreynd að núv. hæstv. ríkisstj. lifir á erlendum lántökum. Hún fóðrar allt atvinnulíf landsmanna og efnahagslíf á erlendum lántökum. Það er sú fóðurgjöf sem hv. þm. Framsfl. standa fyrir í þessari ríkisstj. ásamt hæstv. fjmrh. Fóðurblandan er erlendar lántökur á lántökur ofan. (MB: Er ekki fóðurskattur?) Sá skattur verður borgaður af seinni tíma mönnum. Það er ekki ætlun hv. þm. í stjórnarliðinu eða hæstv. ráðh. að borga þann skatt sjálfir. Það ætla þeir framtíðinni að gera. Og það er kannske mergurinn málsins. Menn ætla að lifa stutt, en lifa vel í þessari ríkisstj., greinilega á kostnað annarra. (Gripið fram í.) Já, góða veislu gera skal, stendur einhvers staðar, og það undir handarjaðri hæstv. fjmrh. Hann gerir ekki ráð fyrir að sitja lengi í stól ráðh. umfram það sem komið er, og þá er um að gera að lifa vel meðan hann lifir.
Ég ætla t.d. að spyrja hæstv. samgrh. með hvaða hætti hann hygðist — kannske getur hæstv. fjmrh. svarað því fyrir hann því að góður er nú samgangurinn á milli þeirra — hvernig hann hygðist fjármagna eða standa að þeim framkvæmdum, t.d. í skipaiðnaði, sem gert er ráð fyrir á fjárlögum. Það vantar a.m.k. 23 millj. kr. til þess að hægt sé að fjármagna þær framkvæmdir sem gert er ráð fyrir á fjárlögum að því er varðar skipaiðnaðinn. Og hver er meiningin? Hvernig er sú fjármögnun fyrirhuguð þegar ekki er gert ráð fyrir að veittar séu heimildir til lántöku til þessara framkvæmda? Um þetta hefði ég gjarnan viljað fá svör samgrh. (Fjmrh.: Ég skal svara því.) Hæstv. fjmrh. býðst til að svara því á eftir. Það er vel þegið, þ.e. ef eitthvert hald verður í því svari. Það er mergurinn málsins.
Eins og fram kom hjá hv. 1. þm. Vestf. er ljóst að að því er varðar fjármögnun atvinnuvegasjóðanna er staðan sú, að ríkissjóður með hæstv. fjmrh. í broddi fylkingar hefur sölsað undir sig flesta þá fjársterku sjóði, sem eitthvað bitastætt er í, og fjármagnið þaðan er látið renna í ríkissjóð, en fjárfestingarlánasjóðirnir eru sveltir. Þetta hefur gerst í tíð núv. hæstv, fjmrh. fyrst og fremst. Hann hefur í raun og veru skikkað hina stærri og fjáðu lífeyrissjóði til að skipta fyrst og fremst við ríkissjóð, en fjármögnun atvinnuvegasjóðanna hefur setið á hakanum.
Það er t.d. alger óvissa um fjármögnun Framkvæmdasjóðs í ár, og allt bendir til að áætlanir ríkisstj. um fjármagn frá lífeyrissjóðunum séu allt of háar, séu í raun og veru miklu hærri en gera má ráð fyrir að reynslan sýni, þannig að fjármagn kemur til með að vanta í þessa sjóði.
Ekki tekur betra við í sambandi við húsnæðismálalöggjöfina. Byggingarsjóður ríkisins skuldar 40 millj. núna, er með yfirdrátt upp á 40 millj. kr., og talið að hann vanti að auki um 90 millj. kr. á þessu ári til að geta sinnt með eðlilegum hætti þeirri fyrirgreiðslu sem honum ber. Það mun vera komið svo nú að ekki er talið svara kostnaði að halda fund í stjórn Húsnæðisstofnunar vegna fjárskorts og talað um að koma á kvótakerfi í sambandi við úthlutun verkamannabústaða. Allt þetta gerist þegar sjálfskipaðir fulltrúar öreiganna sitja í ríkisstj. Þetta gerist undir handarjaðri þess flokks sem hæstv. fjmrh. er í fararbroddi fyrir og hefur hingað til talið sér skylt a.m.k. að reyna að hlúa að þessum þætti í þjóðlífinu.
Það er tiltölulega nýtt fyrirbrigði í íslensku efnahagslífi og fjármálapólitík að fjármagna rekstrartap ríkisfyrirtækja með erlendum lántökum. Það gerist líka undir handarjaðri núv. hæstv. fjmrh. og er að sjálfsögðu dyggilega stutt af hans meðreiðarsveinum í ríkisstj.
Ég held að það sé augljóst, að hvernig sem á þetta mál er litið er efnahagsstjórnin slík, að númer eitt, númer tvö, númer þrjú er að lifa á erlendum lántökum meðan sætt er í ráðherrastólunum. En það er auðvitað fjarri lagi að hugsa á þann hátt. Það nær ekki nokkurri átt. Það er ábyrgðarleysi af hverjum og einum stjórnmálamanni, sem það gerir, að haga þessum málum á þann hátt að hugsa einvörðungu um líðandi stund, láta skeika að sköpuðu, láta sig engu varða þó að framtíðin þurfi að borga margfalt meira vegna óstjórnar í efnahagslífinu en þyrfti að gera vegna þess ráðslags sem núv. hæstv. ríkisstj. stendur að.
Það var vikið að því í dag og var raunar getið um það í frv. til fjárlaga fyrir árið 1982, að gert var ráð fyrir og er raunar gert ráð fyrir enn, að mér skilst, að leggja um 40 millj. kr. skatt á byggðalínur. Enn hefur engin vitneskja fengist um með hvaða hætti slíkan skatt á að leggja á, og það virðast engin svör fást um það enn. Er þó líklega ekki nema um einn mánuður, að því er manni skilst, til þingloka. Það væri gaman ef hæstv. fjmrh. gæti líka svarað því, hvernig þessum svokallaða 40 millj. kr. byggðalínuskatti á að haga, með hvaða hætti hann á að leggja á. Hver á að borga?
Það er auðvitað óvirðing við Alþingi að halda þannig á málum að ríkisstj. — þó það séu 10 ráðh. í henni, það skiptir ekki máli — ætli sér að taka það vald að lækka ríkisútgjöldin um 120 millj., framkvæmdaframlögin sem Alþingi er tiltölulega nýlega búið að ákveða. Það er auðvitað lágmark, þó ekki væri nema kurteisinnar vegna, hæstv. fjmrh., að slík ákvörðun yrði þó borin undir fjvn., en ekki að ráðh. hafi úrskurðarvald og einræðisvald. Þó að sumir ráðh. hafi tilhneigingu til einræðiskenndar er furðulegt að bjóða Alþingi, — þó að 10 ráðh. sitji í hæstv. ríkisstj., — að þeir ætli sér að taka slíkt einræðisvald af þinginu sjálfu. Ég trúi því ekki, þó að margt sé miður sagt og auðvitað hafi hæstv. fjmrh. margt miður gert í sinni ráðherratíð, að eftir allar þær fjálglegu yfirlýsingar, allar fjálglegu ræðurnar á undangengnum árum í stjórnarandstöðu, sé hann andvigur því, að slíkur niðurskurður sé borinn undir fjvn. En kannske á það eftir að koma í ljós og kannske á það eftir að valda manni enn þá meiri vonbrigðum með hæstv. fjmrh. en nú þegar hefur gerst ef hann ætlar að standa þannig að málum. Ég vil þó ekki trúa því fyrr en ég tek á því.
Enn er eitt sem ég vil spyrja hæstv. fjmrh. um. Mér er tjáð, og vildi gjarnan að það yrði leiðrétt sé það rangt, að nú sé búið að undirskrifa kaupsamninga varðandi skipakaup fyrir Skipaútgerð ríkisins án heimilda. Ég vildi gjarnan spyrja hæstv. ráðh. um það. Er þetta rétt? Hefur slíkt verið gert án þess að nokkrar heimildir séu fyrir hendi? Ég vildi gjarnan fá það upplýst.
Ég skal ekki, herra forseti, eyða öllu lengri tíma í þetta. Ég vænti þess, að hæstv. fjmrh. svari því sem ég spurði um í sambandi við skipaiðnaðinn. Það er mikið mál ef það fer svo, að þær framkvæmdir, sem fyrirhugaðar eru eins og fjárlög gera ráð fyrir varðandi skipaiðnað á nokkrum stöðum, stöðvast vegna þess að ekki fæst heimild til lántöku fyrir þá aðila sem hér eiga hlut að máli. Það er þá til lítils og sýndarmennska einber að vera að ætla fjármagn á fjárlögum til slíks, ef hæstv. ríkisstj. og ríkisvald hverju sinni ætla að koma í veg fyrir að hægt sé að hefja þær framkvæmdir, sem eru nauðsynlegar, með því að veita ekki framkvæmdaaðila heimild til lántöku. Það verður að fylgja jafnframt heimild. Annað er helber sýndarmennska. Ég fer að halda — og það skulu vera mín lokaorð — að eitt megininntakið í efnahagsstefnu og raunar öðrum gerðum hæstv. ríkisstj. sé helber sýndarmennska.