24.03.1982
Neðri deild: 57. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3241 í B-deild Alþingistíðinda. (2846)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Frv. um lánsfjárlög var vísað til hv. fjh.- og viðskn. skömmu áður en þm. fóru í jólaleyfi síðari hluta desembermánaðar og nú kemur frv. til 2. umr. Ég þakka hv. nefnd fyrir afgreiðslu hennar á þessu frv. þótt ekki leyni ég því, að ég hefði kosið að frv. hefði komið fyrr fram því liðnir eru þrír mánuðir síðan frv. var vísað til nefndarinnar. Hins vegar er það fjarri mér, að ég sé með nokkrar ásakanir í garð hv. formanns nefndarinnar, 3. þm. Austurl., eins og haldið var fram áðan. Ég hef ekki neins staðar látið að því liggja að hann beri sök að því, hversu mjög hefur dregist að málið yrði afgreitt. Tilraun Morgunblaðsins til að gera mér upp orð í þeim efnum var frá blaðinu komin og byggðist ekki á því sem ég sagði í þeim efnum við blaðið. Hitt er annað mál, að mig var vissulega farið að lengja eftir að nefndin skilaði þessu máli af sér. En mér er kunnugt um að hv. þm. tóku starf sitt svo mjög alvarlega að þeir þurftu að afla margháttaðra upplýsinga. Það mun vera aðalskýringin á því, að afgreiðsla málsins dróst.

Í þessum umr. hafa verið lagðar fram nokkrar spurningar sem sjálfsagt er að svara þegar við 2. umr. málsins. Ég vil hins vegar taka það fram, að ég mun kjósa að fara nokkrum orðum um fjármál ríkissjóðs og lánsfjáráætlun almennt við upphaf 3. umr. Þar mun ég gera grein fyrir afkomu ríkissjóðs á liðnu ári og skuldastöðu við Seðlabankann eftir þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir. Ég mun einnig ræða þar nýjustu upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á tveimur fyrstu mánuðum ársins og um þær ákvarðanir sem teknar hafa verið um sparnað í ríkisrekstri og lækkun ríkisútgjalda á árinu 1982.

Ég tek undir það með hv. þm., sem að þessu hafa vikið, að að sjálfsögðu á þingið heimtingu á að vita með hvaða hætti þessi sparnaður verði framkvæmdur. Hann hefur þegar verið ákveðinn af ríkisstj. og af stjórnaraðilum, þm. stjórnarflokkanna, en hefur hins vegar ekki verið tekinn sérstaklega fyrir í fjvn. Það er rétt sem um það hefur verið sagt. Það má vissulega deila um hvort málið ætti að koma formlega fyrir fjvn., en að sjálfsögðu hefur verið haft náið samráð við alla þá fjárveitinganefndarmenn sem styðja núv. ríkisstj. og standa með henni að þessari ákvörðun. Ég hef hins vegar ekkert á móti því, að upplýsingar um þennan sparnað á fjárlögum komi til nefndarinnar og verði teknar þar til umr. En meiri hl. nefndarinnar og ríkisstj. og stjórnarflokkarnir hafa sem sagt þegar ákveðið að standa þannig að þessum sparnaði sem nú hafa verið teknar ákvarðanir um. Ég mun einnig fjalla þar frekar um lánsfjáráætlunina og lántökur á árinu í því sambandi. (Gripið fram í: Á ráðh. einnig við hv. 6. þm. Suðurl.?) Ég mun ræða þetta mál nánar við 3. umr. málsins.

Hv. þm. Eggert Haukdal ræddi áðan um fjármagnsútvegun vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar í fiskiðnaði, útgerð og iðnaði á vegum Byggðasjóðs og spurðist fyrir um hversu mikið fé yrði til ráðstöfunar í því sambandi. Ég verð að upplýsa það hér, að sú könnun, sem fram hefur farið um stöðu þessara fyrirtækja, stendur enn yfir og liggur því enn ekkert fyrir um hve mikil fjárþörf verður talin í þessu skyni. Sú úttekt, sem gerð var á þessum málum á haustmánuðum og skömmu eftir áramót, liggur að vísu fyrir. En hitt er ljóst, að það þarf að fara allvandlega yfir þetta. Ekki er ég í neinum vafa um að rekstrarstaða fjöldamargra þeirra fyrirtækja, sem illa stóðu á haustmánuðum, hefur verulega batnað á seinustu mánuðum, þannig að ekki er víst að sú fjárþörf, sem nefnd var á haustmánuðum, sé enn í fullu gildi í dag. Þetta þarf að kanna nánar og verður gert, en á þessu stigi málsins er ekki hægt að taka neinar ákvarðanir í þessum efnum. Ég vil þó leggja áherslu á að óhjákvæmilegt er að um verði að ræða innlenda lánsfjáröflun í þessu skyni, og það sem gert verður er þá að sjálfsögðu að nokkru leyti háð því, hversu tekst til með þá lánsfjáröflun, en mér hefur virst að hún yrði fyrst og fremst að eiga sér stað í bankakerfinu.

Hv. þm. Karvel Pálmason spurðist fyrir um samninga um skipakaup á vegum Skipaútgerðar ríkisins og á hvaða heimildum þessir samningar byggðust. Ég vil upplýsa að þessir samningar byggjast að sjálfsögðu á þeim heimildum sem fólgnar eru í fjárlögum, en þar er fjallað um fjármál Skipaútgerðar ríkisins, bæði í B-hluta fjárlaganna og raunar einnig í 6. gr. fjárlagafrv. Hins vegar er ljóst að það er ekki hægt að ganga endanlega frá lántökum í sambandi við þessi skipakaup fyrr en lánsfjáráætlun hefur verið samin. Það eru því seinustu endarnir sem eftir er að hnýta í sambandi við þessi skipakaup sem fólgnir eru í lánsfjáráætluninni sem hér er til umr. En það er síður en svo að engar heimildir hafi verið fyrir hendi til að ganga frá þessum skipakaupum enda þótt ekki sé hægt að ganga endanlega frá málinu fyrr en það mál, sem hér er til umr., hefur verið afgreitt.

Hv. þm. spurði að því, hvort einhvers staðar væri gert ráð fyrir fjármagni vegna hafnarframkvæmda í þágu skipaiðnaðar, og nefndi réttilega að í fjárlögum er fé ætlað í þessu skyni. Þar er hlutur ríkissjóðs tilgreindur og málið er því á hreinu hvað varðar hlut ríkissjóðs. Hins vegar hefur verið gert ráð fyrir að sveitarfélögin, sem að þessum framkvæmdum standa á móti ríkissjóði, leggi fram fé og útvegi fé á eigin vegum. Við höfum hvorki í fjárlögum né í lánsfjáráætlun fjallað sérstaklega um þennan þátt málsins, enda hefur það sjaldnast verið gert.

Þó mun það hafa verið svo að á árinu 1980 var ætlað sérstakt fé til sveitarfélaga sem stæðu í slíkum framkvæmdum, en það er ekki í fjárlögum og lánsfjáráætlun þessa árs. Við höfum gert ráð fyrir að sveitarfélögin gerðu sínar ráðstafanir. Þau hafa vissulega ýmsa möguleika. Hugsanlega geta þau fengið lán í Iðnlánasjóði. Ég veit að sum þeirra hafa þegar fengið slík lán. Hugsanlegt er að um verði að ræða erlendar lántökur að einhverju leyti eða aðra lánsfjáröflun. En lánsfjáröflun þeirra í þessu skyni þarf ekki endilega að koma fram í hinni opinberu lánsfjáráætlun. Ég veit t.d. að Vestmannaeyjakaupstaður hefur leitað til langlánanefndar og óskað eftir lántöku í þessu skyni, og þá er sú erlenda lántaka tekin af þeim kvóta sem gert er ráð fyrir í almenna yfirlitinu um erlendar lántökur á árinu að langlánanefnd sé með.

Hv. þm. Karvel Pálmason spurðist fyrir um skatt á byggðalínur, eins og hann orðaði það. Vissulega er þetta dálitið ónákvæmt til orða tekið því að ekki stóð til að leggja skattinn á byggðalínurnar sjálfar, en það var ætlunin að afla fjár til að greiða niður fjármagnskostnað byggðalína að nokkrum hluta með sérstökum hætti. Í lánsfjáráætlun er gert ráð fyrir að í þessu skyni verði aflað fjármuna sem nema 40 millj. kr. Þessi áform eru enn uppi, en ákvarðanir hafa ekki verið teknar. Ástæðan er sú, að málið tengist allverulega hugsanlegri yfirtöku nýs heildsölufyrirtækis í raforkuiðnaði á byggðalinunum. Eins og hv. þm. mun kunnugt hafa staðið yfir samningaviðræður milli Landsvirkjunar annars vegar og Laxárvirkjunar hins vegar um sameiningu þessara tveggja fyrirtækja í nýrri landsvirkjun. Jafnframt hefur verið gert ráð fyrir að þetta nýja fyrirtæki yfirtæki rekstur byggðalínanna og annaðist framvegis greiðslu fjármagnskostnaðar vegna þeirra, enda yrði þá þetta nýja fyrirtæki eigandi að þessum byggðalínum. Þessum samningum er enn ekki lokið og ég geri ráð fyrir að ákvarðanir í þessu máli muni verða teknar í tengslum við þessa samningagerð. En áformin eru enn óbreytt hvað þetta mál varðar.

Herra forseti. Ég sé svo ekki ástæðu til að lengja þessa umr., en hef gert ráð fyrir að taka til máls við 3. umr. Auðvitað er fjöldamargt sem ástæða er til að svara í fullyrðingum stjórnarandstæðinga við þessa umr. Stjórnarandstæðingar gera sér ljóst að það er erfitt að skamma ríkisstj. fyrir að halli sé á fjárlagadæminu eða að ríkissjóður sé að safna skuldum vegna þess að hann afli minni tekna en eytt er. Stjórnarandstæðingar gera sér ljóst að á þessu sviði koma þeir ekki höggi á ríkisstj. En þá hafa þeir í þess stað valið þann kost að býsnast mikið yfir erlendum lántökum þótt að vísu megi stöðugt greina í máli þeirra að þeir vildu hafa lántökurnar miklu meiri en þær eru. Það kom t.d. glöggt fram í máli hv. þm. Matthíasar Bjarnasonar fyrr í kvöld, að hann taldi að þær upphæðir, sem væru í lánsfjáráætlun og ætlaðar væru til ýmissa þarfa innanlands, væru allt of litlar og lágar, þær mundu ekki duga. Það var því ekki hægt að skilja orð hans á annan veg en þann, að það væri bersýnilega þörf á að taka miklu meiri lán en gert er.

Eins þekkjum við mikinn áhuga þm. Sjálfstfl. og Alþfl. á orkuframkvæmdum og stóriðjuframkvæmdum, en enginn þarf að efast um að erlendar lántökur mundu verða gífurlega miklu meiri og greiðslubyrði þyngri ef um gríðarlega mikla framkvæmdaaukningu væri að ræða á því sviði.

Stjórnarandstæðingar býsnast mikið yfir að lánsfjáráætlunin sé allt of há. En það er eftirtektarvert, sem ég hef raunar áður sagt hér í þinginu, að lánsfjáráætlunin hækkar ekki milli ára nema um 27–28% þótt reiknitala lánsfjáráætlunar sé 33%. Hækkunin milli ára er sem sagt miklu minni en nemur áætlaðri verðbólguaukningu sem væntanleg lánsfjárlög eru miðuð við.

Auðvitað er það svo einn hluti af blekkingum stjórnarandstæðinga að reyna að telja fólki trú um að hin góða afkoma ríkissjóðs byggist fyrst og fremst á erlendum lántökum. Þetta er málflutningur sem maður rekur sig á mjög oft. Staðreyndin er hins vegar sú að A-hluti ríkissjóðs tekur engin erlend lán í sína þágu. Aftur á móti ganga hin erlendu lán til sjálfstæðra fyrirtækja, ýmist á vegum ríkissjóðs, á vegum sveitarfélaga og ríkissjóðs eða eingöngu á vegum sveitarfélaga eða annarra aðila sem á lánsfjármagni þurfa að halda. Hinar erlendu lántökur eru sem sagt allar utan við rekstrarsvið ríkissjóðs og koma hvergi þar inn og fara þá ekki heldur þar í gegnum.

Ég nefni þetta hér sem dæmi um meginatriði þessa máls sem ástæða væri til að fjölyrða miklu frekar um, en ég geri það ekki að sinni. Hvort hv. stjórnarandstæðingar kjósa að halda þessari umr. áfram verða þeir að gera upp við sig. Ekki hef ég neitt á móti því, nógur er tíminn. En ég læt þetta duga að sinni.