25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3255 í B-deild Alþingistíðinda. (2865)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Forseti hafði ákveðið að endurtaka atkvgr. um brtt. við brtt. á þskj. 517. Þar af leiddi að hún var óafgreidd. Á öllum stigum fram að því að lokaafgreiðslu er lýst á brtt. er hægt að kalla hana aftur. Þess vegna held ég fast við minn úrskurð um það, að hv. 3. þm. Austurl. hafi verið heimilt að kalla sína brtt. til baka. Af því leiddi að sjálfsögðu að brtt. á þskj. 517 hlaut að verða kölluð aftur, eða þau voru a.m.k. viðbrögð 1. flm„ hv. 1. þm. Vestf.