25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3259 í B-deild Alþingistíðinda. (2891)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Hv. þm. Pétur Sigurðsson greiddi atkv. með alveg hliðstæðri tillögu efnislega séð, í meginatriðum svipaðri, á árunum 1976–1978 og það með glöðu geði. Ég fylgi hans góða fordæmi frá liðinni tíð og segi já.