25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3259 í B-deild Alþingistíðinda. (2892)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég vil gera grein fyrir atkv. mínu með tilvísun til orða hæstv. fjmrh. Hann fór rangt með. Það er mjög mikill munur á ákvæðum þeirra laga, er hann vitnaði til, og þeirra lagaákvæða, sem hæstv. fjmrh. og minni hl. fjh.- og viðskn. þessarar deildar leggja nú til. Í þeim lögum, sem hæstv. fjmrh. vitnaði til sem samhljóða þeim tillögum sem við erum nú að greiða atkv. um, var lögð sú skylda á lífeyrissjóðina að verðtryggja 40% af ráðstöfunarfé sínu, en hins vegar var ekki kveðið á um með hvaða hætti lífeyrissjóðirnir ættu að verðtryggja ráðstöfunarfé sitt. Þær tillögur, sem hér liggja fyrir, eru því frekleg takmörkun á sjálfstæði lífeyrissjóðanna og því segi ég nei.