25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3260 í B-deild Alþingistíðinda. (2897)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég get í einu og öllu tekið undir þá greinargerð sem hv. 1. þm. Vestf. lét koma hér fram þegar hann greiddi atkv. Til viðbótar vil ég láta þess getið, að ég hef litla trú á að núv. hæstv. ráðherrar velji slíku eða öðrum nýjum fyrirtækjum stað sem ber að velja þeim og þá að sjálfsögðu í ljósi þess, hvar framleiðni þeirra getur verið mest. Ég óttast að ef slíkt fyrirtæki verður sett upp undir stjórn þessara hæstv. ráðh. geti slíki ylræktarver alveg eins verið staðsett á Hofsósi eða austur á Breiðdalsvík, sem ég tel ekki rétta staðarvalið. Því segi ég nei.