29.03.1982
Efri deild: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3293 í B-deild Alþingistíðinda. (2915)
130. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Frsm. (Stefán Guðmundsson):
Herra forseti. Ég tala hér fyrir nál. sjútvn. þessarar hv. deildar um fm. til l. um breyt. á lögum nr. 80 16. sept. 1971, um Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins, með áorðnum breytingum. Nefndin hefur rætt þetta frv. á mörgum fundum og fengið fjöldann allan af umsögnum um þetta mál. Niðurstaða nefndarinnar er eftir þá skoðun að mæla með því, að frv, verði samþykkt óbreytt. Undir nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Geir Gunnarsson, Guðmundur Bjarnason, Kjartan Jóhannsson, Gunnar Thoroddsen, Guðmundur Karlsson og Egill Jónsson.