29.03.1982
Efri deild: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3301 í B-deild Alþingistíðinda. (2926)

90. mál, Hæstiréttur Íslands

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Ég þakka umburðarlyndi forseta og deildarinnar að leyfa mér að gera örstutta aths. vegna svars dómsmrh. við þeim spurningum og óskum sem ég setti fram.

Ég harma mjög að dómsmrn. skuli ekki treysta sér til að leggja fram skriflegt svar við þeirri álitsgerð sem send var hv. Ed. Alþingis, ef ég man rétt, í nóvembermánuði s.l. Dómsmrn. hefur haft nægan tíma til að undirbúa það svar og hugleiða það mál, þannig að ég tel mjög illa farið að rn. skuli ekki treysta sér til að setja fram skrifleg rök. Þótt það sé rétt hjá hæstv. dómsmrh., að þetta mál hafi verið lengi hér til umr. á Alþingi, hefur hæstv. ráðh. aldrei í allri þeirri umr. fjallað einu orði efnislega um þessa greinargerð og gerði það ekki heldur nú. Það tel ég ekki eðlilegar umr., einkum og sér í lagi þegar hæstv. ráðh. lagði á það áherslu, bæði nú í sinni ræðu og eins áður, að málið fengi efnislega umfjöllun hér á Alþingi. Það hefur einmitt verið kjarnaatriði þessara efnislegu umr. að taka afstöðu til þessarar greinargerðar.

Ég tel þó að hæstv. dómsmrh. hafi í lok sinnar ræðu tekið afstöðu með greinargerð lögfræðinganna, vegna þess að stuðningsyfirlýsing hans við varatill. mína fól einmitt í sér viðurkenningu á því, að ábending um hugsanlegt stjórnarskrárbrot, ef bráðabirgðaákvæði eins og það er í frv. núna væri samþykkt, eigi fullan rétt á sér. Hæstv. ráðh. lýsti yfir að hann væri fylgjandi varatill. og gæti ekki mælt gegn henni. Eins og kom fram fyrir tveimur vikum, þegar ég gerði grein fyrir þessari brtt., er hún einmitt flutt til þess að komast fram hjá þessum vanda um stjórnarskrárbrotið. Hæstv. ráðh. hefur nú gefið þá merku yfirlýsingu hér, að hann sé fylgjandi því að fara fram hjá þessum deilum, komast hjá því, að stjórnarskrárbrotið liggi hugsanlega á borðinu, með því að samþykkja þessa varatill. mína. Ég lýsti því rækilega, þegar ég flutti þessa varatill., að ég kysi helst að fara aðra leið, eins og bæði aðaltill., sem ég flyt, og aðrar tillögur sýna fyllilega, en til að afstýra því, að stjórnarskrárbrot væri hugsanlega framið, tók ég að mér að flytja þessa varatill. Nú hefur hæstv. dómsmrh. lýst yfir að hann gæti fylgt þessari varatill. Það er satt að segja synd að hæstv. ráðh. skuli ekki eiga sæti í þessari deild svo að hann gæti fylgt þeirri skoðun sinni eftir þegar atkvgr. fer fram. En ég beini því nú til hv. deildar, að fyrst við höfum orðið sammála, ég og hæstv. dómsmrh., um að það væri æskilegasta lausnin að komast fram hjá þessum vanda um stjórnarskrárdeilurnar með því að samþykkja ákvæði til bráðabirgða, þá væri ástæða til að hv. dm. hugleiddu í fullri alvöru að ljá þessari varatill. brautargengi sem nægði til samþykkis.

Hitt finnst mér alveg óþörf hógværð hjá hæstv. dómsmrh., að vera að efast um að við berum það traust til hans, að við treystum okkur til að fela honum að skipa fleiri en einn hæstaréttardómara. Ég get lýst því yfir hér, að það vantar ekkert á að ég beri fullt traust til ráðh. um að skipa einn, tvo, þrjá eða fleiri hæstaréttardómara. Það segir sig sjálft og var alveg óþarfi að vera að benda á að núv. hæstv. dómsmrh. væri falið mikið vald hvað þetta snertir. Sumir hæstv. dómsmrh., fyrirrennarar hans, hafa setið það lengi í embætti að þeir hafa skipað marga hæstaréttardómara og ekki verið deilt á það, held ég, nema einu sinni í sögu réttarins, ef ég man rétt, á öllum þessum áratugum — og það fyrir löngu, svo að það finnst mér ekki vera nein efnisleg ástæða.

Herra forseti. Ég þakka aftur umburðarlyndið. Ég hefði að vísu kosið að fá rökstudda afstöðu til fleiri brtt. og enn fremur kosið að fá þá skriflegu greinargerð sem ég hef verið að óska hér eftir hvað eftir annað. En ég verð að lýsa því yfir í lokin, að mér finnst stuðningsyfirlýsing hæstv. dómsmrh. við varatill. mína vera nægilegt svar í sjálfu sér. Þar með hefur hæstv. ráðh. viðurkennt að röksemdir hóps lögfræðinga, sem hafa verið kynntar í deildinni, og þær efasemdir, sem ég hef hér flutt um bráðabirgðaákvæðið eins og það er í frv., eigi fyllilega rétt á sér og það sé þess vegna rétt að samþykkja þá varatill. um orðalag þessa bráðabirgðaákvæðis sem ég hef gert till. um.