29.03.1982
Neðri deild: 59. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3322 í B-deild Alþingistíðinda. (2939)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Það er sem betur fer ekki á hverjum degi sem hv. þm. halda því blákalt fram, að uppi séu höfð hrein ósannindi hér í deildinni, og þess vegna er óhjákvæmilegt að svara slíkum ásökunum í örfáum orðum.
Ég er satt að segja mjög undrandi á því, að fjvn.-maðurinn hv. þm. Karvel Pálmason skuli ítrekað vera að opinbera fáfræði sína um það sem í fjárlögunum stendur. Það var nóg fyrir hann að gera það kvöldið góða þegar við ræddumst við, en að vera að taka þetta upp á nýjan leik og auglýsa enn frekar fáfræði sína í þessum efnum finnst mér vera að bera í bakkafullan lækinn.
Í fjárlagafrv., á bls. 132, stendur um Skipaútgerð ríkisins, liður 992: Tekin lán 40 millj. Þegar leitað er skýringa á þessum teknu lánum stendur í B-hluta á bls. 184 í fjárlagafrv.: „Á árinu 1982 er áformað að afla heimildar til lántöku alls að fjárhæð 40 millj. kr. til endurnýjunar skipastóls fyrirtækisins. Fjárhæðin er við það miðuð að lánsfé áranna 1981 og 1982 renni til smíði sem svarar eins skips og kaupa á öðru.“ — Síðan gengur fjárlagafrv. til hv. fjvn. Hún gerir enga breytingu á þessu ákvæði, en aftur á móti er við fjárlagaafgreiðsluna sett inn ákvæði í 6. gr. þar sem veitt er ótvíræð heimild til að taka lán í sambandi við skip Skipaútgerðarinnar. Ég finn ekki í fljótu bragði hvaða liður þetta er, en það skiptir ekki máli. Eins og kom fram hjá hv. þm. áðan er þessi liður fyrir hendi í 6. gr. fjárlaganna. Síðan samþykkir Alþingi fjárlögin. Alþingi hefur þar með samþykkt að fela ríkisstj. að kaupa eitt skip og láta smíða annað skip, og það hefur líka veitt þá lántökuheimild sem hér er, en kann hins vegar að vera ófullnægjandi, miðað við endanlegan frágang beggja þessara mála, vegna þess að það þarf að taka meira lánsfé en heimild er fyrir í fjárlögunum. Sú heimild verður væntanlega samþykkt þegar lánsfjárlögin verða afgreidd.
Það, sem ég sagði hér um kvöldið góða þegar við ræddum málið, við hv. þm. Karvel Pálmason, var einfaldlega að heimildin til að kaupa og heimildin til að láta smíða væri í fjárlögunum ásamt hluta af þeim heimildum sem þarf til lántökunnar. Það er því alveg ljóst að hæstv. samgrh. var í fullum rétti til að ganga frá þessum smíðasamningi og þessum kaupsamningi í fullu samráði við fjmrh., eins og hann gerði. Hins vegar breytir það ekki hinu, að það er þörf á að lánsfjárlög verði samþykkt þannig að það sé endanlega hægt að ganga frá þeim lántökum sem snúa að þessum skipakaupum. Það er því hvert orð satt og rétt sem ég sagði um þessi mál í umr. í þinginu á fimmtudaginn var og satt best að segja aldeilis furðulegt, þegar svona margir dagar eru liður síðan málið var til umr., að hv. þm. skuli ekki kynna sér málið áður en hann veður fram aftur á nýjan leik með svo rakalausar árásir sem hann gerði áðan. En það er nú svo, að það er háttur þessa ágæta þm. að tala stundum áður en hann hugsar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við höfum reynslu af slíku.