30.03.1982
Sameinað þing: 70. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3337 í B-deild Alþingistíðinda. (2960)
361. mál, tollafgreiðslugjald á aðföng til iðnaðar
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Ég vakti athygli á þessum málum vegna þess að þau ber að skoða í ljósi þeirrar fsp. sem hér var borin upp af hv. þm. Birgi Ísl. Gunnarssyni.
Það er alveg rétt, sem kemur fram hjá hæstv. ráðh., að gerð var breyting með auglýsingu snemma árs 1981. En það breytir ekki því, að Alþingi Íslendinga fór þess á leit við hæstv. fjmrh., reyndar þann sem þá sat, að samið yrði frv. — ég endurtek: frv. til breytinga á tollskrárlögum til að ná fram þeirri hugsun sem kom fram í frv. okkar fjórmenninganna. Auglýsing frá hæstv. fjmrh., þótt voldugur sé, getur aldrei verið í frumvarpslíki.