31.03.1982
Sameinað þing: 72. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3448 í B-deild Alþingistíðinda. (3002)

243. mál, steinullarverksmiðja í Þorlákshöfn

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Athuganir iðnrn. á því, hvar skynsamlegast sé að byggja steinullarverksmiðju, hafa nú staðið yfir í full tvö ár og reyndar lengur. Þegar upplýsingasöfnun og skýrslugerð er einnig lokið með viðeigandi skoðun rn. er næsta lota pöntuð og svo koll af kolli og skýrslubunkinn vex. Allar hafa þessar athuganir sýnt — og kem ég að því síðar, að staðsetning verksmiðjunnar frá arðsemisjónarmiði er mun hagkvæmari í Þorlákshöfn en á Sauðárkróki og það þótt ýmis atriði hafi verið teygð og toguð á alla kanta til að fá skárri útkommu fyrir Sauðárkrók í þessum samanburði. Hafa ríkisfyrirtæki óspart verið notuð eða réttara sagt misnotuð í þeim tilgangi.

Allir arðsemiútreikningar varðandi Sauðárkrók eru t.d. miðaðir við að Skipaútgerð ríkisins flytji mestan hluta framleiðslunnar til Reykjavíkur fyrir gjald sem er aðeins 1/4, aðeins 25% af venjulegri gjaldskrá útgerðarinnar. Hæstv. iðnrh. sagði að Ríkisskip hafi ekki ætlað að gera upp á milli staða, ekki ætlað að hlutast til um staðarval. Hvernig stendur þá á því, að ef á að flytja steinull frá Þorlákshöfn til Reykjavíkur með Ríkisskip er það 117% dýrara en frá Sauðárkróki? Væntanlega eru Ríkisskip líka tóm á þeirri leið til Reykjavíkur eins og að norðan. Það fær því ekki staðist hjá hæstv. iðnrh. að Ríkisskip hafi ekki ætlað sér að hlutast til um staðarvalið.

Nú vitum við það, eins og kom fram í máli hv. 4. þm. Suðurl., að helmingur af rekstrarkostnaði útgerðarinnar er borinn uppi af skattpeningum. Þá sýnist vafasamt að það sé hægt, miðað við þessa taxta sem eru þó helmingi of lágir til að útgerðin standi undir sér, að gefa 75% afslátt frá þeim. Skýringin er sögð sú, að vöruflutningar séu miklu meiri frá landsbyggðinni til Reykjavíkur, og þá væntanlega hinum megin frá líka, bæði að norðan og sunnan, heldur en öfugt og því sé mikið ónotað lestarrými á leiðum til Reykjavíkur.

Þegar tilboð Ríkisskips var gert haustið 1981 var reiknað með smíði þriggja nýrra skipa. Ákveðið hefur verið að smíða eitt, engar áætlanir uppi um fleiri. Eitt skip til viðbótar stendur til að kaupa í leyfisleysi og leigja enn eitt og selja síðan eldri skipin. Lestarrými verður þó engan veginn jafnmikið og reiknað var með þegar tilboðið var gert. Þar við bætist svo, að Ríkisskip hefur gert samning við Hafskip um flutning á kísilgúr frá Húsavík til Reykjavíkur og nú er verið að reisa verksmiðju á Sauðárkróki til átöppunar á vatni til útflutnings. Reikna má með að Ríkisskip taki að sér flutninga á þeirri framleiðslu til Reykjavíkur. Ef trjákvoðuverksmiðja verður reist á Húsavík má enn reikna með aukningu á flutningum í þá áttina. Það gæti því allt eins farið svo að ónotað lestarrými á leiðinni frá Norðurlandi til Reykjavíkur verði lítið sem ekkert. Um þetta segir í bréfi frá Ríkisskip, dags. 18.1. 1982, með leyfi hæstv. forseta:

„Engar ákvarðanir hafa verið teknar um frekari smíði nýrra strandferðaskipa, en Ríkisskip mun leggja áfram áherslu á að tvö ný skip til viðbótar verði smíðuð.“

Það segir meira í þessu bréfi. Það eru líka settir fyrirvarar um að það sé vafasamt að fyrirtækið geti staðið við það tilboð sem það hafði áður gert, en hæstv. forseti kom inn á það í framsöguræðu sinni þannig að ég þarf ekki að endurtaka það. Engu að síður er í öllum samanburði gengið út frá því, þrátt fyrir alla fyrirvara nú, að Ríkisskip flytji alla framleiðslu verksmiðjunnar fyrir 25% af venjulegum farmgjöldum, og þar við bætist svo að flytja alla gáma fyrir ekkert norður. Maður hefði haldið að það þyrfti pláss til þess líka. Þetta á að gera í skipum, sem ekki eru til og ekki er ákveðið að smíða, og í ónotuðu lestarrými, sem allt eins er líklegt að verði ekki til staðar, a.m.k. ekki í nauðsynlegum mæli. Á þessu eru allir arðsemiútreikningar verksmiðju á Sauðárkróki byggðir og öll arðsemi fokin út í veður og vind ef þessar forsendur verða ekki fyrir hendi. Á svo veikum fótum stendur arðsemiútreikningur verksmiðju á Sauðárkróki í samanburði við Þorlákshöfn.

Þrátt fyrir að allar forsendur um ónotað lestarrými standist og þar með tilboð Ríkisskips um 75% afslátt á farmgjöldum verður flutningskostnaður frá verksmiðju á Sauðárkróki talsvert miklu hærri en frá verksmiðju í Þorlákshöfn. Ef miðað er við 3100 tonna sölu á innlendum markaði og 3000 tonn á erlendan markað, þ.e. með litilli verksmiðju nokkurn veginn fullnýttri, sem auðvitað gefur bestan arð og meira að segja gerir það að áliti sérfræðinga rn., er heildarflutningskostnaður frá verksmiðju á Sauðárkróki 1.7 millj. kr. hærri en frá verksmiðju í Þorlákshöfn. Þá lækkar hagnaður af umsetningu úr 14.3% í 10.9% eða nálega um 30% — og munar um minna. Á allt þetta blása fulltrúar iðnrn. og sérfræðingar og segja að þetta sé ekki meiri munur en svo, að það sé innan við skekkjumörk, faglega sagt.

Auðvitað eru þessi rök rn. haldlaus. Hvað sem hugsanlegum skekkjumörkum líður er þessi mismunur alltaf inni í dæminu — þessi mismunur sem er um 30% af áætluðum hagnaði verksmiðjunnar. Á þetta blása þeir og segja að flutningskostnaður sé jafn frá báðum stöðum. Eins og ég sagði er þessi 30% munur miðaður við að Ríkisskip geti staðið við þetta lága boð, við 75% afsláttinn, sem enginn vissa er fyrir, eins og ég hef bent á, nema þá að til komi gífurlegar meðgjafir frá ríkissjóði.

Ef Ríkisskip getur aftur á móti ekki annað þessum flutningum með þessum lágu farmgjöldum er grundvellinum fyrir steinullarverksmiðju á Sauðárkróki kippt í burtu, a.m.k. í samanburði við Þorlákshöfn.

Ef reiknað er með skráðum töxtum skipafélaganna hækkar flutningskostnaður vegna verksmiðju á Sauðárkróki um 9.2 millj. kr. á ári, ef miðað er við innanlandsmarkað einan eins og hann er áætlaður á fimmta starfsári verksmiðjunnar, og um 16.3 millj., ef áætlaður útflutningur þessa starfsárs er talinn með og þá miðað við minni verksmiðjuna, meðalhagnaður fyrir skatta er áætlaður frá 12.4 og upp í 15.6 millj. Það dugar ekki fyrir mismuninum á flutningnum. Allur áætlaður hagnaður af verksmiðju á Sauðárkróki hyrfi því í aukinn flutningskostnað, ef miðað er við skráð farmgjöld skipafélaganna, en áhrifin á verksmiðju í Þorlákshöfn yrðu aftur á móti miklu minni. Þó að hún yrði að borga skráð farmgjöld fyrir allan sinn flutning skakkar þar 2.7 millj. á ári, ekki 16.3 eins og á Sauðárkróki, ef reiknað er með nokkurn veginn fullum afköstum lítillar verksmiðju í báðum tilvikum og þá miðað við fimmta starfsár. Á þessu sést hve arðsemiútreikningur verksmiðju í Þorlákshöfn stendur á miklu traustari fótum en sams konar útreikningur fyrir verksmiðju á Sauðárkróki.

Norðanmenn hafa staðið í samningsumleitunum við franskt fyrirtæki um kaup á vélum sem aldrei hafa verið notaðar til að framleiða steinull. Auk þess gera samningsdrög þeirra ráð fyrir banni á útflutningi frá Íslandi á bestu markaði álfunnar um langa framtíð og óheyrilega háu framleiðslugjaldi til seljenda vélanna einnig um langa framtíð. Stærð vélanna átti að miðast við innanlandsmarkað eingöngu. Nú hafa sérfræðingar iðnrn. dæmt þessa framleiðsluaðferð og þessar hugmyndir allar ónothæfar.

Sunnlendingar hafa aftur á móti, eins og hér hefur komið fram, staðið í sambandi við Elkem í Noregi og Jungers í Svíþjóð um kaup á vélum og búnaði í helmingi stærri verksmiðju eða ríflega það — verksmiðju sem ætlað er að framleiða 14 þús. tonn á ári og gæti með því að fjölga vikulegum vöktum framleitt 20 þús. tonn á ári. Þar er ekki gert ráð fyrir neinum framleiðslugjöldum og þaðan af síður takmörkunum á útflutningi frá Íslandi. Reyndar hafa sænskir aðilar stungið upp á samvinnu við okkur um útflutning á breskan markað, en hann er talinn vera sá besti í dag. Eins og ég sagði hafa þessar áætlanir Sunnlendinga staðist, en Norðlendinga ekki, enda fráleitt að kaupa vélar, sem hafa ekki verið notaðar til steinullarframleiðslu, og fráleitt að beygja sig undir ok erlends einokunarhrings um hátt framleiðslugjald og útflutningsbann á bestu markaði álfunnar um langa framtíð. Þegar þetta lá fyrir, að áætlanir norðanmanna stóðust engan veginn að mati fulltrúa iðnrn., var rokið til og haft samband við sömu aðila og Sunnlendingar hafa um árabil staðið í sambandi við. Ætlunin er að ganga beint inn í undirbúningsvinnu Sunnlendinga, hversu heiðarlegt sem mönnum sýnist það vera. Af höfðingsskap sínum býðst hæstv. iðnrh. til að borga útlagðan kostnað við þessa athugun, enda nýtist hún fyllilega fyrir Norðlendinga ef þannig færi.

Segja má að sú 14 þús. tonna verksmiðja, sem Sunnlendingar hafa haft í huga, sé minnsta gerð af „standard“ verksmiðjum. Við minnkun hennar sparast sáralítið í stofnkostnaði eða nálægt 15%, fulltrúar iðnrn. segja reyndar 28.8%, en þá er reiknað með að jafnframt verði dregið verulega úr sjálfvirkni, m.a. í pökkunarsal. Við minnkunina tapast aftur á móti mikið í framtíðarmöguleikum. Stofnkostnaður og flestir rekstrarþættir eru svo til þeir sömu, hvort sem framleitt er eingöngu fyrir innanlandsmarkað eða útflutningur er einnig með í myndinni. Auðvelt virðist vera að gera langtímasölusamning við enska og þýska aðila og jafnvel fleiri kaupendur steinullar um fast verð ef við svo óskum. Rekstur stærri verksmiðju, þótt eingöngu sé framleitt fyrir innlendan markað, skilar 9.3% raunvöxtum af heildarfjárfestingu á móti 11% í minni verksmiðjunni. Það þarf ekki nema sáralítinn útflutning til að jafna þennan mismun. Minni verksmiðjan gefur á sama hátt 11% „innri“ raunvexti, en 12% ef einnig er framleitt til útflutnings.

Það hefur verið sýnt fram á að útflutningur, að einhverju marki a.m.k., borgi sig undir öllum kringumstæðum, og það kemur líka fram í niðurstöðum sérfræðinga iðnrn. Þá hefur verið gengið út frá lægsta verði sem verið hefur á Evrópumarkaði á þessum vörum í þeirri lægð sem gengið hefur yfir iðnaðarþjóðirnar nú undanfarið, allra lægsta verðið sem þær komust niður í, og miðað við óheppilegustu og óhagkvæmustu gengisskráningu sem verið hefur á íslenskri krónu, s.l. haust, ef miðað er við útflutning á Evrópumarkað. Með því að taka litla verksmiðju fram yfir stóra sparast, eins og áður segir, lítið í stofnkostnaði, en framtíðarmöguleikar minnka stórlega, enda kom þetta mjög greinilega fram í ræðu hv. 3. þm. Suðurl.

Ég hef staðið í þeirri meiningu að stefna bæri að því að nota innlenda orku til að auka útflutningstekjur okkar, að ekki sé talað um þegar unnið er úr innlendu hráefni eins og í þessu tilviki. Það sýnist því fráleitt að stefna að því að útiloka útflutning fyrir fram eins og Norðlendingar vilja.

Einu megum við ekki heldur gleyma þegar kostir framleiðslu til útflutnings eru metnir, og á það auðvitað við um fleiri en steinullarverksmiðjuna, en það eru þeir þróunarmöguleikar sem því fylgja þegar íslenskir framleiðendur selja sínar vörur á erlendum mörkuðum, sú vöruvöndun og sú vöruþróun sem af því leiðir. Staðsetning steinullarverksmiðju í Þorlákshöfn m.a. með útflutning í huga, gæti verið fyrsta skrefið í þá átt að mynda staðgóða þekkingu á einangrunar- og byggingarvörum, ef nýta á þau jarðefni önnur sem finnast á Suðurlandi og hæstv. iðnrh. hefur svo mjög talað um. Nálægð Þorlákshafnar við aðalmarkaðinn á landinu fyrir ýmiss konar framleiðslu til byggingariðnaðar eykur möguleika á framleiðslu léttra byggingareininga sem aftur getur leitt af sér verulega lækkun á byggingarkostnaði. Þar við bætist svo að við höfum slæma reynslu af fyrirtækjum sem í krafti fjarlægðar og annarrar verndunar leyfa sér að líta fram hjá vöruvöndun og vöruþróun og eru svo styrki af almannafé til að standast samkeppni innfluttrar vöru. Hörð samkeppni á erlendum mörkuðum ýtir undir framleiðendur að fylgjast vel með vöruþróun keppinautanna og vanda gæði vöru sinnar sem mest. Staðarval, sem býður upp á minni arðsemi, eykur líkurnar á því, að stjórnendur verksmiðjunnar leiti til hins opinbera um stuðning í einhverri mynd, t.d. niðurgreiddra farmgjalda.

Hæstv. iðnrh. kom inn á það, að 50% af framleiðslugetu steinullarverksmiðja í Evrópu væru ónotuð. Það átti að vera sönnun fyrir því, að það væri ekki hægt að selja steinull til Evrópu. Hv. 3. þm. Suðurl. kom inn á að þessar verksmiðjur í Evrópu borga frá 10–19 sinnum meira fyrir hráefnið en verksmiðja hér á landi. Væntanlega verður raforka hjá okkur, þegar unnið er með jöfnu álagi allan sólarhringinn eins og hér er gert, ódýrari en í Evrópu, þar sem mikið af raforkunni þarf að framleiða með olíu. Þessi rök standast því engan veginn. Ef þetta er rétt væri ekki heldur hægt að selja alúminíum t.d. til Japans. Þar er búið að loka 30–40 álverksmiðjum af því að þær geta ekki keppt við verksmiðjur í öðrum löndum vegna þess að þær eru knúnar með olíu. Er það sönnun þess að Japanir þurfi ekki að kaupa alúminíum? Það hefði ég haldið að væri ekki. Og auðvitað gætu Sunnlendingar ekki síður en norðanmenn byggt minni verksmiðju, og þeir hafa einnig aflað sér tilboða í hana, en þeim finnst það stríða á móti allri skynsemi og benda á að aldrei hafi minni áhætta verið tekin við ákvörðun um framleiðslu fyrir erlendan markað en í þessu dæmi, ef af verður.

Ég tel mig hafa sýnt fram á það, herra forseti, að efnahagsleg rök mæli með Þorlákshöfn langt umfram Sauðárkrók. En hvað þá um byggðasjónarmiðið? Spyrja sjálfsagt margir, alla vega þeir sem telja að Suðurland sé á stór-Reykjavíkursvæðinu. Það eru ótrúlega margir sem halda því fram beint eða óbeint og meta reyndar byggðasjónarmiðið út frá fjarlægðinni frá Reykjavík einni saman. Einn af virtustu þm. okkar orðaði það þannig fyrir nokkrum dögum, að Sunnlendingar hefðu gert mistök með því að miða ekki allar áætlanir sínar við að framleiðsla verksmiðjunnar verði flutt með Ríkisskip austur og norður land til Reykjavíkur þá leiðina. Þá hefðu þeir alveg örugglega verið metnir hæfir af iðnrn. og langtum fremri en Sauðkræklingar.

Rétt er að meðaltekjur íbúa á Norðurlandi vestra eru með því lægsta sem þekkist á landinu. En það á einnig við um skattumdæmi Suðurlands. Þessi tvö kjördæmi, þessi tvö landsvæði, hafa á undanförnum árum skipst á um lægsta og næstlægsta sætið í þessum efnum. Síðasta ár var Norðurland vestra aðeins fyrir neðan og þar á undan Suðurland o.s.frv.

Það hefur verið komið hér inn á fólksfjölgun á þessum svæðum. Á Suðurlandi, ef Vestmannaeyjar eru ekki taldar með, fækkaði um þrjá menn á síðasta ári. Það varð fækkun upp á þrjá menn. Í hér um bil öllum sveitarfélögum Suðurlands fækkaði og þar með í Ölfushreppi þar sem Þorlákshöfn er. Þar varð fækkun. Það varð aftur á móti 22 manna fjölgun í Vestmannaeyjum, sem er að vísu ekki mikið miðað við stærð kaupstaðarins, þannig að það varð fjölgun um 19 menn í kjördæminu, en það varð fækkun á Suðurlandi sem slíku um þrjá menn. Á Norðurlandi vestra fjölgaði á sama tíma um 82 eða um 0.77%. Það er reyndar mesta fjölgun á öllu landinu, ef Reykjanes og Reykjavík eru ekki talin með, og ekkert voðalega langt frá landsmeðaltalinu, sem var á síðasta ári aðeins liðlega 1%. Þannig er sama hvort litið er á tekjurnar eða fólksflóttann. Hv. 4. þm. Suðurl. sagði að það hefðu flutt 130 fleiri frá Suðurlandi en til. Það voru 230, en ekki 130, sem fluttu frá Suðurlandi á því ári umfram þá sem fluttu til Suðurlands. Frá þessum tveimur þýðingarmiklu byggðasjónarmiðum er ekki hægt að segja að Sauðárkrókur hafi vinning, nema síður væri.

Atvinnuleysi á Suðurlandi hefur um langt skeið verið tvöfalt meira en meðaltal landsins og hvergi á landinu verið meira en í næsta nágrenni væntanlegrar verksmiðju, þ.e. á Eyrarbakka og Stokkseyri. Þar er svipað atvinnuleysi og við erum að býsnast yfir að sé mikið úti í löndum, 3–4%, langsamlega mest á landinu. Satt að segja vonast ég eftir því, að það besta, sem út úr þessari verksmiðju kemur, verði að eyða atvinnuleysi á þessum svæðum.

Verulegur samdráttur er í mjólkurframleiðslu og hefur hann komið harðast niður á Suðurlandi. Þar eru mjólkurframleiðendur flestir. Við það vex auðvitað byggðavandinn á Suðurlandi meira en annars staðar. Það er aftur á móti enginn samdráttur í sauðfjárrækt. Það er kannske vegna þess að hæstv. landbrh. er sjálfur sauðfjárbóndi. Þetta þýðir í reynd að útflutningsuppbætur, sem áður gengu til mjólkurframleiðenda, ganga núna til sauðfjárbænda. Við þetta bætist svo gífurlegur samdráttur í virkjunarframkvæmdum. Hæstv. iðnrh. sagði fyrir nokkru að Sunnlendingar þyrftu engu að kvíða í þessum efnum því að starfsmenn við virkjunarframkvæmdir á Suðurlandi yrðu 100–150 næstu árin. Það er rétt, en eigi að síður er það gífurlegur samdráttur frá því að vera 300–400 eins og er búið að vera í fjöldamörg ár og allt upp í 600 á ári. Það fækkar a.m.k. um 200–300 manns í virkjunarframkvæmdum á svæðinu, og hvar eiga þessir menn allir að fá vinnu?

Nú er stefnt að stórvirkjun og byggingu steinullarverksmiðju samtímis á Norðurlandi vestra og þar með stefnt að mikilli spennu á vinnumarkaði á sama tíma og fyrirsjáanlegt er verulegt atvinnuleysi á Suðurlandi. Ég hefði haldið að skynsamlegra væri að jafna framkvæmdum betur, stórvirkjun fyrir norðan, stóriðju fyrir austan og steinullarverksmiðju fyrir sunnan þótt auðvitað sé hún langsamlega minnst þeirra fyrirtækja sem ég hef minnst á.

Hv. 4. þm. Suðurl. skammaði staðarvalsnefnd kannske meira en hún átti skilið. Hún var sett í að finna stað fyrir kísilmálmverksmiðjuna og fann Reyðarfjörð, enda var henni bannað að skoða arðsemina annars staðar. Það er því ekki hægt að skamma hana fyrir það að hún hafi fundið Reyðarfjörð. Hún mátti ekki finna neitt annað. Það var hæstv. iðnrh. sem bannaði henni að gera það. Kostnaðurinn við að finna þennan stað, sem fyrir fram var ákveðinn, var tíu sinnum meiri en nú stendur til að borga Sunnlendingum í skaðabætur fyrir þeirra undirbúningsvinnu.

Þegar þessi staðarvalsnefnd lét meta áhrif steinullarverksmiðju frá byggðasjónarmiðum séð var reiknað með 15 km radíus frá Þorlákshöfn. Það mátti alls ekki vera 16 km radíus og það er ágætisskýring til á því. Auk þess átti verksmiðjan engin áhrif að hafa, engin áhrif í Hveragerði, engin á Selfossi, engin á Stokkseyri, engin á Eyrarbakka. En Skagafjörður var allur tekinn með. Satt að segja, eins og ég hef áður sagt, met ég verksmiðjuna ekki síst fyrir að hún kemur til með að útrýma atvinnuleysi á þessum stöðum. Eyrarbakki verður í 16 km fjarlægð frá verksmiðjunni, eftir að brúin við Óseyrarnes hefur verið byggð, og Stokkseyri 2–3 km lengra frá.

Auðvitað kemur fólk á Árborgarsvæðinu öllu til með að vinna við bygginguna og rekstur verksmiðjunnar. Sérstaklega verða áhrifin á allt svæðið og allt Suðurland mikil og góð eftir að brúin við Óseyrarnes hefur verið byggð.

Herra forseti. Ég þykist hafa leitt rök að því, að arðsemiútreikningar allir mæli með Þorlákshöfn langt umfram Sauðárkrók. Ég tel mig einnig hafa leitt rök að því, að byggðasjónarmið mæli ekki síður með Suðurlandi en Norðurlandi vestra og það sérstaklega ef haft er í huga að nú stendur til að reisa þar stórvirkjun sem auðvitað skapar mikla vinnu um allt kjördæmið og jafnvel ofþenslu á vinnumarkaði þar. Minnst 300–400 manns koma til með að vinna beint við virkjunarframkvæmdir og þar að auki fjöldi manns við vegaframkvæmdir og annað sem í kringum þetta verður. En hvað er það þá, herra forseti, sem veldur því að ríkisstj. ætlar eftir sem áður, og þrátt fyrir Blönduvirkjun, að reisa verksmiðju á Sauðárkróki? Sú einfalda staðreynd, að tveir ráðh. eru þm. Norðurl. v., sá þriðji er þaðan og hefur verið alþm. þess kjördæmis um langan tíma og fjórði ráðh. er þm. Norðurl. e. Enginn ráðh. er frá Suðurlandi. Í þessu liggur skýringin og engu öðru, eins og kom greinilega fram í máli hv. 4. þm. Suðurl.

Ef við lítum á hver þróunin hefur verið í tíð núv. ríkisstj. um fjárveitingar og fyrirgreiðslu til Norðurlands vestra miðað við önnur kjördæmi blasir við að framkvæmdafé á fjárlögum til Norðurlands vestra hefur hækkað frá því að vera 45% yfir meðaltal kjördæmanna árið 1979 í það að vera 122% yfir öðrum kjördæmum á yfirstandandi ári — meira en tvöfalt — og er þá miðað við fjárveitingar á íbúa. Suðurland hefur á þessu tímabili verið ýmist rétt fyrir ofan eða rétt fyrir neðan landsmeðaltalið, frá 95 –105% eða þar um bil. Þegar ég tala um framkvæmdafé á ég við framlag ríkissjóðs til byggingar skóla, dagvistarheimila, íþróttamannvirkja, sjúkrahúsa, hafnarframkvæmda og flugmála. Það er sama á hvaða málaflokk er litið, framlag til Norðurlands vestra hefur stórhækkað meðan það stendur í stað eða minnkar til annarra kjördæma.

Það er skiljanlegt og mannlegt að þm. hugsi meira um hag síns kjördæmis en annarra, en það hljóta að vera takmörk fyrir því, hve langt ráðh. mega ganga í þeim efnum. Þeir eru ráðh. sinna málaflokka fyrir allt landið, en ekki bara sinna kjördæma, en því virðast þeir sumir hverjir hafa gleymt.

Sauðárkróksbúar halda því stíft fram, að þeir hafi verið brautryðjendur málsins. Það er rangt. Á Suðurlandi var farið að huga að þessu máli strax 1966 og það hefur verið á dagskrá meira eða minna allar götur síðan. Skipulega hefur verið unnið að því frá 1974, þegar Jarðefnaiðnaður hf. var stofnaður. Aftur á móti var félagið á Sauðárkróki ekki stofnað fyrr en 1977.

Öll sveitarfélög á Suðurlandi, 37 að tölu, eru aðilar að Jarðefnaiðnaði hf., og aðalverkefni félagsins á undanförnum árum hefur verið að undirbúa byggingu steinullarverksmiðju í Þorlákshöfn. Auk þess eru svo til öll sveitarfélög á Suðurlandi aðilar að Iðnþróunarsjóði Suðurlands, en hann er nátengdur Jarðefnaiðnaði hf. Í sjóðinn greiða sveitarfélögin, eins og kom fram hjá hv. 3. þm. Suðurl., 1% af öllum hefðbundnum tekjustofnum sínum. Sjóðurinn er beinn aðili að undirbúningi að byggingu steinullarverksmiðju í Þorlákshöfn. Ölfushreppur gefur síðan eftir aðaltekjustofn sinn af verksmiðjunni, þ.e. aðstöðugjöldin, sem rennur í Iðnþróunarsjóð Suðurlands sem síðan á að styðja iðnþróun í Suðurlandskjördæmi öllu. Slík samvinna sveitarfélaga í heilu kjördæmi er einsdæmi hér á landi og ætti vissulega að vera öðrum sveitarfélögum til fyrirmyndar.

Hæstv. forsrh. og hæstv. iðnrh. hafa báðir hrósað þessu samstarfi og talið það öðrum til fordæmis. Á öllu þessu traðkar hæstv. iðnrh. og að því er virðist ríkisstj. öll eða meiri hl. hennar. Hún eyðileggur áralangt uppbyggingarstarf 37 sveitarfélaga, allra sveitarfélaganna á Suðurlandi, í einu höggi eftir að búið er að draga þessa aðila alla á asnaeyrunum í meira en tvö ár. Hvílík ríkisstj.! Hvílíkur stuðningur við uppbyggingu atvinnulífs í heilum landsfjórðungi! Stóru mistökin hjá Sunnlendingum er að hafa nokkurn tíma gert ráð fyrir aðild ríkissjóðs að málinu. Reyndar gerðu þeir það ekki. Þeir ætluðu aldrei að gera það, eins og kom fram hjá hv. 3. þm. Suðurl. Hann minnti á fundinn á Selfossi á sínum tíma og ákvarðanir sem síðar hafa verið teknar. Ríkisstj. hefur í þessum málum reynst hinn argasti dragbítur í stað þess að vera driffjöður í uppbyggingu atvinnulífs og taka höndum saman við þau mörgu sveitarfélög sem saman hafa unnið í þessum tilgangi.

Nú ber svo við hina allra síðustu daga aðfjölmiðlar eru allt íeinu farnir að fjölyrða um aðrar verksmiðjur, hina og þessa atvinnumöguleika Sunnlendinga. Það er talað um sykurverksmiðju í Hveragerði. Það síðasta um það mál, sem frá iðnrn. heyrðist fyrir nokkrum mánuðum, var að slík verksmiðja væri óhagkvæm og ekki bæri að byggja hana. Nú er hún allt í einu orðin vel arðbær, að því er sagt er, og fréttir berast um lagasmíð og reyndar er lagafrv. komið hér á borðin til okkar. Þetta er látið berast í fjölmiðla. Þm. vita ekkert um málið, ekki einu sinni formaður þess áhugamannafélags sem að málinu hefur unnið um árabil. Hann fréttir af þessu fyrst í fjölmiðlunum — ekki frá iðnrn., heldur frá fjölmiðlunum. Einnig er allt í einu farið að tala um ylræki í Hveragerði og nú er Reykjanes einnig með í þeim hugmyndum, ef verður af byggingu slíkrar verksmiðju. Það er jafnvel farið að tala um stálbræðslu í Þorlákshöfn. Ekki veit ég hvort fjölmiðlar hafa þá frétt frá iðnrn. eða einhvers staðar annars staðar frá. Ég veit ekki betur en það fyrirtæki sé búið að fá lóð í Straumsvík og sé byrjað að safna þar brotajárni. Ekki vil ég hafa á móti þessum fyrirtækjum, siður en svo, en greinilegt er til hvers þessi leki til fjölmiðla er nú kominn. Mikið vantar á, m.a. vegna fyrri reynslu af núv. hæstv. ríkisstj., að ég geti treyst á þau atvinnutæki, sem ég hef hér minnst á, a.m.k. á næsta alllöngu árabili.

Ég bendi á og undirstrika það, að grundvöllur steinullarverksmiðjunnar er allt annar en þessara fyrirtækja. Eins og ég sagði eru öll sveitarfélög á Suðurlandi aðilar að steinullarverksmiðjunni og rekstur hennar á svo að standa undir iðnaðaruppbyggingu á Suðurlandi öllu gegnum Iðnþróunarsjóð Suðurlands. Ekkert slíkt á við um verksmiðjur þær sem nú er farið að tala um í fjölmiðlum. Kannske þær verði byggðar í fjölmiðlum.

Ég endurtek að ég er alls ekki andvígur þeim verksmiðjum sem hér hefur verið minnst á, þótt ég treysti varlega á þau atvinnutæki fyrir Suðurland, a.m.k. næstu árin. En þó að allar þessar tiltölulega litlu verksmiðjur yrðu reistar á Suðurlandi dugar það varla til hvað atvinnutækifæri snertir til að vega á móti þeim samdrætti sem fyrirhugaður er í virkjunarframkvæmdum. Það eru fleiri menn sem missa vinnuna í virkjunarframkvæmdum en þó að allar þessar verksmiðjur yrðu reistar á Suðurlandi, sem engar líkur eru á, því miður.

Herra forseti. Ég skora því á hv. þm. að kynna sér vel allt sem steinullarverksmiðjuna snertir, kynna sér málið bæði frá arðsemisjónarmiði og frá byggðasjónarmiðum. Ef hv. þm. gefa sér góðan tíma til þess þurfa Sunnlendingar engu að kvíða varðandi afgreiðslu málsins.