01.04.1982
Neðri deild: 60. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3502 í B-deild Alþingistíðinda. (3047)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég vil svara fsp., sem hér var borin fram af hv. þm. Karvel Pálmasyni, sé enga ástæðu til að sitja undir henni án þess að svara. Það er vegna Tryggingastofnunar ríkisins. Það er gert ráð fyrir að kanna hvort unnt verði að spara þar í kringum 20 millj. kr., en það er um það bil eða rétt innan við 1% af útgjöldum stofnunarinnar á þessu ári. Það varð niðurstaða okkar þegar verið var að ganga frá þessum áformum um sparnað í ríkisútgjöldum, að þetta mál yrði kannað ofan í kjölinn líka. Það kemur auðvitað eitt og annað til álita án þess að verið sé að skera niður þjónustu heilbrigðisstofnana. Þar er um að ræða fleiri þætti en sjúkrahús. Þar er um að ræða þætti eins og lyfjakostnað, tannlæknakostnað o.fl. Þessir hlutir ráðast af ákvörðunum, sem teknar eru um daggjöld á hverjum tíma, og ekki hægt að segja til um það á þessu stigi, hvernig þetta verður útfært í einstökum atriðum. Það hefur hreinskilnislega sagt ekki verið ákveðið. En það hefur verið í athugun og það verður glimt við þessa tölu. Náist hún hins vegar ekki nær það auðvitað ekki lengra, sem þýðir þá að þeim mun minna svigrúm verður til annarra verka. En það hefur verið ætlunin að reyna að glíma við þessa tölu. Við höfum ekki geng;ð frá því endanlega hvernig það verður, ég vil ekki vera að leyna þingdeildina því, en málið hefur verið skoðað. Ég minni á að auðvitað hlýtur mál af þessu tagi að koma til umræðu í tryggingaráði þar sem eru fulltrúar allra stjórnmálaflokkanna og þar sem um er að ræða yfirstjórn Tryggingastofnunar ríkisins. Ég geri ekki ráð fyrir að það verði neinn leyndur einu eða neinu í þessu efni. Það hefur aldrei verið ætlunin af okkar hálfu.